Það er landsleikjahlé á næsta leiti og því tilvalið tækifæri til að taka upp næsta þátt af podcastinu okkar. Þáttur nr. 2 er kominn í loftið og ætti að endast ykkur fram að næsta leik sem er ekki fyrr en 20. október þegar okkar menn heimsækja WBA.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podcast-forrit:
Gerast áskrifandi í iTunes Gerast áskrifandi í öðrum forritumAð þessu sinni ræddu Tryggvi Páll, Björn Friðgeir og Magnús um QPR, Leicester, West Ham og Everton-leikina, Meiðslamál, varnarlínuna, nýju leikmennina, leikina framundan og ýmislegt fleira.
MP3 niðurhal: 2. þáttur
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Frábært :)
Halldór Marteinsson says
Flott podcast. Afskaplega ánægður með að þetta set komið inn og verður vonandi reglulegur viðburður sem lengst.
Ein pæling í tengslum við podcastið. Væri áhugi fyrir því ykkar megin að opna fyrir fyrirspurnir frá hlustendum sem þið mynduð svo svara í þættinum?
Magnús Þór says
Halldór Marteinsson skrifaði:
Við erum alveg opnir fyrir því.
Kristinn Þorri says
Skemmtilegt framtak. Hinsvegar væri kannski sniðugt að hafa podcastið ekki samdægurs leiks.. Ef það er 1-2 dögum seinna þá eru menn búnir að jafna sig aðeins á leiknum og podcastið litast ekki svona rosalega af úrslitum leiksins.
Birkir says
Takk kærlega;) hlakka til að hlusta
DMS says
Vel gert drengir, gaman að hlusta á ykkur.
TN says
Mjög vel gert ! Ánægður með Ashley Young kommentið, hlakka til að hlusta á næsta !
Egill says
FrVel gert, skemmtilegt podcast. En nenniði plís að hætta að tala um Rojo sem Rocco? Rojo er borið fram Ro-ho, Rocco er klámmyndaleikari ;)
Magnús Þór Magnússon says
Egill skrifaði:
Og þú veist það hvernig? ;)