Eins og allir vita er baráttan um Ísland framundan, Manchester United og Liverpool mætast í stórleik umferðarinnar kl. 13.30 á sunnudaginn. Við Kristján Atli hjá Kop.is höfum verið að henda póstum á milli okkar það sem af er vikunnar og ræddum við ýmislegt í tengslum við þennan leik, liðin tvö og deildina almennt. Þetta er vonandi ágætis upphitun fyrir stórleikinn og afraksturinn má sjá hér fyrir neðan:
KRISTJÁN ATLI: Fyrst langar mig að nefna aðeins risapistil sem þú skrifaðir á heimasíðu ykkar United-manna á Íslandi um ástæður þess hvers vegna gengi Manchester United hefur verið svona slappt í vetur. Þetta er náttúrulega stærra hrun en menn óraði fyrir við stjóraskiptin síðasta sumar og þú færir góð rök fyrir því að þetta er að sjálfsögðu ekki allt saman David Moyes að kenna. En eru menn ekki samt í þeirri stöðu að það verður að laga það sem hægt er að laga? Það er, eigendurnir eru ekki á förum og aðgerðarleysi Ferguson í að endurnýja hópinn síðustu 3-4 ár verður ekki breytt úr þessu, og þá stendur eftir að endurnýja hópinn í sumar og/eða skipta Moyes út fyrir reyndari sigurvegara í brúna.
Hljóðin sem koma frá æðstu mönnum United eru þau að Moyes sé ekki í neinni hættu og ef maður trúir þeim virðist sem hann fái að endurnýja hópinn í sumar áður en menn fara að saka hann um eitthvað í genginu. Getur verið að Ferguson og stjórnin hafi áttað sig á því síðasta sumar, og enn betur í vetur, að það hafi verið mistök að hafa ekki endurnýjað hópinn fyrr og því telji þeir kannski bara sanngjarnt að Moyes fái tækifæri til að endurnýja í sumar áður en honum er slátrað fyrir lélegt gengi? Eða er hann í þeirri stöðu að t.d. slæmt gengi gegn Liverpool, Olympiakos og City í þessari krúsjal leikjahrinu fram undan muni innsigla örlög hans? Á hvaða tímapunkti hætta afsakanirnar að gilda og erum við nálægt þeim tímapunkti?
TRYGGVI PÁLL: Eru ekki allir pottþétt búnir að lesa þessa langloku? Moyes gæti hiklaust staðið frammi fyrir því að vera atvinnulaus eftir leikinn gegn City ef illa fer í þessum þremur risaleikjum framundan. Hann er einfaldlega búinn að grafa sína gröf það djúpt og menn nenna ekki lengur að hlusta á einhverjar afsakanir.
Ég fór yfir það í pistlinum hvernig liði hann tók við og af hverju hann hefði alltaf lent í ákveðnum erfiðleikum til þess að byrja með en það hefur engum órað fyrir því hversu djúpt Manchester United er sokkið undir hans stjórn. Það vissu allir að þetta tímabil gæti orðið strembið en gengi liðsins eftir áramót hefur verið alveg sérstaklega slæmt. Þetta myndi kannski sleppa ef Moyes væri að reyna að láta liðið spila skemmtilegan fótbolta en í dag er liðið að spila einhvern tröllabolta sem ég er ekki einu sinni viss um að hann hafi reynt hjá Everton.
Ef hann stendur í lappirnar í þessum þremur leikjum, kemur úr skelinni, tekur smá séns og sýnir eitthvað sem bendir til þess að hann ráði við það að vera knattspyrnustjóri Manchester United ætti hann að fá næsta tímabil. Ef hann mætir til leiks með tröllataktíkina er ekkert sem bendir til þess að hann ráði við þetta risaverkefni. Ef hann fær næsta tímabil þarf hann að vera sneggri en Gunnar Nelson að klára sumarkaupin og losa sig við þá leikmenn sem höndla ekki að spila ekki undir Sir Alex Ferguson. Þá gæti blásið til betri tíðar. Við vitum meira um það á sunnudaginn.
Talandi um sunnudaginn? Hvað er langt síðan Liverpool mætti á Old Trafford sem sigurstranglegri aðilinn?
KRISTJÁN ATLI: Ég var einmitt að hugsa um þetta nýlega (ókei, alltaf – ég er ALLTAF að hugsa um það að Liverpool sé núna orðið betra lið en United). Síðan United unnu deildina fyrst undir stjórn Ferguson (vorið ’93) hefur Liverpool aðeins einu sinni endað fyrir ofan United í deildinni. Það var vorið 2002 þegar Arsenal unnu titilinn á Old Trafford. Liverpool var á toppnum um haustið en missti svo flugið en kom aftan að United með góðum endaspretti og hirti annað sætið af þeim í næstsíðustu umferðinni.
Einu sinni á tuttugu og einu tímabili. Hitt skiptið á öllum þessum árum sem Liverpool náði öðru sæti var United auðvitað liðið sem stóð þeim fyrir dyrum og hirti titilinn. En allavega, fyrir það fyrsta er þetta ótrúlega sorgleg staðreynd sem lýsir bæði mestu eyðimerkurgöngu í sögu Liverpool síðan liðið fór að vinna titla og um leið mestu sigurgöngu í sögu United.
