Yngri stuðningsmenn United skilja það væntanlega ekki, en í gamla daga var hægt að ganga frá leikmannaskiptum í enska boltanum án þess að það tæki tvo mánuði í upphitun í fjölmiðlum.
Í janúar 1995 kom síðasta leikmannaskiptafréttin sem ég man eftir að hafi komið mér gjörsamlega í opna skjöldu. Tilkynnt var að United hefði gengið frá kaupum á markahróknum Andy Cole frá Newcastle fyrir metfé. Newcastle stuðningsmenn brjáluðust, og United menn voru bara nokkuð ánægðir.
Næstu sjö árin setti Cole hann 93 sinnum í 195 deildarleikjum, og skilaði sínu og vel það.
En það var örlítið annað mál þegar kom að landsliðinu, þar skoraði hann 1 mark í 15 leikjum, reyndar flestum sem varamaður. En United mönnum var nokk sama þó að markastauturinn hans hafi verið stuttur þar, enda enska landsliðið aldrei í neinum forgangi meðal þeirra.
Skildu eftir svar