Eftir vonbrigðin á mánudaginn hefur forysta okkar minnkað niður í 12 stig. Til þess að trygga titilinn þá vantar okkur 10 stig í viðbót að því gefnu að City vinni rest.
Það er ekki beint hægt að sjá að það hafi verið meistarabragur á United síðan í byrjun marsmánaðar. Allir stóru leikirnar hafa tapast undanfarið og munar um það að Robin van Persie virðist vera fyrirmunað að skora en hann hefur ekki skorað í um 700 mínútur. Wayne Rooney hefur skorað nokkur mikilvæg mörk og sýnir það hversu nauðsynlegt það er að hafa nokkra góða framherja. Þetta mark Rooney gegn Norwich var valið mark marsmánaðar hjá ManUtd.com. Ashley Young er meiddur og verður frá í 2 vikur.
Stoke hafa verið í frjálsu falli síðustu misseri og hafa bara unnið 2 af síðustu 12 leikjum. Stoke situr í 15.sæti og er stigum frá fallsæti. Þetta ætti að teljast skyldusigur og ekki væri leiðinlegt að vinna með nokkrum mörkum.
Síðasti leikur liðanna sem fór fram á Old Trafford fór 4-2 fyrir United, Rooney skoraði einmitt eitt marka Stoke í þeim leik.
Dómari leiksins er Jon Moss frá Yorkshire. Hann hefur á þessari leiktíð gefið 77 gul spjöld og 1 rautt í 27 leikjum. Síðasti leikur sem hann dæmdi hjá okkur var 2-0 sigur gegn West Brom 29.desember.
Leikurinn hefst kl. 13:05
Mín spá á byrjunarliði er svona:
De Gea
Rafael Ferdinand Vidic Evra
Welbeck Cleverley Carrick Nani
Rooney
van Persie
PS: Minni á #Djöflarnir ef þið eruð á twitter, bestu tístin enda í leikskýrslu.
Egill Guðjohnsen says
Byrjar ekki leikurinn kl.13:05?
Egill Guðjohnsen says
Já þarna er það sá það ekki. Fór svo neðar í leikskýrslunni.
Ingi Rúnar says
Persie setur hann á morgun, 3-0 fyrir okkur
Valtýr says
Það hlýtur að fara rigna mörkum frá RVP.
DMS says
Sleppum bara að stilla upp kantmönnum, þeir hafa hvort sem er ekkert getað á þessu tímabili. Hvernig hljómar 4-2-2-2 ?
Annars er virkilega mikilvægt að sigra þennan leik. Mjög óþægileg tilhugsun að City geti náð muninum í 9 stig, flashback síðan í fyrra í gangi.
hannes says
óvænt tap á morgun ,9 stig og við eigum ennþá chelsea og arsenal eftir. megum ekki tapa a morgun
diddiutd says
Enga svartsýni gott fólk :) gloryglory
Heiðar says
Ætla að vera bjartsýnn og spá 0-1 sigri. Þessi leikur er held ég mun mikilvægari en af er látið, enda eigum við erfiða leiki eftir. Næst verður farið á Upton Park og ekki hafa nú alltaf náðst 3 stig þar.