Sem gerir þetta tímabil sem við erum að upplifa svo einstakt. Liverpool er í dag í öðru sætinu, ellefu stigum á undan United. Það er ekki verið að laumast fram úr ykkur núna heldur er verið að skilja ykkur eftir í rykinu, og það er í raunar í fyrsta sinn síðan 1991 sem það gerist. Þá endaði Liverpool í 2. sæti (árið eftir síðasta titil sem við unnum) á meðan United endaði í 6. sæti, 17 stigum á eftir Liverpool. Það var þó ekki beint ávísun á það sem koma skyldi á næstu árum fyrir bæði lið og spurning hvort tímabilið í ár verði einsdæmi líka.
Við erum sem sagt algjörlega óvanir því að fara á Old Trafford í þessari stöðu. Þessir leikir eru, eins og klisjan segir, þess eðlis að formið og deildartaflan segir ekki allt og yfirleitt er heimaliðið talið vera líklegra burtséð frá deildargengi. Það er bara þegar annað liðið er sérstaklega lélegt (t.d. ’91 þegar United voru í ruglinu eða 2010 þegar Liverpool var með Hodgsonitis) sem manni finnst annað liðið eiga að vinna báða leikina, og jafnvel þá gekk það eftir í hvorugt skiptið.
Með öðrum orðum, það er skrýtin tilfinning að fara inn í leik á Old Trafford og finnast eins og mínir menn eigi að vinna, en jafnvel núna gef ég lítið fyrir þá tilfinningu þar sem sagan sýnir að þetta eru alltaf galopnar viðureignir og jafnvel þegar munurinn á liðunum var enn meiri en í dag gat „litla“ liðið (það tímabilið) yfirleitt strítt því stærra.
Þannig að ég tek að engu sem gefnu í þessum leik.
Er ég að gefa þér smá trú á þessum leik með söguupprifjuninni eða ertu að búa þig undir það versta?
Einnig: af hverju í fjandanum er þessi leikur í hádeginu á sunnudegi? Liverpool var í fríi um helgina og United spiluðu í hádegi á laugardag gegn West Brom. United er að leika duga-eða-drepast leik í Meistaradeildinni á miðvikudag í næstu viku og gætu alveg þegið aukadag til að búa sig undir Olympiakos. Af hverju í andskotanum er þessi leikur þá á sunnudegi? Er enska Úrvalsdeildin eina deildin sem verndar ekki Meistaradeildarliðin sín? Þetta virðist koma upp á hverju ári, pirraði mig jafnan þegar Liverpool var í Meistaradeildinni og mun eflaust pirra mig þegar við snúum þangað á ný næsta haust. Hvað er að þessari deild?
TRYGGVI PÁLL: Það skiptir eiginlega engu máli hver er talinn vera sigurstranglegri í þessum viðureignum, þetta eru þannig leikir að form, uppstillingar og allt það virðast nánast aukaatriði. Það sem stressar mig fyrir þennan leik er að Moyes velji öruggu leiðina og detti aftur í tröllaboltann eftir verulega fína og léttleikandi frammistöðu gegn WBA um síðustu helgi. Ef hann gerir það endar þetta illa fyrir United.
Nú er Liverpool nánast öruggt inn í Meistaradeildina á næsta ári. Maður þarf ekki að horfa lengra en á bekkinn ykkar um hverja helgi til þess að sjá þið eruð með þunnskipaðan hóp. Stór ástæða fyrir því að ykkur gengur svona vel er að liðið mun enda með að spila aðeins rétt rúmlega 40 leiki á þessu tímabili og getið keyrt á færri mönnum en ella. Hvernig munið þið höndla næsta tímabil og aukið leikjaálag og pressu sem fylgir Meistaradeildinni?
KRISTJÁN ATLI: FSG vita hvað þeir eru að gera. Þeir styrkja hópinn í sumar og við spjörum okkur, ekki síst ef United og Spurs fara í Evrópudeildina og eru því ekkert í neitt betri málum hvað varðar leikjaálag en við. Annars ulla ég á þig fyrir að gefa í skyn að Liverpool sé bara að ná þessum árangri af því að það er ekki í sama leikjaálagi og hin liðin. Það er fullmikil einföldun.
Stærsta ástæðan fyrir gengi Liverpool í vetur er sú að með nýjan markvörð og vörn og miðju í stöðugum meiðslavandræðum hefur sóknarleikurinn tekið fáránlegum framförum. Suarez og Sturridge eru báðir að tvöfalda nær alla tölfræði sína (og hafa báðir tekið svona NBA Jam „On Fire“ tarnir þegar hinn hefur vantað) og þeir Sterling og Henderson hafa blómstrað í algjöra ása í þessu liði. Það er náttúrulega hrikalega öflugt að nítján ára strákur skuli allt í einu blómstra og stimpla sig inn sem 20m punda vængmaður, það sparar bæði peninga og áhættu á leikmannamarkaði. Þið þekkið það, United-menn, Januzaj virðist vera svipuð sprengja og Sterling sem bara bíður eftir að springa á næsta eða þarnæsta vetri.
