Eftir níunda tapið á Old Trafford á tímabilinu er orðið ansi hæpið að United verði í Evrópukeppni á næsta tímabili.
Þessi leikur var ekki besti leikur liðanna en Arsenal voru bara í fyrsta gír allan leikinn og þökk sé einstaklings mistökum skoruðu þeir eina mark leiksins.
Þessi Casemiro í miðverði tilraun er ekki að virka oh vesalings Evans er að stíga uppúr meiðslum. Amrabat og Mainoo vorum ágætir í varnartengiliða stöðunum. Garnacho var helsta ógnin sóknarlega en ákvarðanatakan var hans helsti andstæðingur í leiknum.
Eins og staðan er núna þá þarf United að vinna báða síðustu leikina í deildinni til að komast í sambandsdeild Evrópu sem er ekki keppni sem stuðningsfólk er spennt fyrir. Evrópudeildin er möguleiki svo framarlega sem áður strákarnir fylgi kvennaliðs United og verði bikarmeistarar.
Skildu eftir svar