Það borgaði sig heldur betur að sigra riðilinn í Meistaradeildinni þetta árið! Á meðan Arsenal og City mæta annarsvegar Bayern Munchen og Barcelona hinsvegar getum við prísað okkur sæla með því að fá grísku meistarana í Olympiakos í 16-liða úrslitunum:
16-liða úrslitin líta svona út:
- Olympiakos – Manchester United
- Manchester City – Barcelona
- AC Milan – Atletico Madrid
- Bayer Leverkusen – Paris Saint-Germain
- Galatasaray – Chelsea
- Schalke – Real Madrid
- Zenit – Borussia Dortmund
- Arsenal – Bayern München
Fyrsti leikur liðanna fer fram í Grikklandi á Karaiskaki-vellinum þann 25. febrúar og seinni leikurinn verður svo á Old Trafford þann 19. mars.
Olympiakos
Olympiakos er sigursælasta lið í sögu Grikklands, liðið hefur unnið deildina, bikarinn, tvennuna og bara allt það sem keppt erum í Grikklandi oftast allra liða. Liðið er þrefaldur meistari og frá árinu 1997 hafa Grikkirnir unnið titilinn alls 15 sinnum. Það er ekkert til þess að kvarta yfir og því erum við að fara að horfa á slag á milli sigursælasta lið Englands og sigursælasta lið Grikklands. Þetta verður ekki mikið stærra en þetta!
Grikkirnir stóðu sig ágætlega í þessum C-riðli sínum og tryggðu sér því farseðilinn í leikinn gegn United.
Stuðningsmenn United ættu að kannast ágætlega við markmann Olympiakos. Maður af nafni Roy Carroll stendur á milli stanganna og mun hann því snúa aftur á Old Trafford. Maður kannast svo sem ekki við marga aðra af þeim leikmönnum sem eru í röðum Olympiakos. Javier Saviola og Wladimir Weiss eru þau nöfn sem maður kannast helst við.
Markahæsti leikmaðurinn í Meistaradeildinni hjá þeim þetta árið er framherjinn Kostantinus Mitroglou sem skaut t.d. Grikkjum á Heimsmeistaramótið í sumar þegar hann skoraði 3 af 4 mörkum Grikklands í umspilsleikjunum nú í haust. Það þarf því að hafa góðar gætur á honum. Hann er einnig markahæstur í grísku deildinni með 13 mörk þar sem Olympiakos situr á toppnum með 8 stiga forystu eftir 15. umferðir og er klárlega þeirra besti maður.
Liðin mættust síðast í riðlakeppninni árið 2001 og 2002 þegar liðin drógust saman í riðla tvo ár í röð. United vann alla fjóra leikina.
Bósi says
Ákveðinn forréttindi að geta sagt „skyldusigur“ í 16 liða úrslitum í meistaradeildinni.
:):)
Valdi Á says
Ég vonaði að United myndi fá Olympiacos. Þetta verður leikur úti en ættum að fara nokkuð þægilega áfram.
DMS says
Þetta var óskadrátturinn. Vonandi mun manni ekki hefnast fyrir að vilja fá „auðveldasta“ liðið. Ég á samt von á því að þetta verði ekkert walk in the park, þetta eru jú meistarar grísku deildarinnar. En við eigum samt að klára þetta.
But then again, þá áttum við líka að sigra Cardiff og Southampton, WBA og Newcastle á heimavelli í vetur.