Þannig að ég hef litlar áhyggjur af næsta vetri. Liverpool mun styrkja sig í sumar og bæta breiddina, taka lánsmenn eins og t.d. Fabio Borini og Suso til baka, og láta slag standa næsta vetur. Ef United og Spurs styrkja sig á ný verður baráttan um Meistaradeildarsætin áfram grimm og fá lið örugg um sæti þar eftir ár en hvort Liverpool heldur sæti í Meistaradeildinni að ári (að því gefnu að það hafist nú í vor, sem er ansi líklegt en enn ekki tölfræðilega öruggt) mun ekki ráðast á því hvort liðið er að spila fleiri leiki en í vetur.
Hvað með ykkur? Látum vera að ræða Moyes, í hvað stefnir á leikmannamarkaðnum í sumar? Vidic er að fara til Inter, Rio hlýtur að hætta eða fara í minna lið ef hann vill spila áfram. Evra? Giggs? Hernandez? Kíktu í kristalkúluna og segðu mér hverjir fara í sumar. Ég vil heyra nöfn.
TRYGGVI PÁLL: Einföldun eða ekki. Þú getur gleymt því að Liverpool væri í þessari stöðu ef liðið væri t.d. í Evrópudeildinni. Mikil hvíld á milli leikja, minna álag á lykilleikmenn, meiri tími til að vinna í leikskipulaginu og allt það. En það er auðvitað ekkert að því, menn spila bara með þau spil sem eru gefin og Rodgers hefur spilað afskaplega vel úr sínum spilum. Þetta tímabil á örugglega eftir að reynast ómetanlegt fyrir Rodgers, hann hefur fengið mikinn tíma til þess að drilla leikmannahópinn í sinni knattspyrnuheimspeki og það virðist vera að virka. Næsta tímabil verður hinsvegar alvöru prófsteinn á Rodgers og allt félagið allt frá eigendum, lykilmönnum og niður í þá leikmenn sem eru að spila minna. Það er nefnilega ekkert grín að ætla sér að vera í toppbaráttu og að keppa í Meistaradeildinni á sama tíma.
Hjá United verða a.m.k þrír leikmenn að fara. Vidic fer til Inter og Rio Ferdinand og Evra þurfa að yfirgefa liðið. Fregnir herma að þeir Rio og Evra séu ósáttir við Moyes og þeir hafa báðir verið afskaplega daprir á þessu tímabili. Þeir tveir eru miklir leiðtogar innan hópsins og ef Moyes vill hafa fullkomna stjórn á hópnum þarf hann að skera þessa tvo leikmenn í burtu og fá sína menn inn í staðinn. Flestir stuðningsmenn vilja einnig sjá Ashley Young fara, hann er á svívirðilega háum launum og er afskaplega illa liðinn á meðal stuðningsmanna fyrir síendurtekinn leikaraskap og lélega frammistöðu á vellinum. Giggs mun líklegast segja þetta gott eftir tímabilið og færa sig alfarið yfir í þjálfarastarfið.
Ég er líka smám saman að komast að þeirri niðurstöðu að Robin van Persie verði að yfirgefa liðið í sumar a la Ruud van Nistelrooy.
KRISTJÁN ATLI: Ég ætla að svara þessu í myndmáli:
1: Ég held að við Liverpool-menn nær og fjær vitum ágætlega hvernig á að keppi í bæði deild og Evrópu. Við höfum unnið þann stóra fimm sinnum.
2: Evra mikill leiðtogi?
3: SELJA VAN PERSIE?!? Af því að þið getið fengið eitthvað betra staddir utan Meistaradeildarinnar?
Þökkum Phil Dunphy fyrir svörin.
Nei í alvöru talað þá er nokkuð ljóst að það verður að selja hjá United. Ég myndi bara fara varlega í að heimta að einhver af stjörnunum fari því eins og við Liverpool-menn höfum komist að (og fleiri lið, spurðu bara t.d. AC Milan, Lyon, PSV eða Inter – stór og sigursæl lið sem eiga erfitt með að laða þá bestu í sínu landi að sér utan CL). Van Persie hefur kannski ekki náð sér á strik í vetur (frekar en flestir aðrir) en það er ekki þar með sagt að það sé auðvelt að finna betri staðgengil.
Mitt álit, væri þess óskað: það er kominn tími á Giggs og Rio, Vidic fer og þið seljið Hernandez, Nani og Evra. Reynið svo að finna 3-4 up-and-coming leikmenn, þ.e. ekki orðnar stórstjörnur en á leiðinni (eins og Liverpool gerði með Coutinho og Sturridge fyrir ári) og setjið svo allt kapp á ein risakaup. Segjum Toni Kroos á miðjuna fyrir allan peninginn og svo hungraða, hæfileikaríka stráka með honum og þá getið þið farið að stíga skref í rétta átt á næstu leiktíð.
Auðvitað vona ég að enginn sé að hlusta á mig. Þetta eru allt of góðar hugmyndir hjá mér.
