Loksins er leyndarmálinu sem öll vissu ljóstrað upp.
🇳🇱👔
The new First-Team Manager of Manchester United: Erik ten Hag.#MUFC || #WelcomeErik
— Manchester United (@ManUtd) April 21, 2022
🇳🇱 Made in the Netherlands. Ready for Manchester.
🔴 Erik ten Hag's next step is United.#MUFC || #WelcomeErik pic.twitter.com/SwsCwFja10
— Manchester United (@ManUtd) April 21, 2022
Fylgst með Ten Hag
Lið hans Ajax spilaði á páskadag til úrslita um hollenska bikarinn gegn PSV Eindhoven.
Eflaust eru einhverjir betur inni í hollenskum fótbolta og Ajax heldur en ég, en undanfarna mánuði hafa skapast nokkur tækifæri til að horfa á Ajax. Samhliða hrakförum Manchester United gegn Atletico Madrid í Meistaradeildinni gat ég haft annað augað á Ajax – Benfica. Það kvöld lá Ajax á Benfica, vann boltann hátt og átti sæg af tækifærum en að lokum var það annar eftirsóttur einstaklingur, Darwin Nunez, sem skoraði úr eina færi Benfica.
Ég náði líka lokamínútum í Groeningen – Ajax. Þar var Ten Hag dúðaður inni í úlpu og með húfu á hliðarlínunni. Ajax var í smá brasi en þriðja markið í 1-3 sigri kom í blálokin eftir bolta sem vannst af varnarmanni heimaliðsins við miðlínu. Lið Ten Hag eru einmitt sögð spila hápressu og leggja áherslu á að vinna boltann framarlega af mótherjanum.
Stuðningsmenn Manchester United hafa eflaust fengið að heyra ýmislegt um ágæti og feril Ten Hag síðustu mánuði, að minnsta kosti nóg til að meirihluti þeirra – sem og stjórnendur félagsins – virðast sannfærðir um að hann sé rétti maðurinn til að rétta við United-skútuna.
Maður með skoðanir
En það má fara stuttlega yfir það helsta. Ten Hag er alinn upp í bæ nærri Twente, foreldrar hans eru fasteignasalar og fjölskyldan ágætlega efnuð en Erik valdi þó frekar fótboltann en feril hjá fjölskyldufyrirtækinu. Hann er sagður hugsa stöðugt um fótbolta og alltaf hafa verið tilbúinn að spyrja og hafa aðrar skoðanir en flestir aðrir.
Hann spilaði sem miðvörður og átti þokkalegan feril sem atvinnumaður á tíunda áratugnum, lengst af hjá Twente. Hann fór síðan að þjálfa hjá félaginu og var meðal annars aðstoðarmaður Steve McClaren, aðstoðarmanns Sir Alex Ferguson árið 1999. Hann byrjaði sem aðalþjálfari hjá Go Ahead Eagles, ráðinn af Marc Overmars og kom liðinu upp um deild en varð síðan aðstoðarþjálfari Pep Guardiola hjá Bayern München. Það kom mörgum á óvart, flestir héldu að Ten Hag myndi halda áfram að klífa metorðastiga aðalþjálfara en hann valdi í staðinn að auka við þekkingu sína.
Hann snéri síðan aftur til Hollands, tók við Utrecht og kom liðinu í Evrópukeppni áður en Overmars, nú orðinn yfirmaður hjá Ajax, hringdi aftur í Ten Hag sem hefur verið aðalþjálfari Amsterdam-veldisins síðan í desember 2017. Bæði þjálfarinn og leikmennirnir slógu i gegn á leið liðsins i undanúrslit Meistaradeildarinnar 2019, einkum fyrir að hafa yfirspilað Real Madrid. Fyrir þann leik var reyndar talað um að starf Ten Hag væri í hættu.
En meðan lykilleikmenn fóru hélt Ten Hag áfram og byggði upp nýtt lið samhliða því að gefa ekki eftir í deildinni í Hollandi. Nú hyllir hins vegar undir að bæði þjálfarinn og fjöldi leikmanna fari.
Leikmenn sem leikið hafa undir Ten Hag tala um að hann hafi gott auga fyrir smáatriðum en sé kröfuharður, bæði innanvallar sem utan. Slíkt gæti orðið erfiðra, eða umdeildara, í stórliði á borð við Manchester United. Einstakir leikmenn hafa lýst honum sem leiðinlegum meðan flestir segja Ten Hag sýna þeim umhyggju. Honum hefur jafnvel tekist að hafa stjórn á mönnum sem hafa orð á sér fyrir að vera erfiðir, eins og Marco Arnautovic. Eins á eftir að koma í ljós hversu vel leikmennirnir laga sig að leikaðferðum hans. Hann hefur líka orð á sér að vera hreinskiptinn, jafnvel hrokafullur, í samskiptum við blaðamenn. Kannski er dálítill Louis van Gaal í honum.
