Tökum smá skurk í fréttum og slúðri varðandi United.
Í gær staðfesti Arsene Wenger að United væri eitt af þeim liðum sem hefði boðið í Thomas Vermaelen, í gærkvöldi komu svo fregnir af því að Barcelona hefði tryggt sér kaupin á honum vegna þess að Wenger vildi ekki selja til liðs í sömu deild. Gott fyrir Arsenal að Wenger virðist vera búinn að læra sína lexíu. Í dag kom þó staðfesting á því að Arsenal hefði viljað fá leikmann í skiptum frá United fyrir Vermaelen. Engin staðfest nöfn en menn telja að Wenger hafi annaðhvort viljað fá Smalling eða Jones. Auðvitað gat United ekki samþykkt það enda allur tilgangurinn með kaupunum á Vermaelen að auka breiddina í vörn United.
#mufc end interest on Vermaelen. Arsenal wanted swap deal. United didn’t.
— Stuart Mathieson (@StuMathiesonMEN) August 8, 2014
United þarf því að leita annarstaðar ef þeir ætla sér að styrkja vörnina. Hummels?
Vidal-sagan er farin að líkjast Fabregas- og Thiago-sögunum frá því í fyrra óþægilega mikið. Í vikunni bárust fregnir að því frá ítalska blaðinu La Stamp…nei andskotinn ég nenni þessu ekki.
If there’s one thing this transfer window has taught us, it’s the name of every single newspaper in Italy, the Netherlands and Chile. — Nooruddean (@BeardedGenius) August 8, 2014
Que sera, sera. Ef Vidal kemur þá kemur hann. Þetta mál er búið að fara svo fram og til baka í allt sumar að ég nenni varla að pæla í því lengur.
Annað slúður segir að United hafi sigrað Barcelona í keppninni um Cuadrado. Dani Alves er ekki á förum frá félaginu og því hafi félagið ekki efni á því að eltast við Cuadrado. Cuadrado er leikmaður sem myndi smellpassa inn í bæði leikkerfi Louis van Gaal og hann er svo fáranlega fjölhæfur að í samanburði lítur John O’ Shea út eins og Antonio Valencia að reyna að komast framhjá varnarmanni.
Svona leit síðasta tímabil út hjá honum hjá Fiorentina, það skiptir engu máli hvar hann spilar. Hann stendur sig vel. Á þessu tímabili myndi hann smellpassa í hægri kantvarðarstöðuna og þegar Louis van Gaal fer að færa sig yfir í sitt hefðbundna 4-3-3 er hægt að nota Cuadrado báðum megin í kantframherjastöðunum. Fergie, Fergie, sign him up!
Þetta er svona það helsta hvað varðar leikmannafréttir. Það er lítið að frétta af brottförum og þetta fer væntanlega að skýrast fljótlega. Louis van Gaal sagðist ætla að setjast niður með þeim leikmönnum sem hann vildi losna við. Leikmennirnir fengu stutt frí eftir leikinn gegn Liverpool og mæta til æfinga aftur í dag. Þeir sem verða sendir í burtu fá því væntanlega fljótlega kallið inn á skrifstofuna til Louis van Gaal.
United spilar svo sinn síðasta vináttuleik á þriðjudaginn gegn Valencia á Old Trafford.
Í öðrum fréttum er tvennt:
Í fyrsta lagi. U-21 liðið spilaði við Elite Development Squad Manchester City um hinn eftirsótta Manchester Senior Cup í gærkvöldi. Það er skemmst frá því að segja að James Wilson pakkaði saman þessum Elite City mönnum og skoraði öll mörkin í 4-1 sigri United. United lenti 1-0 undir og var í þónokkrum vandræðum mest allan fyrri hálfleik þangað til Wilson ákvað að klára leikinn upp á eigin spýtur. Hann sólaði 3-4 varnarmenn City og jafnaði leikinn rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Hann kláraði svo leikinn algjörlega í seinni hálfleik.
Mörkin má skoða hér: 1 – 2 – 3 – 4.
Congratulations to Warren Joyce's Reserves side for retaining the Manchester Senior Cup with a 4-1 win over City. pic.twitter.com/G92KYzhjGm
— Manchester United (@ManUtd) August 7, 2014
James Wilson er fáranlegt efni eins og við sáum í leiknum gegn Hull undir lok síðasta tímabils. Hann er með frekar sæmilega tölfræði:
quite a stat. #EnglandU19 striker James Wilson has 28 goals in his last 31 appearances (at all levels) for #MUFC.