Það skrýtna er að þrátt fyrir velgengnina er Liverpool í svipuðum málum. Það er, það er fram undan ærin tiltekt í varnarlínu liðsins. Agger, Skrtel, Johnson, Enrique og lánsmaðurinn Cissokho eru allir líklegir eða mögulegir út um dyrnar í sumar og erfitt að giska á hvaða fjórir munu mynda varnarlínuna í byrjun næsta tímabils. Sá eini sem ég myndi hengja mig á að verði þar er Mamadou Sakho, ef hann verður loksins orðinn heill. Hver er þín skoðun á varnarlínu Liverpool sem utanaðkomandi aðila? Þetta er mikið tilfinningamál hjá Púllurum, sérstaklega með Skrtel og Agger sem eru vinsælir og/eða hataðir á víxl virðist vera. Hefurðu álit á þeim tveimur? Á Liverpool að halda öðrum eða báðum eða selja þá og finna nýjan félaga með Sakho? Hvað finnst þér um Sakho?
TRYGGVI PÁLL: Þetta er ekki svo galið hjá þér. En það vill reyndar svo til að í dag á Manchester United svo svívirðilega mikinn pening þökk sé ofvirkrar auglýsingadeildar að ég held að þetta tímabil utan Meistaradeildar verði ekki vandamál í að laða leikmenn til liðsins. Leikmenn og umboðsmenn vita alveg að Manchester United getur hæglega þrefaldað launin þeirra.
Hvar endaði Liverpool svo í deildinni síðast þegar liðið vann Meistaradeildina? Í 5. sæti tæplega 40 stigum á eftir sigurliðinu?
Varnarlína Liverpool á stóran þátt í velgengi Liverpool á tímabilinu. Sóknarmenn Liverpool vita að þeir verða að skora 2-3+ mörk í leik ef liðið á eiga séns í að vinna leik þar sem vörnin getur ekkert. Agger og SKRTL eru svona eins og Rio og Vidic fátæka mannsins (Þegar þeir tveir gátu eitthvað). Annar spilandi og hinn grjótharður. Þeir eru fínir varnarmenn en samt of mistækir til þess að geta myndað miðvarðarpar hjá toppliði, tala nú ekki um þegar Kolo Toure er að flækjast eitthvað með þeim. Lykilatriði er að finna miðvarðapar sem hentar leikstíl Rodgers. Þeir mega ekki vera of hægir og gamlir enda höfum við t.d. sé þá Rio og Vidic toga United-liðið neðar á völlinn undanfarin ár vegna þess að þeir hafa misst allan hraða. Það hefur áhrif á allan leik liðsins. Rodgers vill spila hápressu og þá verður hann að finna miðverði sem treysta sér í að skilja eftir mikið pláss fyrir aftan sig. Treysta Agger og SKRTL sér í það? Getur Sakho spilað þannig?
Ég veit ekki með Sakho enda séð takmarkað af honum en miðað við það sem maður hefur heyrt gæti þetta verið miðvörður ykkar nr.1 næstu árin. Lykilatriði er því að finna einhvern með honum sem treystir sér að spila hátt uppi á vellinum. Er næsti Carragher ekkert á leiðinni upp úr unglingastarfinu? Maður hefur mikið heyrt talað um þetta unglingastarf ykkar undanfarin ár, Benitez hafi nútímavædd starfið og fengið nýja þjálfara og nýjar áherslur á svæðið. Hvar eru allir þessir leikmenn? Afhverju eru Michael Owen, Steven Gerrard og Jamie Carragher einu nöfnin sem maður kannast við úr unglingastarfi Liverpool?
KRISTJÁN ATLI: Ég myndi í alvöru skrá það sem stærra afrek að hafa unnið Meistaradeildina með liði sem átti ekkert erindi í Meistaradeildina, heldur en að hafa verið með yfirburðalið Englands í 25 ár og aðeins unnið hana tvisvar.
Varðandi unglingastarfið þá er ekki nema von að þú spyrjir því það kom ekki rassgat upp úr þesu starfi í rúman áratug. Owen, Carragher og Gerrard skiluðu sér upp úr unglingastarfinu í kringum ’97-’98 og á sama tíma kom David Thompson upp. Síðan gerðist ekkert þar til svona 2003 þegar Stephen Warnock kom upp. Hann var hluti af Meistaradeildarliðinu 2005 og lék 1-2 landsleiki með Englandi þannig að hann telst með, þó hann hafi ekki verið lengi hjá Liverpool. Síðan þá … ekkert. Einn og einn strákur sem léku 2-3 leiki fyrir liðið og voru svo seldir í neðri deildir. Þar til FSG keyptu félagið og gerðu fljótlega stórar breytingar á uppsetningu unglingastarfsins, auk þess sem Rafa hafði verið að vinna markvisst unglingastarf bak við tjöldin síðustu tvö árin sín hjá Liverpool.
