Eftir ansi glæsilega frammistöðu gegn Norwich í Capital One bikarnum þá er aftur komið að deildinni. Fulham hefur ekki gengið neitt sérstaklega í deildinni það sem af er.
Manchester United vann Fulham úti á síðasta tímabili 1-0 og vonandi sigrum við aftur núna og bara með meira af mörkum.
Samkvæmt physioroom.com eru bara Danny Welbeck og Darren Fletcher á meiðslalistanum og hjá Fulham eru Matthew Briggs, Hugo Rodallega og Brede Hangeland fjarri góðu gamni.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hvað það er mikilvægt að ná almennilegu „rönni“ í deildinni og fara að sýna hinum liðunum að það sé enn ástæða til að óttast Manchester United.
Flashback-hornið
[youtube=http://www.youtube.com/watch?v=1RJ8eLXRbBA]
Mögulegt byrjunarlið
De Gea
Rafael Vidic Evans Evra
Carrick Giggs
Nani Rooney Kagawa
van Persie
Ingi Rúnar says
Staðan er bara þannig að UTD verður að vinna leikinn, spái sigri. 3-1, Hernandes setur allavega eitt, hann er heitur þessa dagana. Zaha og Januzai eiga að byrja leikinn.
Runólfur says
Mjög mismunandi fréttir sem maður er að lesa um Robin Van Persie.
Ef hann er tæpur þá væri mjög eðlilegt að leyfa honum að hvíla næstu tvo leiki þar sem að Hernandez er sjóðandi í augnablikinu. Vona að Moyes sé ekki að spila honum gegn vilja hans – þá fyrst fer allt til fjandans.
TN says
Flashback hornið flott viðbót, keep up the good work !!!
Pétur says
Ef það er vottur af meiðslum hjá RVP þá finnst mér að það eigi að hvíla hann, kominn tími til að Hernandez fái smá run af leikjum
Pétur says
Ef það er vottur af meiðslum hjá RVP þá finnst mér að það eigi að hvíla hann, kominn tími til að Hernandez fái smá run af leikjum