Þótt ekki teljist hann kannske svakalega mjór hefur yfirþungavikt sjaldan háð jólasveini dagsins. Hann er að auki svo heppinn að eiga heilt veitingahús þar sem hann getur óhræddur sleikt þvörurnar ef í harðbakkann slær.
Rio Ferdinand kom til United sumarið 2002 fyrir metfé frá Leeds, eitthvað í kringum 30 milljón pund þegar allt er talið. Hann var þá dýrasti Breti sögunnar, dýrasti varnarmaður í heimi og er enn næst dýrasti leikmaður United. Þetta þóttu auðvitað vafasöm kaup á sínum tíma þó vitað væri að Ferdinand væri besti varnarmaður Englands á sínum tíma. En síðan þá er enginn vafi á því að Ferdinand hefur skilað sínu og vel það.
Hann á 410 leiki fyrir United, er með fimm deildarmedalíur í safninu og fleira smálegt og hefur síðustu 10 ár verið klettur í vörn United, lengst af í félagsskap Nemanja Vidic.
Skildu eftir svar