Sú breyting hefur skilað því að Rodgers hefur getað gefið hátt í 30 uppöldum tækifæri með aðalliðinu á aðeins tveimur árum. Auðvitað spjara sig ekki allir af þeim en það er að detta inn ný kynslóð. Sterling, Flanagan og Kelly eru stór hluti af leikmannahópi í dag á meðan Andre Wisdom, Suso, Jack Robinson, Ryan McLaughlin, Conor Coady og mitt uppáhald, Jordon Ibe, eru allir á láni í ár og megnið af þeim ætti að skila sér til baka í leikmannahópinn í sumar eða eftir ár. Þá eru leikmenn eins og Brad Smith, Jerome Sinclair og Jordon Lussey allir búnir að vera í leikmannahópi í vetur þrátt fyrir að vera bara 16-17 ára og þeir fara væntanlega á lán á næsta tímabili til að sækja reynslu.
Ef ekki nema 2-3 af þessum strákum komast alla leið eins og Raheem Sterling og Jon Flanagan eru að gera núna er það rosalega dýrmætt fyrir liðið, eins og öll lið. Og algjör viðsnúningur frá 15 ára eyðimerkurgöngu í þessum efnum. Ég veit ekki hvað gekk á á þeim tíma en það virðist ekki hafa verið mikið af viti.
Hitt er svo annað mál að enginn af þeim sem ég taldi upp hér að ofan er miðvörður. Þess vegna er Liverpool að fara að versla a.m.k. einn slíkan í sumar.
Hvað með ykkur? Er Januzaj það eina á sjóndeildarhringnum eða eru einhverjir fleiri ungar nálægt því að detta í séns hjá Moyes? Var ekki Nick Powell í láni? Hann á að vera talsvert efni, ekki satt? Eða teljast Rafael, Anderson, Welbeck og Cleverley ennþá vera efnilegir?
TRYGGVI PÁLL: Ef við ætlum eitthvað að fara að ræða stærð afreka þá er ekkert sem toppar þrennuna góðu árið 1999. Ekkert. Það þarf ekkert að ræða þetta meira.
Rafael er löngu orðinn góður leikmaður og verður hægri bakvörður Manchester United næstu 10 árin, Cleverley er alveg ágætur, klárlega ekki jafn hörmulegur og menn vilja meina en þó ekki mikið meira en miðlungsleikmaður sem er allt í lagi að hafa í hópnum. Anderson-skipið er því miður siglt til Ítalíu og mun líklega stranda þar. Ég gleymi því aldrei fyrsta tímabilinu hans þegar hann mætti sem einhver silky-smooth framliggjandi miðjumaður. Ferguson hélt nú ekki og lét hann spila sem afturliggjandi miðjumaður og hann gjörsamlega át menn eins og Fabregas, Mascherano og Gerrard eins og skyndibita. Því miður var það ekki það eini skyndibitinn sem hann hafði list á.
Ég bind miklar vonir við Danny Welbeck enda búinn að vera hjá félaginu frá því að hann var ungabarn, fæddur steinsnar frá Old Trafford. Held að hann eigi góðan séns á því að meika það hjá United og er hann einn af fáum í liðinu sem er búinn að eiga gott tímabil.
Hvað varðar nánustu framtíð koma tvö nöfn strax upp og það eru miðjumennirnir Nick Powell og Jesse Lingard. Þeir hafa báðir verið að tæta upp Championship-deildina, Powell með Wigan og Lingard með Birmingham og Brighton. Powell er markahæsti leikmaður Wigan á tímabilinu með 12 mörk og Lingard skoraði fernu í sínum fyrsta leik með Birmingham. Þeir munu báðir klárlega vera viðloðandi hópinn á næsta tímabili eða jafnvel fara á láni til annars úrvalsdeildarliðs. Powell býr yfir dýrmætri reynslu úr Evrópudeildinni eftir að hafa spilað í henni með Wigan á tímabilinu, það mun koma sér vel á næsta tímabili. Þetta eru allavega þau tvo nöfn sem menn ættu að leggja á minnið.
Svo er ein gersemi í unglingaliði Manchester að nafni James Wilson,19 ára framherji sem fróðir menn segja að sé á svipuðum stað og Januzaj var á í fyrra sem er að vera algjör yfirburðaleikmaður í öllum þeim leikjum sem hann spilar í á unglingastiginu. Kannski fáum við að sjá eitthvað af honum á næsta tímabili. Svo má nefna fleiri leikmenn eins og Andreas Pereira og Ben Pearson en þessir þrír ofantöldu, Wilson, Powell og Lingard eru þeir leikmenn sem eru líklegastir til þess að geta spilað stórt hlutverk hjá United í framtíðinni.
Hvernig sérðu þróun deildarinnar fyrir þér næstu árin? Eru Chelsea og Mourinho að fara að einoka þennan titil eins og síðast þegar hann kom í deildina eða erum við að fara að detta inn í tímabil þar sem titilinn mun fara á marga mismunandi staði næstu árin?
KRISTJÁN ATLI: Þessi mynd af Welbeck er frábær. Það ætti að sýna öllum leikmönnum félaganna svona myndir svo þeir hafi í huga að ungu strákarnir sem þeir gefa smá tíma af og til gætu orðið liðsfélagar þeirra seinna meir. Hvað ætli Giggs hafi lagt upp mörg færi fyrir Welbeck? Grunaði það örugglega ekki þarna.
