Hörmulegt gengi Manchester United í þessari Super Cup keppni heldur áfram en nánar má lesa í upphitunarpistlinum fyrir þennan leik. Fyrir leik kom einnig fram að United hefur áfrýjað banni Phil Jones.
Förum samt sem áður aðeins yfir leikinn. United byrjaði eins og við bjuggumst við í 3-5-1-1 leikkerfi en það sem kom á óvart var Jesse Lingard í hlutverki vinstri vængbakvarðar. Eflaust var það til þess að hægt væri að skipta um leikkerfi í miðjum leik, sem José gerði, og svo að United hefði varnarmann á bekknum en Daley Blind var eini varnarmaðurinn á tréverkinu.
Byrjunarliðið var því svona, byrjaði þó í 3-5-2 en færði sig svo yfir í meira 4-3-3 eftir að liðið lenti undir.
Varamannabekkurinn: Romero, Blind, Carrick, Fellaini, Mata, Martial og Rashford.
Byrjunarlið Real Madrid: Navas, Carvajal, Varane, Ramos, Marcelo, Casemiro, Kroos, Modric, Isco, Bale og Benzema.
Fyrri hálfleikur
Looks like United are in a back three. Darmian playing on the left of Smalling and Lindelof. Lingard the left wing-back, Valencia right.
— Rob Dawson (@RobDawsonESPN) August 8, 2017
Fyrstu tíu mínúturnar voru ágætar. Bæði lið virtust ætla að spila stífa vörn en það var ljóst að þegar Real Madrid var ekki með boltann þá voru þeir fljótir niður í stöður ásamt því að línan þeirra var mjög aftarlega. Mögulega ástæða var líka hversu óhemju hægar sóknaraðgerðir United voru – Real menn gátu alltaf rölt niður í stöður og stillt sér upp.
Hægt og rólega tóku Real menn þó yfir leikinn og á endanum var það Casemiro, sem skoraði líka í æfingaleik liðanna, sem kom Real yfir eftir sendingu frá Dani Carvajal. Það gleymdist algjörlega að setja pressu á Carvajal sem setti boltann yfir höfuðið á Lindelöf þar sem Casemiro kom á blindu hliðina á honum og skoraði. Enn og aftur virðast það vera samskiptaörðugleikar sem hrjá United en bæði David De Gea og fyrirliði liðsins í kvöld, Antonio Valencia, hefðu átt að láta Lindelöf vita af hlaupinu.
Svo hefði Valencia sjálfur ef til vill átt að elta Casemiro.
Casemiro got in between Lindelof and Valencia. Lindelof got caught under the ball although Valencia probably should have gone with him.
— Rob Dawson (@RobDawsonESPN) August 8, 2017
Eftir þetta átti United fá svör við leik Real Madrid og gekk liðinu illa að búa sér til færi eða loka almennilega á Real. Hitinn virtist líka spila sitt hlutverk en leikmenn United virkuðu mjög svifaseinir þrátt fyrir að fá vatnspásu á 30. mínútu. Eini leikmaður liðsins sem leit virkilega vel út í fyrri hálfleik var Nemanja Matic en hann var eins og herforingi á miðri miðjunni. Bæði Paul Pogba og Ander Herrera virtust hins vegar alveg týndir.
Síðari hálfleikur
Mourinho gerði eina breytingu í hálfleik en Marcus Rashford kom inn á fyrir góðvin sinn Jesse Lingard. Við það var ljóst að United myndi spila 4-3-3 í síðari hálfleik. David De Gea byrjaði allavega síðari hálfleikinn vel en þá varði hann gott skot Toni Kroos í horn en United virtustu hreinlega sofandi í byrjun síðari hálfleiks.
Það var svo endanlega staðfest þegar Real Madrid komust í 2-0 en þá tættu Isco og Benzema vörn Manchester United í sig og Isco kláraði af yfirvegun. Það virtist sem Isco hefði fellt Matic sem gat því ekki elt hann en að því sögðu var vörn Untied mjög stöð og það virtist sem bæði Valencia og Darmian væru að spila hann réttstæðan á meðan báðir miðverðir United settu hendina upp í veikri von um rangstöðu.
