Ef við fáum færri brot i dag í heildina en í seinni leiknum í gær, þá er það fínt. Ekki var Cuadrado vinur okkar að slá í gegn en í dag fær Marouane Fellaini tækifæri til að hækka söluverðið sitt, við óskum honum góðs gengis við það. Svo væri óskandi að Wilmots myndi eftir því að hann er með einn besta ungling heims á bekknum hjá sér
Angel di María fær tækifæri til að sannfæra þá sem dæma hann af síðasta leik. Hann á klárlega heima á Old Trafford.
Seinni leikurinn er svo United ‘B’ gegn Kosta Ríka. Eitthvað hefur þagnað slúðrið um að Van Gaal vilji taka með sér Hollendinga en við getum samt skemmt okkur við að horfa á liðið hans.
Björn Friðgeir says
Og svo man ég það… Vermaelen kemur til United eftir HM, segir Daily Mirror. Það lítur út fyrir að við getum farið að hækka líkurnar á að það gerist vel upp fyrir 50%.
Birkir says
Er þetta áræðanlegt slúður með di maria? Ég væri hrikalega til í hann;)
Björn Friðgeir says
Alfarið á ‘ekta slúður’ stiginu held ég. Samt þannig að Real er að bæta við sig Kroos og reyna við Rodriguez þannig að það er ekkert ólíklegt að Di María sé ofaukið. Nú veit maður hreinlega ekki hvað Jorge Mendez er mikill vinur United eftir að Sörinn hætti, en m.v. að við létum hann hafa bönsj af monní gegnum Bebé dílinn eigum við alveg hönk upp í bakið á honum þannig að hann ætti alveg að vera til í að hjálpa til við að koma Di María til okkar… og fá sinn skerf.
DMS says
Eigum við eitthvað að ræða stærðina á pungnum á Van Gaal eftir þetta stunt með markmanninn og vító gegn Costa Rica?
Jose Mourinho hlýtur að vera hræddur um að missa titilinn The Special One í enska boltanum ef þetta er það sem koma skal.
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Er að sjá á fótbolti.net að Van Gaal sé að hugsa um 3-4-3 kerfi (auðvitað bara eitthvað slúður), smá forvitni en hvernig haldiði að sú uppsetning verði mönnuð?
Krummi says
Finnst þetta spennandi en tel að enginn viti núna hvað LVG er að hugsa í þessum efnum. Þetta eru því pjúra vangaveltur blaðamanna enn sem komið er, aðallega byggt á því hvernig hann er að láta hollenska landsliðið spila.
Hins vegar er þetta kerfi mjög flexible, því það er hægt að tala um 3-4-3 í þessum efnum en svo er það í rauninni líka 3-5-2 eða 5-3-2. Eins hefur Holland í raun spilað nokkurs konar 3-4-1-2, og það er kannski helst það sem maður væri til í að sjá prófað hjá okkur.
Þá værum við með 3 hafsenta (vonandi Hummels eða einhvern nýjan toppklassa þar á meðal), Shaw sem vinstri wingback, Valencia sem hægri wingback, Herrera og Carrick sem dýpri miðjumenn, Mata sem tengiliður milli miðju og sóknar og RvP og Rooney á toppnum.
Maður veit samt ekki hvað hann mun nota en ljóst að Ameríkuferðin verður spennandi fyrir okkur því þar mun hann örugglega stunda allskonar tilraunastarfsemi.