Við hjá Rauðu djöflunum höfum haldið þessari síðu úti síðan 2012. Við höfum séð ýmislegt með liðinu okkar á þeim tíma og fjöldi pistla á síðunni nálgast nú 1.800 stykki. Við höfum einnig haldið úti hlaðvarpi síðan 2014 og erum við það að detta í 100. þáttinn.
Okkur langar að kanna hvað lesendum okkar finnst um efnið sem við bjóðum upp á og hvernig við gætum gert betur í framtíðinni. Ef þið viljið hjálpa okkur að gera síðuna betri, endilega takið þátt í þessari könnun sem við gerðum. Hún er í lengri kantinum, 30 spurningar, en við erum þakklátir öllum sem gefa okkur tíma í að svara.
Takk takk!
Ritstjórn Rauðu djöflanna.
TonyD says
Lýst vel á ykkur, lengi má gott bæta, og ég er ánægður með ykkar starf hingað til.
Andri Haukstein Oddsson says
Það er bilinu á síðu tvö, spurningu 5. Er ég haka við eitt svar, hverfur svar á öðrum svarlið. Kemst því ekki áfram með könnunina því hún gefur til kynna að ég hafi ekki svarað ákveðnum svarlið.
Annars er ég í heildina mjög ánægður með þessa síðu og þyki flest allt efnið sem sett er inn fagmannlega unnið. Ef ég ætti að rýna til gagnst þá tel ég að það mætti vera betra flæði í hlaðvörpunum, meira af virkri hlustun og minna um framíköll. Að því sögðu þá er ég mjög glaður með hlaðvörpin á heildina litið og hlusta reglulega á.
Takk fyrir mig og góðar stundir.
Halldór Marteins says
Svörunin er búin að vera glimrandi góð svo við erum komnir í hámarksfjölda svara miðað við aðganginn sem við höfum.
Takk kærlega fyrir viðbrögðin, við munum nýta þetta í okkar störfum í framtíðinni.
Við viljum endilega hvetja ykkur til að senda okkur skilaboð ef þið hafið einhverjar ábendingar, gagnrýni eða hugmyndir fyrir okkur. Tilvalið að senda okkur skilaboð á Facebooksíðu Rauðu döflanna.