Leikir þessa liða hafa oftar en ekki verið góð skemmtun oft var mikið skorað í þeim, hver man t.d. ekki eftir þrennunni hans Ronaldo í 6-0 sigri á Old Trafford 2008? Þetta var eina þrennan sem Ronaldo skoraði fyrir United.
Leikir þessa liða á síðustu leiktíð reyndust dýrkeyptir því við gerðum 1-1 jafntefli á heimavelli eftir að dómarinn gaf þeim víti, af því að United fá allar ákvarðanir á Old Trafford. Svo töpuðum við 3-0 á St. James’s Park, það tap skrifast alfarið á okkar lið.
Mikið er um meiðsli hjá báðum liðum en af okkur mönnum ættu Jonny Evans, Ryan Giggs og Michael Carrick að vera orðnir góðir á meðan Steven Taylor, Yohan Cabaye, Fabrico Coloccini og Tim Krul eru allir meiddir hjá heimamönnum að ógleymdum Ryan Taylor sem verður ekkert með fyrr en í Mars.
Liðið sem ég vil sjá:
De Gea
Rafael Ferdinand Evans Evra
Cleverley Scholes Anderson
Rooney
van Persie Welbeck
Ég verð að viðurkenna að ég veit ekki alveg nógu mikið um Newcastle til að spá fullkomlega um byrjunarlið en líklega verður það svona:
Harper
Simpson Williamson Perch Santon
Ben Arfa Anita Tiote Jonas
Cisse Ba
Leikurinn hefst klukkan klukkan 15.
Ég spái 3-1 United sigri, Rooney og van Persie munu sjá um markaskorunina.
Dagur Björnsson says
Uppstilling þín lítur vel út.
Var að heyra að Chris Smalling sé mættur aftur en frekar líklegt að hann verði á bekknum.
Ég vil einhverra hluta vegna sjá Hernandez í staðinn fyrir Welbeck í þessum leik, hann verður að fara fá einhverja leiki í byrjunarliðinu til þess að komast í gang með mörkin.
ásgeir says
ég vill sjá butner spila þennan leik… er komið með nóg af evra, engin barátta í honum lengur þegar hitt liðið blæs í sókn.
DMS says
Ég vil sjá okkur spila með vængmenn. Við náum miklu betur að teygja á liðum sem falla aftarlega gegn okkur með því að spila með vængmenn.
Svona vil ég sjá liðið:
De Gea
Rafael – Rio – Evans – Buttner
Nani – Cleverley – Carrick – Kagawa
Rooney – RvP
Veit reyndar ekki hvort Valencia er orðinn góður af meiðslunum, gerði ráð fyrir því að hann væri enn meiddur.
Ég held það verði kraftaverk ef við sleppum í gegnum þennan leik án þess að fá á okkur mark, þannig að það er eins gott að sóknarleikurinn hjá okkur verði þeim mun betri. Cisse og Ba munu láta varnarlínuna hjá okkur þurfa að hafa fyrir hlutunum, held það sé alveg á hreinu.
Geiri says
Er Kagawa meiddur?, allavegana vill ég sjá hann fyrir aftan rooney og rvp, annars ertu með gucci lið!
Elías Kristjánsson says
Vonast svo sannarlega eftir sigri í þessum leik….megum ekki dragast meira afturúr….
Sigursteinn Atli Ólafsson says
Kagawa meiddur?
Ef ekki , vil ég sjá RVP og Rooney fremst og Kagawa i holunni
Bjarni Þór Pétursson says
4-2-3-1
De Gea
Rafael – Ferdinand – Evans – Buttner
Carrick – Scholes
Nani – Rooney – Kagawa
RVP
Jón says
mér finnst að fergie ætti að halda sig við 4-4-2 uppstillinguna… Bakverðirnir þurfa að fá hjálp frá könturunum… hefur margsýnt sig í vetur þegar við erum með 3manna miðju að það eru 2menn að sækja á evra og hann einfaldlega ræður ekki við það, og efa að buttner geri það e-h frekar. Kagawa ætti bara að vera settur á vinstri og Nani á hægri(á meðan Valencia er meiddur annars ætti hann að vera á hægri) RvP og Rooney frammi.
Narfi Jónsson says
Held ég myndi frekar vilja sjá Rooney eða Welbeck á öðrum kantinum en Kagawa.