Október byrjaði skelfilega, síðan kom landsleikjahlé og góður sigur gegn Everton en síðan fjögur jafntefli í röð (þar af eitt sem endaði í vítakeppnistap), ekki jafn gaman og í september.
Leikir í október
- Arsenal 3:0 Manchester United
- Everton 0:3 Manchester United
- CSKA 1:1 Manchester United
- Manchester United 0:0 Manchester City
- Manchester United 0 (1) : (3) 0 Middlesbrough
- Crystal Palace 0:0 Manchester United
Tilnefndir eru:
David de Gea fékk á sig þrjú mörk á fyrstu tuttugu mínútunum gegn Arsenal, en það sem eftir var mánaðar aðeins eitt mark, og það eftir að hafa varið vítaspyrnu.
Dave saves, svo einfalt er það
Chris Smalling er tilnefndur þriðja mánuðinn í röð. „Magic Mike“ var lengi að koma til hetjudáð hans í gærkvöld telur ekki fyrr en í næsta mánuði, en nóg var það nú annað.
Marcos Rojo, Markús rauði er þriðji maðurinn úr öftustu línunni sem við tilnefnum. Hann hefur tekið að sér vinstri bakvörðinn í fjarveru Luke Shaw og gert það með stakri prýði.
Ander Herrera fær ekki alltaf tækifæri og hann gerir minnstu mistök er hann settur út úr liðinu. En hann byrjaði þrjá leiki í mánuðinum og þegar hann er með er önnur og betri holning á liðinu. Að auki skoraði hann eitt af mörkunum gegn Everton. Þess vegna er hann tilnefndur.
Anthony Martial er búinn að vera fastur úti á kanti í mánuðinum en hann skoraði markið sem bjargaði stiginu í Moskvu og það er skemmtilegra að horfa á tilþrifin hans en annarra.
Kosningin
[poll id=“16″]
Robbi Mich says
Hvar er Rooney?
Arnar says
Hvar er Mike?
Bjarni Ellertsson says
DeGea fær mitt atkvæði, er að verja úr dauðafærum og heldur okkur inní leikjum. Smalling á þetta einnig skilið sérstaklega fyrir fórnina í gær.
Rúnar Þór says
fórnin á móti cska tengist ekki október Bjarni ;)
Bjarni Ellertsson says
Hehe, alveg rétt Rúnar, þá kýs ég bara Smalling fyrir leikmann Nóvember fyrir fórnina á móti cska. Verður erfitt að toppa hana :)