Þetta er svipað og með Jon Flanagan. Það er eðlilegt að stuðningsmönnum þyki sérstaklega vænt um leikmenn sem alast bókstaflega upp í grennd við völlinn. Jafnvel þótt það sé engin leið að sjá að Welbeck verði næsti Rooney eða að Flanagan verði næsti Carragher þá heldur maður eðlilega meira með slíkum leikmönnum.
Hvað deildina varðar loka ég aftur augunum, læt hugann reika og sé Liverpool fyrir mér vinna þrennuna fimm ár í röð. Svo slæ ég mig fast utan undir, vakna aðeins aftur og man hver staðan er í raun og veru. Ég held að fyrst og fremst getum við slegið því á föstu að það verður ekkert lið jafn dóminerandi næstu 10-20 árin og United hefur verið síðustu 20, ekki einu sinni United sjálfir. Ef United-menn eru að vonast eftir öðru slíku tímabili án Ferguson sé það borin von.
Líklegra er að United eigi feril í líkingu við Real eða Bayern, Juve eða Ajax. Risar sinna landa vinna kannski 2-3 titla á hverjum áratug og af og til (eins og t.d. Bayern núna eða Barca síðasta áratug) koma gullkynslóðir sem skila óvenju mörgum titlum á fáum árum og jafnvel Evrópusigrum núna. En þar sem þið eruð að klára eitt slíkt (óvenju langlíft) tímabil sem innihélt eins og 2-3 gullkynslóðir í röð myndi ég búa mig undir að það gerist ekki aftur á næstunni.
Ég held að þessi deild muni spilast þannig að fjársterkir United, vel fjármagnaðir City og Chelsea og svo mögulega líka vel reknir Arsenal og Liverpool-klúbbar gætu jafnvel allir unnið deildina á næstu tíu árum. Hverjir vinna oftast og svo framvegis kemur í ljós en ég yrði eiginlega hissa ef allavega 4 af þessum 5 klúbbum skila ekki deildarsigri á næstu 10 árum.
Chelsea eru líklegastir með Mourinho við stjórnvölinn, svona um fyrirsjáanlega framtíð, en sjáum hvað hann endist lengi í þessu starfi. Mér líst samt vel á stöðu Liverpool til næstu ára og fagna því aðallega að þeir dagar að United hirði 7 af hverjum 10 titlum per áratug séu (vonandi)(örugglega)(er það ekki annars?) taldir.
Snúum okkur þá að sunnudeginum. Þitt verkefni er einfalt: sannfærðu mig um að United sé að fara að vinna þennan leik. Gerðu mig skíthræddan. Lof mér að heyra smá gorgeir.
TRYGGVI PÁLL: Ég skal sko segja þér afhverju við erum að fara að rústa þessum leik á sunnudaginn. Þetta byrjar allt með því að Carrick, Cleverley, Smalling og Jones munu sparka boltanum á milli sín í 20 mínútur, þaðan berst boltinn á Evra sem kemur honum strax á Ashley Young sem mun dúndra boltanum strax inn í teiginn. Fyrsta fyrirgjöfin mun líklega lenda á Anfield en næsta fyrirgjöf, hún á sko talsverðar líkur á því að lenda á hægri kantinum hjá Antonio Valencia, hann mun taka á móti boltanum, hætta við að taka vinstri bakvörðinn ykkar á, gefa hann aftur til baka á Rafael, sem kemur honum á Cleverley sem kemur honum á Carrick sem kemur honum á Smalling sem kemur honum á Jones sem kemur honum á Cleverley sem kemur honum á Carrick og þaðan berst boltinn aftur til Young og nákvæmlega sama ferli hefst aftur nema í eitt skipti á þessm 90 mínútum mun Young slysast til þess að gefa skítsæmilegan bolta fyrir og þaðan mun Robin van Persie koma aðvífandi og skalla boltann af gríðarlegu afli, beint í slánna. Rooney fylgir svo á eftir og skorar. Lokatölur algert fokking 1-0 rúst.
Hvernig ætlið þið að eiga séns í þetta taktíska masterplan?
KRISTJÁN ATLI: Uss, maður svitnar bara við að lesa um allar þessar fyrirgjafir. Sem betur fer fyrir ykkur þá er Liverpool-vörnin vonlaus í að verjast fyrirgjöfum og stórkarlabolta í vetur þannig að það er kannski komið að því að Moyes vinni stórleik á Old Trafford (teljum Arsenal ekki með, þú þarft að hafa unnið dollu sl. áratug til að teljast stórleikur).