Class from Isco 👏👏👏#SuperCup pic.twitter.com/2VZxSxDIPd
— UEFA Champions League (@ChampionsLeague) August 8, 2017
Besta færi United kom strax í næstu sótt þegar Herrera átti góða sendingu í teiginn þar sem Pogba skallaði á markið. Navas varði en beint á Lukaku sem fékk hamraði knettinum yfir úr ákjósanlegu færi.
Mourinho gerði það sem Mourinho gerir eftir að Real komst í 2-0. Hann setti Marouane Fellaini inn á fyrir Ander Herrera.
Þegar sléttur klukkutími var liðinn af leiknum þá hefði Gareth Bale átt að slútta leiknum en frábært spil Real skilaði honum einum og á auðum sjó inn í vítateig United – þó í þröngu færi – en hann þrumaði knettinum í slánna. Sem betur fer. Í næstu sókn fékk United svo líflínu en þá átti Nemanja Matic þrumuskot fyrir utan teig sem Navas náði ekki að halda og Lukaku skilaði knettinum að þessu sinni í netið. Staðan allt í einu orðin 2-1 og United í smá séns.
https://twitter.com/CheGiaevara/status/895013861555929088
Á 72. mínútu gerðu Real sínar fyrstu skiptingar en þá komu Marco Asensio og Lucas Vazquez fyrir Gareth Bale og Isco. Fimm mínútum síðar þurfti Fellaini að fá aðhlynningu á vellinum vegna áreksturs við Sergio Ramos. Spilaði hann það sem eftir var af leiknum með umbúðir á höfðinu.
Á 80. mínútu fékk United svo hið fullkomna færi til að jafna metin en Rashford slapp í gegn en því miður var hann með boltann á vinstri fæti en ekki þeim hægri og Navas varði. Stuttu síðar trylltist svo allt á vellinum þegar Cristiano Ronaldo kom inn á. Það breytti ekki miklu fyrir hvorugt lið en United tókst ekki að finna jöfnunarmarkið og Real tókst ekki að bæta við og þetta tíst hér að neðan lýsandi fyrir síðustu 30 mínútur leiksins.
Strange game. Madrid have looked great in parts but United have looked decent (probably the better?) in the second half. And those chances..
— Alex Shaw (@AlexShawTel) August 8, 2017
Punktar
- Slök spilamennska en United var að spila á móti ríkjandi Spánar- og Evrópumeisturum. Það var ekki eins og liðið hafi tapað fyrir Watford. Einnig voru engir nýjir leikmenn í liðinu hjá Madrid á meðan United byrjaði með Lindelöf, Matic og Lukaku.
- Nemanja Matic leit einstaklega vel út – sérstaklega í fyrri hálfleik. Á meðan sást varla til Paul Pogba sem er áhyggjuefni.
- Eins frábær og Antonio Valencia er sóknarlega þá er hann svo skelfilega illa staðsettur varnarlega stundum að maður er nánast orðlaus.
- José Mourinho var óþarflega fljótur að henda Fellaini inn á og fara í hátt&langt. Að því sögðu þá gjörbreytti það leiknum.
- Mourinho hefði mátt henda í þriðju skiptinguna þar sem Carrick, Mata og Martial hefðu allir geta breytt einhverju í þessum leik.
- David De Gea var frábær en varnarleikur Manchester United var arfaslakur á köflum.
- ÞESSI HELVÍTIS FÆRANÝTING!? Hún kostaði liðið á síðasta tímabili og í dag klúðruðu bæði Lukaku og Rashford algjörum dauðafærum.
- 2-1 tap gegn Real Madrid er ekki dauði og djöfull en manni finnst eins og liðið þurfi að vera töluvert betra ef það ætlar sér að gera atlögu að ensku deildinni og tala nú ekki um Meistaradeildinni. En þetta var nú bara síðasti æfingaleikurinn á undirbúningstímabilinu svo það er öllum alveg sama um þennan leik.