Hálft liðið á förum
En hvað gerðist á páskadag og hvaða ályktanir er hægt að draga? Varast ber að álykta út frá einum leik og kannski sú slær staðreynd að Ajax tapaði aðeins á bjartsýni stuðningsmanna United. Leikurinn gat reyndar dottið hvoru megin sem var, tvö mörk voru dæmd af liðinu vegna rangstöðu, það virtist snuðað um víti auk fleiri væra. En það var líka dæmt mark af PSV og það fékk fín færi.
Ajax komst yfir um miðjan fyrri hálfleik. Ryan Gravenberch skoraði með fínu langskoti eftir samspil við Davy Klaasen. Gravenberch er 20 ára gamall miðjumaður sem United gæti eflaust nýtt sér. Hann er stór, 1,90 metrar en á auðvelt með að finna sendingaleiðir á milli varnarmanna andstæðinganna sem kemur samherjum hans í góðar stöður. Um margt minnir bæði leikstíll og líkamsburðir hans á Paul Pogba. Þegar leið á bikarúrslitaleikinn var Gravenberch kominn aftastur til að senda boltann fram á við. Hann slapp einu sinni að fá gult í staðinn fyrir rautt spjald fyrir að brjóta á PSV-manni sem var sloppinn í gegn. Synd að Bayern München virðist hafa tryggt sér hann.
Af einstökum leikmönnum Ajax var hann helst sá sem vakti athygli en hálft liðið hefur verið orðað við United. Vængmaðurinn Anthony var ekki með, er meiddur út tímabilið en miðvörðurinn Jurriën Timber spilaði 90 mínútur. Hann staðsetur sig vel og er vel spilandi en nær ekki 180 sm. hæð, sem gæti skapað honum vandræði í skallaeinvígum í enska boltanum.
Gamli United-maðurinn Daley Blind spilaði 90 mínútur sem vinstri bakvörður. Það segir sitt um hollenska boltann að hann leit vel út. En hann sýndi bæði styrki sína og galla frá United. Blind er afar vel spilandi leikmaður, það reyndist nokkrum sinnum vel hjá van Gaal að hafa miðvörð sem gat sent 40 metra sendingar en hann vinnur engin spretthlaup. Nefna má líka framherjann Brian Brobbey sem er líkamlega þroskaðri en flestir 20 stráklingar. Hann er með samning við RB Leipzig.
Ajax spilaði fótbolta, PSV barðist
Framan af tímabilinu í hollensku deildinni fékk Ajax varla á sig mark, þeim hefur aðeins fjölgað síðustu vikur. Þrátt fyrir að mikið sé látið með Ten Hag og Ajax er liðið ekki með neina yfirburðaforustu í deildinni, fjögur stig á PSV. Þó má segja að PSV er með gott lið og fínan stjóra, Þjóðverjann Roger Schmidt, einn úr Red Bull skólanum. Hann hættir eftir tímabilið.
Talsvert er talað um að Ten Hag hafi endurbyggt lið sitt árlega. Það gerir PSV líka. Bæði lið eru samsett úr ungum leikmönnum sem verða seldir og gömlum leikmönum sem ekki eru lengur nógu góðir fyrir stærstu deildirnar. Þannig er Mario Götze, sem skoraði sigurmarkið á HM 2014, hjá PSV í dag. Eftir stendur þó að markaðsvirði Ajax er tvöfalt hærra en PSV samkvæmt Transfermarkt.
Sem fyrr segir var Ajax liðið sem var meira með boltann. Hann gekk vel manna á milli, þótt halda megi því fram að vantaði hafi fleiri afgerandi marktækifæri. Á móti sýndi PSV gríðarlega líkamlega baráttu og beitti flottum skyndisóknum. Mörkin komu með stuttu millibili í byrjun seinni hálfleiks, það fyrra skalli eftir fast leikatriði, hið seinna eftir að náð slakri hreinsun varnarmanna Ajax. Nafn þess sem skoraði sigur markið, Cody Gakpo, gæti átt eftir að heyrast oftar.
Þarna mættust því tveir ólíkir leikstílar og lið sem ekki munar miklu á. Ten Hag reyndi þegar leið á leikinn að skipta um kerfi og þótt það hafi ekki virkað til fulls vantaði ekki mikið upp á að Ajax næði jöfnunarmarkinu. Það tók líka fulla áhættu, Gravenberch mættur í vörnina en Blind í sóknina til að vinna skallaboltana.
