Frétt De Telegraaf í Hollandi í morgun er einföld: Louis van Gaal er búinn að samþykkja að verða næsti stjóri Manchester United. hann mun taka með sér þjálfarateymið frá hollenska landsliðinu og Patrick Kluivert verður aðstoðarþjálfari. Við vonum svo að staðfesta Van Gaal í að halda alltaf í a.m.k. einn þjálfara frá fyrra teymi þýði að Ryan Giggs verði áfram hjá United
De Telegraaf heldur því fram að Van Gaal fái yfir 80m punda til ráðstöfunar í nýja leikmenn og gera því skóna að Van Gaal muni mjög líta til Þýskalands til að spandera þeim.
Manchester United hefur gefið út yfirlýsingu þar sem segir að það sé ekkert að frétta, félagið hafi ekki skrifað undir samning við nýjan stjóra og ef eitthvað fréttnæmt gerist verði það tilkynnt. Nákvæmt orðalag og sjálf fréttin ekki borin til baka, bara sagt að ekki sé búið að skrifa undir, enda heldur De Telegraaf því fram.
Samkvæmt þessu þyrfti algera fífldirfsku til að setja pening á einhvern annan sem stjóra, enda sé ég að William Hill a.m.k hefur tekið fyrir veðmál á næsta stjóra Manchester United. Þannig að núna er bara að bíða eftir *staðfest*. Við verðum auðvitað með þær fréttir um leið og þær berast.
Skildu eftir svar