Í dag gengu tveir nýir þjálfarar til liðs við United. Ólíkt síðustu nýliðunum í þjálfarateyminu er algerlega óþarft að kynna þessa menn eitthvað frekar
[one_half]
[/one_half]
[one_half_last]
[/one_half_last]
Að auki er Robbie Cooke kominn frá Everton, hvað annað, til að taka við stöðu yfirspæjara.
Í gær var staðfest öllum að óvörum að Mats Møller Dæhlie, einn af efnilegri leikmönnum unglingaliðsins hefði gengið til liðs við Ole Gunnar Solskjær hjá Molde. Nokkur missir að honum úr unglingastarfinu en ekki virðist ljóst hvers vegna hann snýr heim, hvort honum finnist hann ekki ná framförum eða einfaldlega sé haldinn heimþrá.
Að lokum liggur við að maður fari að halda að stóra Thiago málið fái enda. Nú keppast fréttaveitur (ESPN og AP nú síðast) að halda því fram að Thiago hafi meira eða minna náð samkomulagi við United og aðeins sé eftir að slá smiðshöggið. Það væri ekki leiðinlegt að sjá það tilkynnt á morgun!
Tryggvi Páll says
Nú er maður farinn að leyfa sér að búast við því að kaupin á Thiago verði fyrstu alvöru kaup Moyes. Ég sá reyndar athyglisverða pælingu á Twitter um að Thiago ætti ekki að mæta til æfinga hjá Barcelona fyrr en 15. júlí og því myndi kannski dragast að allt húllumhæið fari í gang, læknisskoðun, kynning etc ef ske kynni að drengurinn vildi fá aðeins lengra sumarfrí.
McNissi says
Ég er búinn að fá leið á því að þræða síðurnar að leita að fréttum um að einhver sé kominn eða að einhver sé farinn !!!
Það er komið nóg af slúðri ! Staðfesta frétt takk !
Þeir hljóta að vilja losa sig við menn eða fá menn áður en undirbúningsferðin hefst, sem er eftir ca. viku. Ég er btw. orðinn frekar spenntur fyrir undirbúningsleikjunum!
Finnst vera heil eilífð síðan ég sá seinast United leik…..
Kveðja,
Spenntur aðdáandi að deyja án United leikja.