Það voru hvort eð er allir of uppteknir í dag til lesa þessa upphitun var það ekki?
Sú var tíð að jóladagur var fótboltadagur í Bretlandi en síðan eru 55 ár. Nú er það annar í jólum sem gegnir þessu hlutverki. Enn ein ástæðan fyrir þvi að jólin eru betri þegar þau eru í miðri viku!
Eftir fyrsta jafntefli leiktíðarinnar um helgina, sem lítil þörf er á að rifja upp, er komið að því að taka á móti Newcastle United. Newcastle hefur gengið illa í vetur eftir að hafa látið Alan Pardew stjóra sinn fá ekkert minna en átta ára samning. að er þó lítið annað en nafnið eitt, því hann mun víst aldrei fá meira en eitt ár greitt up ef honum er sagt upp.
En hvað sem því líður virðist Newcastle sem kemur í heimsókn ekki það skeinuhætta lið sem það var í fyrra. Þeir sigruðu QPR naumlega um helgina á heimavelli en hafa tapað síðustu þrem leikjum á útivelli og hafa enn ekki unnið úti á leiktíðinni. Cheik Tiote verður í banni á morgun og það eru góðar fréttir fyrir miðjubaráttuna sem hefur nú ekki verið okkar sterkasta hlið í vetur. Einnig eru menn á borð við Yohan Cabaye og Hatem Ben Arfa frá vegna meiðsla
Eftir liðsuppstillingu á sunnudaginn sem alls ekki var hægt að kvarta undan er ekki auðvelt að sjá fyrir liðið okkar. Við vitum að rótering er lykilorð í jólavertíðinni og ég ætla að skjóta á eftirfarandi
De Gea
Rafael Rio Vidic Evra
Valencia Cleverley Fletcher Welbeck
Hernandez Van Persie
Ég er að vonast til að Rafael verði orðinn góður af meiðslunum, býst fastlega við róteringu á miðjunni og held það sé illskárra að sjá Fletcher þar inni frekar en Scholes og þá sé liklegra hann komi inn fyrir Carrick en Cleverley. Welbeck er líklega okkar besti kantmaður í dag, því miður og allt eins líklegt að Young haldi sæti sínu eins og Valencia. Sá síðarnefndi vann í dag algerlega óformlega skoðanakönnun á Twitter hver hefði verið okkar slakasti maður í vetur. Það er hálf sorglegt að sjá hvað hann er orðinn ragur og allt annar leikmaður en hann hefur verið.
Miðvarðaparið er algert ágisk, gæti verið hvaða par sem er af þessum fimm sem allir eru heilir, en Ferdinand og Vidic ættu að fá tækifærið til að sýna að þeir séu enn okkar megin menn ef þeir eru leikfærir.
Ég hefði alveg þegið að hafa aðeins hættuminni lið á heimavelli en Newcastle og West Bromwich núna, til að geta notað menn eins og Powell í byrjunarliði og þá í tígli. Hugsa samt að við eigum eftir að sjá tígulinn gegn West Brom eða Wigan, en til þess þarf Anderson að vera heill og svo Kagawa sem fremstur í tígli eða Rooney. Á morgun þarfnast Rooney klárlega hvíldar eftir arfaslaka frammistöðu á sunnudag og ég spái að Chicharito fái að byrja.
En nóg um það. Jólagjöfin okkar i ár var fjögurra stiga forysta. Rétt’upp hönd öll þau sem hefðu þegið þá jólagjöf með þökkum ef hún hefði verið boðin í haust? Öll? Fínt. Og fjögurra stiga forysta með frammistöðu eins og liðið hefur oft sýnt í haust og við kvartað sárlega undan? Jafnvel betra!
Þannig við lítum á björtu hliðarnar og á morgun spái ég 2-0 sigri. Við erum jú með Robin van Persie. Og Javier Hernandez.
Vonum svo að jólin hafi verið jafn skemmtileg og hjá tvíburunum, Ángelo Henriques, litlu baun og aðalmarkmanni United.
United Stuðningsmaður says
Hver er staðan á Kagawa ? er hann ennþá meiddur ?
Björn Friðgeir says
Kagawa byrjaði æfingar á mánudag fyrir viku. Býst fastlega við honum á bekknum á morgun og síðan í byrjunarliði gegn WBA eða Wigan.
Axel says
ég held að carrick muni nú byrja frekar en fletcher
Stefan says
Carrick er búinn að vera spila mikið, held hann verði hvíldur og Fletcher fái leikinn, hann er mun betri að stoppa miðjuna en Carrick, og þar að auki var frábær á móti Newcastle um daginn.
Aron says
Fergie sagðist ætla að „rótera“ í liðinu um hátíðarnar en ég held að það muni vera mjög takmörkuð rótering. Við gerðum skelfilegt jafntefli við Newcastle á Old Trafford á síðustu leiktíð og Fergie mun ekki taka neina sénsa, hvað þá gegn West Brom sem eru með hörku lið og Wigan sem við töpuðum gegn á mikilvægum tímapunkti á lokasprettinum. Ég held að Rooney og Persie muni spila, eða byrja, alla leikina ef þeir kvarta ekki undan þreytu eða meiðslum, minnsta róteringin verður því fremst þó ég kysi að Hernandez fengi meiri spilatíma. Vörnin er kannski þægilegasti liðshlutinn til að hvíla menn en eins og Fergie sagði sjálfur þá er viss áhætta sem felst í því vegna hættu á óstöðugleika aftast. Fletcher mun fá tækifæri á kostnað Carrick held ég en ég vona að Cleverley haldi sínu sæti áfram. Young mun verða með í dag og Valencia einnig en ég hefði helst viljað sjá 4-3-3 í dag með Rooney, Persie og Hernandez þétt saman fremst, svo Cleverley, Fletcher og Jones á miðjunni og Rafael, Ferdinand, Vidic og Evra með De Gea í markinu. Mér finnst ólíklegt að Vidic verði með í dag, hann er nýkominn til baka úr slæmum meiðslum og má ekki spila með svo stuttu millibili þannig að ég spái því að Smalling detti inn í staðinn og verði við hliðina á Ferdinand. Ég spái 3-1 sigri fyrir okkar menn, Persie, Cleverley og Hernandez allir með eitt og Cissé setur hann fyrir Newcastle í dag því miður.
Jóhann Ingi says
Held því miður að við fáum alltof margar breytingar. Þetta verður þungt og erfitt. Spái 1 0 sigri með marki seint i leiknum. Starting eleven de gea evra rafa ferdinand smalling valencia welbeck scholes fletcher rooney chicharito.
Vona innilega að eg hafi rangt fyrir mér.
Héðinn says
Það kæmi mér ekki á óvart þó að van Persie fari að detta á bekkinn í einhverjum leik um hátíðirnar. Hann er eini leikmaður okkar sem er búinn að spila alla deildarleikina á þessu tímabili og hlýtur að þurfa hvíld eins og aðrir. Rooney þarf ekki hvíld, þvert á móti þá þarf hann leiki til að koma sér í almennilegt leikform aftur.
Það er kominn tími á hvíld hjá Carrick líka, en ég vona að það verði ekki í dag. Hann er svo mikilvægur fyrir miðjuna hjá okkur. Væri frekar til í að hann fengi hvíld gegn Wigan.