Það molnar sífellt undan deildarbikarnum og kæmi líklega fáum á óvart ef stóru liðin hættu þátttöku eða settu U-23 alfarið í keppnina, líkt og þau eru núna í framrúðubikar neðri deilda. En það er ekki enn komið að þeim tíma og Manchester United mætir West Ham í annað skiptið á fjórum dögum á morgun.
Það gerir þó enginn ráð fyrir að liðin verði eitthvað lík því sem þau voru á sunnudaginn. Nú þegar er búið að tilkynna að Anthony Elanga og Alex Telles verði í hópnum og búist er við að Phil Jones verði það líka á sinni löngu leið tilbaka úr meiðslum. Það er þó ekki endilega það sama og að þeir byrji og við skjótum á að liðið verði albreytt.
Dean Henderson er búinn að spila með U-23 og ætti að vera tilbúinn, og þarf að sýna sig, því eins og David de Gea er búinn að vera spila verður erfitt að ryðja honum úr sessi. Ef Telles er heill verður öll vörnin fersk. Það er ólíklegt annað en að Donny van de Beek fái sjaldgæft tækifæri til að sýna sig. Hvort Nemanja Matic verður treyst fyrir heilum leik verður að koma í ljós, Jesse Lingard byrjar örugglega, sem og Anthony Martial. Jadon Sancho þarf heilan leik og þá er bara spurningin hvort það er nóg eftir í tankinum hjá Juan Mata til að hann byrji, en segjum það bara.
Það verður síðan örlítið spennandi að sjá bekkinn, það ætti að vera eitthvað af stóru kanónunum þar ef Solskjær ætlar að taka keppnina eitthvað alvarlega. Það er jú ekkert verra að hafa þessa leiki inn á milli til að gefa mönnum tækifæri, enda sést af ofangreindu liði að United getur stillt upp mjög sterku varaliði.
West Ham
Markvörðurinn Alphonso Areola kom á láni frá PSG og búist er við honum í byrjunarliði. Alex Král er annar lánsmaður sem búist er við að fái tækifæri, ungur Tékki sem er samningsbundinn Spartak Moskvu. Mikhail Antonio fékk að hvíla um helgina vegna banns og gæti því mætt ferskur ef ekki á að spara hann fyrir deildarleik gegn Leeds um helgina. Loks gæti verið að Mark Noble byrji en hann sat á bekknum á sunnudaginn áður en hann kom inná til að láta De Gea verja frá sér víti.
Að auki eru nefndir Issa Diop, Ryan Fredericks og Manuel Lanzini, sem léku í Evrópudeildinni á fimmtudaginn.
Leikurinn hefst kl 18:45 að íslenskum tíma og Jonathan Moss sér um að blístra.
Skildu eftir svar