Fjármál eru líklega það leiðinlegasta sem nokkur fótboltaáhugamaður hlustar á, en síðan í maí 2005 þegar Glazer-fjölskyldan tók United yfir og hlóð öllum skuldum yfirtökunnar á félagið hefur það verið eitt af því sem United áhugamenn hafa þurft að fylgjast náið með. Ég bið samt fyrirfram afsökunar á neðangreindu.
Í gær voru birtar niðurstöður fyrsta fjórðungs fjárhagsárs rekstrarfélags Manchester United, fyrir júlí-september.
Helstu niðurstöður voru sem hér segir:
- Fyrsti ársfjórðungur er alltaf rólegur, er alla jafna um 15% af hagnaði ársins.
- Tekjur hækkuðu um 3,4% frá sama fjórðungi fyrra árs.
- Tekjur af leikdögum hækkuðu vegna Ólympíuleikanna.
- Auglýsingatekjur hækkuðu um 24%, einn þriðja af þeirri hækkun má rekja til nýja auglýsingasamningsins við Chevrolet.
- Tekjur af sjónvarpi og öðrum miðlum lækkuðu um 37%, m.a. vegna tímasetningar leikja í Meistaradeild og beinum útsendingum í deildinni. Tveimur færri leikjum í deild og einum í Meistaradeild var sjónvarpað m.v. sama tíma í fyrra.
- Launakostnaður hækkaði um 6,5%. Í raun var hækkunin 10% en á móti komu greiðslur vegna þáttöku leikmanna í Evrópukeppni landsliða.
- Annar kostnaður hækkaði um 18%.
- Nettófjármagnskostnaður lækkaði úr 19,3m pundum í 12,4m pund. Þetta má rekja til áhrifa frá gengisþróun dollars! Þarna er um að ræða helming árskostnaðar þar sem vextir af skuldabréfi félagsins eru greiddir á hálfs árs fresti. Heildarvaxtagreiðslur á ári eru því um 24m punda, eða sem nemur einum Robin van Persie.
- Tap fjórðungsins var 6m punda, en sem fyrr segir er þetta ekki merkilegasti fjórðungur ársins hvað veltu varðar. Skattalega séð var 20m punda hagnaður þar sem félagið bjó yfir 26,4m punda skattaívilnun út af endurskipulagning rekstrar. Þetta skattahagræði hefur þó í raun lítil áhrif á rekstur félagsins.
- Skuldir félagsins eru nú 359,7m punda, félagið á 52,5m punda í reiðufé og nettóskuld því 307,2m punda. Skuldirnar lækkuðu þar sem 62,7m punda af tekjum af hlutafjárútboðinu voru notaðar til kaupa til baka skuldabréf, og einnig voru gengisáhrif jákvæð sem fyrr sagði.
Heildarkostnaður við yfirtökuna stendur nú í 550m pundum. Til samanburðar má áætla að arðgreiðslur ef félagið hefði áfram verið skráð hlutafélag hefðu verið um 71,3m punda á þessum árum.
Hlutabréfin hafa verið að rokka í verði milli 12 og 13 dollara á hlut, stundum rúmlega það eftir að hafa farið í sölu á 14 dollara hluturinn (eftir að upphaflega var stefnt á 16-20).
Niðurstaðan: Hlutafjárútboðið lækkaði skuldir eins og vitað var. Laun eru enn að hækka stöðugt, en tekjur að aukast. Auglýsingadeildin er mjög grimm í þessu og menn þar búast við frekari tekjumöguleikum. Í vikunni voru fréttir um að nýir alþjóðlegir sjónvarpssamningar myndu auka tekjur ensku liðanna enn frekar. Þeim tekjum er skipt alfarið jafnt milli félaga þannig að United fær þar sama og aðrir. Eftir sjö ára streð eru vaxtagreiðslur loksins farnar að minnka eftir útboðið í ár, og frekar leyndardómsfulla skuldalækkun í fyrra sem aldrei hefur verið upplýst hvernig var fjármögnuð.
Fyrir þá sem vilja fylgjast náið með fjármálunum er ekki hægt að mæla með neinu meira en @andersred og blogginu hans. Við munum auðvitað alltaf koma með helstu fréttir hér.
Gunnar Þórir says
Fínt að fá smá yfirlit yfir þessi mál og ég er ekki sammála að fjármálatengdar greinar séu það leiðinlegasta sem hægt er að hlusta/lesa á í tengslum við boltann. Get hangið ansi lengi á http://swissramble.blogspot.com og lesið þar greinar.
Tryggvi Páll says
Það hlýtur að vera gríðarlegt keppikefli fyrir David Gill og Glazerana að verða búnir að ná skuldastöðunni niður í viðráðanlega stöðu fyrir daginn sem Sir Alex ákveður segja þetta gott. Það er mjög mikilvægt að næsti stjóri geti tekið við búinu í góðri stöðu með pening í kassanum því það er alls ekki víst (nánast öruggt) að sá ágæti maður getur ekki gert það sem Sir Alex hefur gert undanfarin fyrir eitthvað klink. Það er því jákvætt að sjá að þetta mjakast í rétta átt en betur má ef duga skal.
Nú í febrúar opnast 6 mánaða gluggi sem Nike hefur til þess að semja við félagið um nýjan treyjusamning sem myndi taka gildi árið 2015. Maður hefur heyrt tölur uppá 1 milljarð punda fyrir 13 ára samning nefndar sem myndi augljóslega sprengja alla skala sem fyrir eru um treyjusamninga. Ég hef að vísu ekki hugmynd um hvernig svona samningar eru samansettir. Bætum því við þennan stjarnfræðilega Chevrolet-samning og það er ljóst að auglýsingadeildin er að vinna fyrir kaupinu sínu. Mér skilst að þar á bæ hafi fjölgað um 100+ starfsmenn að undanförnu. Það er því eitthvað að gera hjá þeim.
DMS says
Borguðu ekki United upp einhvern samning við DHL fyrir stuttu? DHL voru með auglýsingar á æfingatreyjunum en markaðsdeildin hjá United virtist telja sig geta náð mun betri samning. Var kominn einhver annar auglýsandi á æfingatreyjurnar?
Það má segja ýmislegt um Glazerana, en markaðsdeildin hjá United hefur klárlega unnið fyrir sínu undanfarin ár, enda ekki vanþörf á miðað við þessar himinháu vaxtagreiðslur af lánum Glazerana.
Björn Friðgeir says
DMS: Jú nákvæmlega, samningurinn var keyptur upp, frá og með næsta sumri, þegar ættu að vera 2 ár eftir af fjögurra ára samningi. DHL verður á æfingatreyjunum þangað til. Það er ekki búið að semja við nýjan aðila.
Svo eins og Tryggvi Páll segir, næsti treyjusamningur gæti orðið eitthvað ofaná brauð.
Mikið væri nú gaman ef allir þessir peningar væru ekki að sogast ofan í skuldahítina…