Okkar taktíska meistaraplan er ofureinfalt. United stilltu upp sókndjörfu og ungu liði gegn West Brom um síðustu helgi, sóttu framarlega og unnu 3-0 sigur. Sannfærandi, og í kjölfarið kom krafa frá stuðningsmönnum um að svona skyldi Moyes stilla upp gegn Liverpool á Old Trafford líka. Engan varnarbolta, engan stórkarlabolta, bara sókn, sókn, sókn! Vandinn fyrir United er sá að Liverpool hefur verið að taka þessi stórlið sem sækja framarlega á þá og slátra þeim í vetur. Spurs reyndu þetta á White Hart Lane; Liverpool stóðu af sér fyrstu tíu mínúturnar og átu þá svo, 0-5. Everton og Arsenal reyndu þetta á Anfield, þeir leikir enduðu samanlagt 9-1 fyrir Liverpool. City reyndu þetta á Etihad í desember, unnu við vafasamar kringumstæður (deyðu, Lee Mason, deyðu) og Liverpool voru betri aðilinn nær allan leikinn.
Veistu hvaða stórliði hefur gengið best gegn Liverpool í vetur? Chelsea á Stamford Bridge … og United á Anfield í september. Bæði liðin voru varnarsinnuð með fimm manna miðju og þrengdu að Liverpool á eigin vallarhelmingi. Í báðum tilfellum átti Liverpool erfitt með að finna pláss fyrir sóknarmennina sína.
Niðurstaðan er þessi: ef United blæs til sóknar er það algjört sjálfsmark. Gerrard og Henderson sitja þá bara fyrir framan vörnina og mata svo Suarez og Coutinho á boltum út úr vörninni þegar United tapar boltanum. Þeir eru svo snillingar í að finna raketturnar okkar, Sturridge og Sterling, í stunguboltum eða maður-á-mann stöðu og þar eru United í stórkostlegum vandræðum. Ekki halda að þið hafið varnarmenn sem ráða við Suarez, Sturridge og Sterling maður-á-mann. Það hefur enginn ráðið við það í vetur. Chelsea vissu betur og fjölmenntu fyrir aftan boltann og létu vörn Liverpool um að „self destruct“ og gefa þeim leikinn.
Það ætti United að gera. En það má Moyes ekki gera því hann á að vera sókndjarfur á Old Trafford. Og þess vegna munið þið tapa.
Annars förum við að segja þetta gott í bili, Tryggvi. Er eitthvað sem þú vilt koma á framfæri að lokum?
TRYGGVI PÁLL: Ekki mikið annað en mitt uppáhaldsmark frá mínum uppáhaldsleikmanni:
)
KRISTJÁN ATLI: Andskotinn. Ég var á vellinum þegar O’Shit skoraði þetta mark. Þetta var fyrir neðan beltisstað hjá þér.
Ég get ekki annað en svarað þessu.
)
Djöfull vona ég að Vidic spili á sunnudag.
Tryggvi, takk fyrir spjallið. Megi mun betra liðið (Liverpool) vinna og megi Manchester United verða næsta Nottingham Forest.
TRYGGVI PÁLL: Það talar enginn illa um O’Shea í minni návist. Þessu samtali er slitið!
Valdi Á says
Þetta gerði minn fimmtudag skemmtilegri.
Atli Þór Rósinkarsson says
Djöfull fær maður vont bragð í munnin yfir því að þurfa vera sammála Liverpool manni um mitt eigið lið. En skemmtileg lesning og mjög góðar pælingar þarna!
Tumi says
Er ekki Gerrard í banni í leiknum fyrir fjölda gula spjalda ?
Birkir Örn Pétursson says
Samkvæmt þessari síðu þá er hann það ekki:
http://www.fantasyfootballscout.co.uk/fantasy-football-injuries/
Ég held að það væri líka búið að hype-a það aðeins ef captain fantastic væri í banni. Annars skemmtilegar pælingar og skemmtileg skot á milli ykkar. Mjög spenntur fyrir leiknum. Er sammála Tryggva að þegar þessi lið eigast við þá skiptir engu máli hvar liðin eru í deildinni!
En ég vona eftir sigur hjá mínum mönnum.
YNWA.
Einar Tönsberg says
Hressandi umræða.. takk!
úlli says
Skemmtilegt. Hefði verið gaman að heyra upptöku með spjalli ykkar félaganna.
Ég óska einskis heitar en sigurs í þessum leik, en ef við töpum (og þó mér verði hálfóglatt að segja það) þá vona ég hreinlega að Liverpool fari alla leið þetta árið svo það sé frá. Held að framtíð okkar sé bjartari en þeirra og mér finnst pínu sorglegt að hugsa til þess að Gerrard leggi skóna á hilluna án þess að ná í titilinn. Auk þess væri það mun verðskuldaðri sigur heldur en ef City eða Chelsea tækju titilinn.
Sigurjón Arthur says
Flottir,málefnalegir og sérlega vel að sér um sögu og núverandi ástand sinna liða…meira af þessu :-)
Birkir Örn Pétursson says
Ég verð að vera sammála Úlla hér fyrir ofan.
Jafnvel þó að United hafi í gegnum tíðina verið það lið sem hefur farið mest í mínar fínustu þá er það ekki útaf klúbbnum sjálfum heldur frekar vegna þess að ég á svo marga vini sem verða alveg gjörsamlega óþolandi þegar United gengur vel (og sérstaklega gegn Liverpool). Ég held að tilfinning United stuðningsmanna í garð Liverpool sé sú sama.
