Það er ekki nema rétt tæplega tveir mánuðir í að nýja tímabilið hefjist og í dag kom út leikjaáætlunin fyrir næsta tímabil. Ef Moyes var ekki nú þegar í djúpu lauginni er nokkuð ljóst að það er búið að sprengja sundkútana hans. Hann fær einhverja erfiðustu byrjun sem ég man eftir að United hafi fengið. Fyrstu 5 leikir eru eftirfarandi:
Swansea (úti) – 17. ágúst
Chelsea (heima) – 24. ágúst
Liverpool (úti) – 31. ágúst
Crystal Palace (heima) – 14. september
Man City (úti) – 21. september
Þrír af erfiðustu leikjunum yfir tímabilið í fyrstu fimm leikjunum. Alvoru þolraun fyrir David Moyes sem mun ekki fá neinn aðlögunartíma í starfi.
Einnig má nefna að Liverpool kemur á Old Trafford þann 15. mars nk og City heimsækir okkur þann 1. mars nk. Síðasti leikur tímabilsins er svo settur á 11. maí og er hann gegn Southampton á útivelli.
Ef maður skoðar leikina sem United spilar helgina eftir leiki í riðlakeppni Meistaradeildarinnar er ljóst að við hefðum getað verið heppnari. Fjórum sinnum spilum við útileiki í kjölfarið á Meistaradeildarleik, þar af gegn City og Tottenham. Þá er eftir tveir heimaleikir og er annar þeirra gegn Arsenal. Hefði getað verið þægilegra en menn taka þessu bara.
Þess ber að geta að sjónvarpsstöðvarnar í Bretlandi eiga auðvitað eftir að vasast eitthvað í þessu og því viðbúið að dagsetningarnar færist eitthvað til.
Þetta er auðvitað gríðarlega strembin áætlun og tvíeggjað sverð. Ef vel gengur fær Moyes skriðþunga í byrjun sem myndi sefa raddir efasemdamanna en ef illa gengur munu þeir fá byr undir báða vængi og setja meiri pressu á Moyes sem er auðvitað alveg nóg fyrir.
ellioman says
Þetta er nottla svakaleg byrjun á tímabilinu! Það verður alvöru pressa á Moyes frá byrjun.
Hannes says
nei ertu að grínast með að Southampton úti er í Mai. vá þarf að bíða nánast heilt ár til að fara á leikinn. vona þeir tryggji titilinn þar ;)
ellioman says
Hress grein um Thiago og líkurnar á að hann komi til United
http://therepublikofmancunia.com/see-you-in-manchester-thiago/