Síðasta afrek Ole Gunnars Solskjær var að tryggja United sigur í riðli sínum í Meistaradeildinni og á morgun tekur Ralf Rangnick á móti Young Boys og getur nýtt leikinn í að gefa mönnum séns og hvíla lykilmenn.
Á blaðamannafundi í dag gaf hann út að Nemanja Matic myndi leiða liðið út sem fyrirliði og að Dean Henderson og Donny van de Beek fengju tækifæri. Að Matic verði fyrirliði sýnir að Maguire og Bruno fái frí og við spáum bara svolítið út í bláinn
Þessi ágæta uppstillingar græja okkar kann ekki á 4-2-2-2 þannig við látum þetta standa svona, en Greenwood verður frammi. Varane og Cavani eru ekki orðnir góðir þó þeir hafi verið á æfingu í dag. Það er eins líklegt að Elanga og Mengi komi inn í sókn og vörn, látum þetta standa
Young Boys
Það var minna en ekkert gaman í fyrsta leiknum í riðlakeppninni þegar Young Boys komu á óvart og unnu tvö – eitt. Síðan þá hafa þeir aðeins náð í eitt stig, gegn Atalanta en gætu þó náð Evrópudeildarsæti með sigri á Old Trafford ef Atalanta tapar á heimavelli gegn Villarreal. Þrír af þeim sem hófu leik gegn United eru meiddir og missa af leiknum, Markvörðurinn David von Ballmoos, kantmaðurinn Christian Fassnacht og vinstri bakvörðurinn Ulissis Garcia. Að auki eru Cedric Zesiger, Jean-Pierre Nsame, og Felix Mambimbi og liðið því veikara en ella.
Young Boys hefur gengið illa síðustu vikur, unnið einn af síðustu fimm leikjum í deild og tapað þremur. Jafnteflið gegn Atalanta í síðustu umferð í Meistaradeildarriðlinum gaf þeim þó þessa Evrópudeildarvon.
Þetta er leikur sem United á að vinna, þó á varaliðinu sé. Leikmennirnir fá tækifæri til að sýna sig og sanna og ekki víst þau tækifærin gefist mörg fleiri.
Eitt sem ég þori að spá með fullvissu er að Ronaldo verður á bekknum og fær a.m.k. kortér til að setja nýtt met, verða fyrstur til að skora í öllum sex leikjunum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar
Helgi P says
var það ekki carrick sem gerði það