Með liðsuppstillingu sinni sýndi Ten Hag að hann er tilbúinn að taka stórar ákvarðanir. Marten Stekelenburg var í markinu í stað André Onana. Það hefur víst verið vesen í tengslum við félagaskipti Onana til Inter Milan.
Eftir stendur að tíminn einn leiðir í ljós hvort Ten Hag sé réttur kostur fyrir United. Þótt hann hafi ekki unnið bikarinn var lið hans tilbúið í alvöru bikarúrslit. Sjálfur var Ten Hag að þessu sinni berhöfðaður á hliðarlínunni með skallann og sýndi heilmikla ástríðu, fagnaði markinu ákaft og var eins og liðið til í slaginn.
Elis says
Jæja en og aftur nýr stjóri og þá fara væntingar upp að núna séu betri tímar framundan hjá Utd.
Fyrsta slúðrir segir að hann fái 200m punda til að eyða í sumar en vandamálið hefur alls ekki verið að liðið hafi ekki verið að eyða seðlum( liðið hefur eytt svipað og Man City undanfarinn 10 ár) heldur hvaða leikmenn eru keyptir.
Þessi gaur er að koma úr Hollensku deildinni og er sú deild alls ekki sterk þótt að hann hafi búið til gott Ajax lið þar og er stökkið á milli Hollensku og Ensku mjög stórt.
Hann fer úr því að sannfæra unga leikmenn sem vilja ná langt um að fylgja sér og ná árangri í að reyna að ofdrekkraða milljónamæringa til að hreyfa á sér rassgatið og fórna sér fyrir liðsheildina.
Poch hefði vitað nákvæmlega hvað hann væri að fara í en Erik er mun meiri óvissa.
Moyes – Sir Alex er farinn en hann treysti þessum gaur til að taka við af sér(kannski vildi hann fá einhvern sem myndi láta hann sjálfan líta extra vel út). Þetta var skelfilegt.
Giggs – Fékk ein mánuð til að stjórna á meðan að þeir voru að leita af eftirmanni og hér var ekkert að frétta.
Van Gaal – Kominn stjóri sem var flokkaður í hæðsta gæðaflokki. Hann hefur unnið víða og með mikla reynslu en aftur gekk þetta ekki eftir.
Móri- Það var bara sagt fuck it. Fáum stjóra sem nær alltaf árangri, ekki alltaf fallegt en árangri mun hann ná. Hann náði litlum sem engum árangri.
Ole – aaaa en sæt Norðmaðurinn með barnsandlitið og söguna kom með smá krafti inn í þetta og viti menn hann fékk bara strax langtímasamning. Það sáu það allir sem vildu að hann réði aldrei við þetta starf. Hann hafði hvorki þekkinguna né getuna og var hlegið að liðinu af andstæðingum þess.
Carrick – Fékk aðeins að prófa að stjórna áður en næsti kom inn. Hér var lítið að frétta.
Rangnick – Muniði eftir öllum jákvæðu póstunum og voninni sem fylgdi þessum manni. Gaurinn sem átti að hafa kennt Klopp og fleirum að pressa. Stjórinn sem myndi láta menn fylgja sér og koma með alvöru hugmyndafræði. Hann átti að byrja að stjórna og ef vel gengi kannski halda bara áfram eða í versta falli fara bakvið tjöldin að aðstoða( ég veit ekki hvort að menn vilja hann í aðstoð í dag).
Hann hefur nákvæmlega ekki getað rassgat og leikmenn eru ekki að fylgja honum og var þetta alltof stórt stökk fyrir hann.
Erik – Það er smá Rangnick lykt af þessum manni. Stjóri sem hefur gert góða hluti með Ajax( sá þá samt detta út gegn lélegu Benfica liði í meistaradeild) en ekkert víst að hann átti sig á því að enskadeildinn er allt annað skrímsli.
Þetta kemur allt saman í ljós en ég held að stuðningsmenn Utd eru fyrir löngu hættir að fara með væntingar hátt upp eftir allt sem undan hefur gengið.
Sveinn says
Við hverju býst þú varðandi Rangnick að hann komi og strái einhverju töfra dufti yfir illa samansettan hóp?
Maðurinn var aldrei hugsaður sem langtíma stjóri en hann fær milliliðalausa reynslu af öllum samskiptum þjálfara við yfirmenn. Hann er nú þegar byrjaður að láta vita hvað honum finnst um það..
Ef þessi klúbbur þarf eitthvað þá er það maður sem talar umbúðalaust og það er Rangnick að gera megi hann halda því áfram sem lengst og breyta hlutunum því það er það sem Manchester United þarf.