Klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma verður dregið í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Styrkleikaröðunin er svona:
Fyrsti styrkleikaflokkur
Evrópumeistararnir, Evrópudeildarmeistararnir og sigurvegarar í sex sterkustu deildunum. Til að sleppa sem léttast er augljóst að vilja Lokomotiv Moskvu en annars er lítið sem skilur hin liðin nema mismunandi óskir um hvaða leikmenn fólk myndi vilja sjá á Old Trafford.
Annar styrkleikaflokkur
Liðin sem við sleppum við!
Þriðji styrkleikaflokkur
Allt lið sem United á undir eðlilegum kringumstæðum að ráða vel við, en það eru líklega allt annað en eðlilegar kringumstæður í dag
Fjórði styrkleikaflokkur
Það væri viðeigandi að fara til Belgrað 60 árum eftir flugslysið í München á leiðinni þaðan, og spila þar í fyrsta skipti síðan þá. Inter væru spennandi mótherjar, en annars bara allt nema Galatasaray, takk!
Þarf að nefna það að við getum ekki dregist móti ensku liðinum?
Bjarni says
Real Madrid
Man Utd
Ajax
Rauða stjarnan
Pillinn says
Ég segi
Juventus
Man Utd
Ajax/PSV
Club Brugge
Ástæðan er stutt ferðalög í þessa leiki ásamt auðvitað gaman að fá Ronaldo alltaf á Old Trafford. En þetta verða vart styttri ferðalög en þetta nema í A styrkleikaflokki en þar er mest um að fá Ronaldo aftur.
Annars hlakka ég bara til og vona að þetta fari nú að smella og tímabilið fari að byrja fyrir alvöru. Þetta er orðið frekar leiðinleg öll þessi neikvæðni í garð liðsins, á þessu spjallborði og á Facebook spjallborðinu. Vantar meiri jákvæðni. Síðasti leikur tapaðist mjög illa en spilamennskan var góð fyrir utan þessi einstaklingsmistök miðvarða.
Rauðhaus says
Vonandi fáum við ekki Lokomotiv. Ég vil fá alvöru stórlið úr fyrsta flokki, helst eitt af Real, Barca, Bayern eða PSG. Væri svo gaman að fá CSKA Moskvu út af Íslendingum og svo Inter.
Friðrik says
Lokomotiv Moskva
Man Utd.
CSKA Moskva
Vitoria Plzen/Young Boys/Hoffenheim
Eitthvað segir mér samt að við munum lenda með :
Bayern, Valencia og Galatasaray
Helgi P says
við getum ekki fengið Lokomotiv Moskva og CSKA Moskva