Manchester United heimsækir Fulham í kvöld á furðulegum leiktíma, um kvöldmat á sunnudagskvöldið. Slíkt hentar eflaust vel til sjónvarpsútsendinga til Bandaríkjanna en síður fyrir vinnandi fólk sem fylgir liðunum. En Fulham virðist yfirhöfuð með miðaverðlagningu sinni ekki hafa áhyggjur af lægri stéttum.
Hugleiðingar eftir Rangers
United vann á fimmtudagskvöld Glasgow Rangers 2-1 í Evrópudeildinni. United lenti í vandræðum, skömmu fyrir leikslok misreiknaði Harry Maguire háan bolta og Rangers jafnaði. Bruno Fernandes skoraði sigurmark í uppbótartíma.
Sigurinn var þó verðskuldaður, Alejandro Garncho brenndi af tveimur dauðafærum og þeir Magueire og Manuel Ugarte fengu báðir opin skallafæri. Leiksins verður þó sennilega helst minnst fyrir að innihalda stærsta framlag Jack Butlands til United. Hann spilaði ekki sekúndu þegar hann var í láni hjá liðinu fyrri hluta árs 2023 en skoraði fyrra mark United þegar hann kýldi boltann í eigið net eftir horn.
Þess má þó geta að Rangers liðið kom vængbrotið inn í leikinn, lykilmenn voru fjarverandi og þegar á leið leikinn hrundu fleiri niður eins og flugur þannig að eftir stóð hálfgert unglingalið. United lenti líka í vandræðum, bæði Mathijs de Light og Leny Yoro fóru út af meiddir.
Hvað framlag einstakra leikmanna áhrærir má minnast á að Toby Collyer lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik síðan í haust og leysti sitt hlutverk mjög vel, fyrir utan tvær sendingar. Garnacho var líflegur en fór illa með færin og að lokum var það Bruno sem dró vagninn, sem oft áður.
Janúarglugginn
Anthony var í hóp hjá United en strax í kjölfarið var gengið frá láni hans til Real Betis út leiktíðina. Hann náði þó ekki inn í hóp þess í gærkvöldi. Ekkert er um kaup í samningnum en margt þarf að breytast til að Anthony eigi framtíð hjá United.
Það má margt segja um Anthony. Hann kom 22ja ára gamall til United, sem er fínn aldur og átti fínasta fyrsta tímabil, 8 mörk og 3 stoðsendingar í 44 leikjum er engin hörmung. Í fyrra lenti hann í vandræðum í einkalífi og leikur hans hrundi, líkt og annað hjá United. En eftir stendur að 80 milljóna punda kaupverð er eins og þegar Baldrick í Blackadder prúttaði um rófuna.
Sögur um sölu á Alejandro Garnacho halda áfram. Napoli virðist hafa gefið eftir en Chelsea komið sterkara inn. Einhverjir töldu Garnacho hafa gengið klökkan af velli á fimmtudag og Ruben Amorim neitaði engu um sölu. Chelsea-viðskiptin eru meðal annars sögð ganga út á að Christopher Nkunku komi til United í staðinn, sem væru furðuleg skipti.
United lagði farm nýtt tilboð í Patrick Dorgu. Þar virðist þokast í samkomulagsátt þótt tilboðinu hafi verið hafnað. Flest hefur hljóðnaði í kringum Marcus Rashford, helst er hann orðaður við Barcelona en hæpið að félagið geti nokkuð gert fyrr en í sumar.
Ríkið styrkir völlinn
Í gærkvöldi staðfesti breski fjármálaráðherrann vilja ríkisins til að taka þátt í uppbyggingu í kringum Old Trafford. Frá því að Jim Ratcliffe keypti sig inn í félagið hefur verið unnið markvisst að áformum um endur- eða nýbyggingu heimavallar United. Ratcliffe hefur þó lagt áherslu á að draga úr því sem hann/United þurfa að borga og ná einhverju af skattborgurum, í gegnum borgina eða ríkið.
Samkvæmt því sem tilkynnt var í gærkvöldi ber United ábyrgð á vellinum sjálfum en opinberir aðilar taka þátt í uppbyggingu í kring, svo sem á samgöngumannvirkjum eða íbúabyggð. Verkefninu er ætlað að örva fjárfestingu og hagvöxt í Manchester.
Liðsfréttir
Noussair Mazraoui var hvíldur gegn Rangers eftir að hafa fengið högg í leiknum gegn Brighton síðasta sunnudag. Yoro sást á ferð með United-liðinu í gær en ekki de Light. Victor Lindelöf er að nálgast leikform eftir meiðsli en lengra er í Luke Shaw. Johnny Evans og Mason Mount eru enn meiddir.
Markvarðarstaðan gæti orðið það athyglisverðasta í liðsvali dagsins. Altay Bayindir byrjaði sinn fyrsta Evrópuleik í vetur gegn Rangers en André Onana hefur verið mistækur í síðustu leikjum. Bayindir er ekki mest sannfærandi markvörður í heimi en hann gerði það sem til var hægt að ætlast á fimmtudag og verður ekki kennt um markið.
Joshua Zirksee átti ekkert verri dag en þá sem Rasmus Höjland hefur átt í framlínunni að undanförnu. Garnacho var ferskur og Amad Diallo leysti bakvarðarstöðuna. Kobbie Mainoo og Manuel Ugarte voru hvíldir framan af leik sem væntanlega þýðir að þeir byrja í kvöld.
Hjá Fulham eru þeir Kenny Tete og Reiss Nelson meiddir. Fulham vann Leicester fyrir viku en hefur annars gengið upp og ofan. Það hefur tilhneigingu til að gera jafntefli, alls níu í 22 leikjum, þar af sex í tíu deildarleikjum síðan í desember. Þar á meðal voru stig gegn Arsenal og Liverpool, auk sigurs gegn Chelsea en líka jafntefli gegn Southampton. Liðið er ofar en United í töflunni, með 33 stig í 10. sæti meðan United er með 26 í því þrettánda.
Leikurinn hefst í kvöld klukkan 19:00
Steve Bruce says
Ágætur sigur á erfiðum útivelli. Hefðum með réttu átt að vinna 0-2. Algjörlega óskiljanlegt að rangstaða hafi verið dæmd á Amad. Það er alveg ljóst að eitthvað þarf að breytast í meðferð á ranstöðureglunni með hjálp var. Hið nakta auga gaf til kynna að Amad væri vel réttstæður.
United er ekki að bjóða upp á mikið fram á við. Því miður virðast hvorki Hojlund né Zirkzee vera réttu mennirnir til að leysa framherjavanda félagsins. Ég hef talað um það áður hér að ég hefði viljað sjá félagið leita í framherja hjá öðru úrvalsdeildarliði – framherja sem er búinn að vera að spila í PL og því minna óskrifað blað. Justin Kluivert kæmi sannarlega til greina sem og Alexander Isak.
dr. Gylforce says
Flott og fróðleg upphitun en er eitthvað að frétta af samantekt af leiknum??? Þessi dægrin verða hlutirnir að gerast hratt eða eins og segir – tíminn líður hratt á gervihnattaöld. Koma svo!!!