Í fyrra þegar United vann titillinn var ég mjög sáttur þrátt fyrir þessa heilalausu vini mína. Ástæðan er sú að þrátt fyrir allt saman þá umfram allt elska ég þessa íþrótt og að horfa á hana. Lið eins og Chelsea og City hafa unnið mikinn skaða að mínu mati á íþróttina. Að það sé hægt að kaupa sér top4 sæti í stað þess að vinna fyrir þeim með elju og mikilli vinnu finnst mér ömurlegt. Ég dái lið eins og United og Arsenal sem hafa unnið virkilega vel úr því sem þeir hafa haft að moða. Þeir hafa staðið við þjálfara sína. Allur peningur sem þessi lið eiga í dag er vegna þess að þjálfarar liðanna hafa staðið sig vel, ekki vegna sykurpabba.
Ef Liverpool eða Arsenal vinna deildina er í ár er það sigur fyrir ensku deildina og uppbyggingarstarf. Lið Liverpool er að mörgu leiti óbreytt frá því í fyrra. Mignolet kemur í markið, Sakho, Toure og Cissokho bætast við í vörnina og Moses kemur á láni fram á við. Ekkert af þessum leikmönnum fyrir utan Mignolet hafa skarað e-ð framúr og verið ástæða þess að Liverpool er þar sem þeir eru í dag. Ef Liverpool getur þetta þá geta önnur lið þetta og það sést greinilega. Arsenal keypti í fyrsta skiptið stórt í sumar en samt hafa þeir alltaf verið í Top4. Tottenham hafði ekkert verið e-ð ofur aktívt á leikmannamarkaði fyrr en í sumar en samt voru þeir að vaxa vel undir stjórn Harry Redknapp. Nýjasustu tvo liðin eru svo Southampton og Everton.
Ég veit að ykkur er eflaust meinilla við að okkur gangi þetta vel en eftir allt saman, getum við þá ekki verið sammála að það er íþróttinni frekar til sóma ef Arsenal eða Liverpool myndu vinna þetta? Ég held það.
Runólfur says
Ooooooooooohh þetta mark hjá Sheasy. Djöfull sem ég elska hann.
Ég er síðan sammála punktum með að maður elskar uppalda leikmenn alltaf meira – guð má vita hversu mikið ég myndi elska Welbeck ef ég væri fæddur í Manchester eins og hann, kannski hefðum við verið saman í bekk. Um leið og lið týna þessum uppöldu leikmönnum þá týna þau allri tengingunni við borgina / samfélagið og þar af leiðandi týna þau alvöru stuðningsmönnum (nema þetta séu Shitty / Chelsea stuðningsmenn sem er alveg sama).
Það er samt einn punktur sem pirrar mig óstjórnlega og það er heilalaust hatur Liverpool á Evra og gleraugun sem hindra það að þeir a) viðurkenni hann sem líklega top3 vinstir bakvörð í heimi síðustu 10 ár og b) hversu gífurlega mikilvægur hann hefur verið utan vallar hjá United. Ef menn tækju af sér Suarez gleraugun þá blasir þetta við mönnum – breytir því samt vissulega ekki að Evran er alveg tóm í dag og verður skipt út í sumar.
Og loka punkturinn er sá að Tryggvi hefði átt að vitna í Deildarbikarleikinn hjá liðinum í ár þegar United vann 1-0 og Liverpool sá ekki til sólu. Ég efast um að Moyes detti í sóknargírinn – hann mun gera sitt besta til að kæfa Liverpool, ég vona bara að hann noti ekki Young eða Valencia sem skyndisóknar option. Mata – Rooney – Persie ættu alveg að geta séð um það :)
Annars get ég ekki beðið eftir sunnudeginum!
Babu says
Flott síða hjá ykkur piltar
Blandaði mér í þessa umræðu okkar megin
http://www.kop.is/2014/03/13/16.30.13/#comment-184985
Tumi says
Ég á erfitt með að ákveða hvaða lið væri vænlegast fyrir mig sem United mann að vinna þetta fyrst við erum ekki að fara taka titilin, Ég get ekki haldið með Liverpool og ég vona að Gerrard vinni aldrei titilinn. Ég hata City útaf rígnum og olíunni þeirra. Mourinho fer ótrúlega mikið í taugarnar á mér og ekki séns að ég vilji sjá Terry og Lampard lyfta bikarnum, ég fæ ælu í munnin við tilhugsunina. Og Arsenal , mér finnst gaman að þessu recordi sem arsenal er með að hafa ekki unnið titil í einhvad 10 ár og vonandi heldur það áfram næstu árin. En það væri kannski minnst leiðinlegast að sjá Arsenal vinna þetta en á móti kemur að einn félagi minn er Arsenal fan og hann er fáranlega pirrandi krakki og ekki séns að ég nenni að hlusta í montið í honum. Ég mun ekki geta hamið mig um að gera einhvad slæmt við hann og einhvað sem ég mun sjá eftir. Þannig ég veit ekki hverja ég vill sjá vinna þetta. Fyrst og fremst hræðilegt að United geta ekki verið í þessarri baráttu og öll stigin sem við höfum tapað gegn minni liðum.