— aidan (@englandyouth) August 7, 2014
Þeir sem fylgjast reglulega með yngri liðum United spara líka ekki stóru orðin þegar kemur að James Wilson:
I have been watching the youth team regularly for 25 years and saw many before that but Ive never seen a talent like this fella
— man united (@manutdreserves) August 7, 2014
Ive been writing about him for over 2 years and stressing how he is the best goalscorer, at his age, Ive seen at United
— man united (@manutdreserves) August 7, 2014
Engin pressa?
Louis van Gaal á svo afmæli í dag, hann er 63 ára í dag og óskar ritstjórn Rauðu djöflanna honum innilega til hamingju með afmælið. Megi þetta aldursár hans vera honum einstaklega gæfuríkt.
Opnum þessa umræðu og veltum fram einni spurningu: Raunhæft séð, hverjar eru væntingarnar fyrir tímabilið?
Orðið er frjálst.
Azu says
Held að 4 sæti sé alveg raunhæfur möguleiki að því gefnu að við verslum okkur reyndan miðvörð. Allt meira en 4 sæti er svo bara plús.
Þorsteinn says
Hvað er að frétta af Januzaj? Var hann með í ferðinni til USA?
Tryggvi Páll says
Nei, hann fór ekki með til Bandaríkjanna. Hann fékk lengra frí vegna gengi Belga á HM. Hann mætti til æfinga í Englandi undir lok júlí og er bara væntanlega að koma sér í stand fyrir tímabilið.
Magnus says
Eitt af 3 efstu sætunum pottþétt. :)
Sveinn Þorkelsson says
Ég hef ekki séð samantekt um frammistöðu nýju mannana í æfingarleikjunum.
Liðið sem heild spilaði þokkalega miðað við árangur en hvað segið þið um Ander og Luke?
Sá á ónefndri vefsíðu eftir úrslitaleikinn að mönnum þar fannst Ander lélegur og grófur, ég er ekki sammála fyrri staðhæfingunni en hann virðist geta spilað fast!
SHS says
Þessi ónefnda vefsíða má bara éta skít, Herrera leit rosalega vel út í USA! Annars held ég að meistaradeildarsæti sé alveg raunhæft!
Og já ég held að það sé orðið nokkuð ljóst að Vidal er ekki á leiðinni. Hver þarf svosem Vidal þegar við höfum meistara Fletcher?
Kristjans says
Takk fyrir þessa samantekt, maður þekkir lítið til Cuadrado og það virðist samkvæmt þessu að hann myndi smellpassa í leikkerfi Van Gaal.
Verður spennandi að fylgjast með James Wilson í vetur, gríðarlegt efni þar á ferð.
Eru svo ekki líka sögusagnir í gangi um að Van Gaal vilji fá Nigel De Jong og Daley Blind?
Veit ekki með ykkur en ég myndi fagna komu þeirra. Myndi vilja sjá einhver toppklassa miðvörð á borð við Hummels koma líka.
Eitt sem ég hef velt fyrir mér eftir komu Van Gaal og ákvörðun hans að spila 3-5-2.
Hefði Evra ekki verið frábær sem left wing back? Og þetta kerfi hefði án efa hentað Vidic, viss um að hann hefði krotað undir nýjan samning hefði hann vitað af þessu.
En til að svara spurningu Tryggva þá myndi ég telja að vera í baráttu um fjórða sætið góðan árangur á þessu tímabili. Það yrði magnað afrek. Jafnframt myndi ég vilja að okkar menn gerði alvöru atlögu að FA bikarnum í vetur og helst vinna þann bikar!
Narfi Jónsson says
Ef van Gaal kaupir varnarmann og miðjumann verð ég ekki sáttur við minna ef fjórða sætið. Svo er löngu kominn tími á að hirða bikarinn.
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Fjórða sætið og ekki úr leik í deild og bikar fyrr en í lokin. Ömurlegt að missa allt frá sér snemma og hafa enga ádtæðu til að keppa nema krónur fyrir hærra sæti
Oskar says
er orðinn mjög hræddur um að við höfum lokið okkur af á leikmannamarkaðinum…4 sætið er raunhæft með þennan hóp…enn lið eins og Man utd á að fara inní tímabilið með það markmið að vinna allt sem i boði er og til þess að það er möguleiki þá þarf að styrkja bæði vörn og miðju
Kristjans says
Dreymdi að ekkert hefði gengið hjá Van Gaal að styrkja leikmannahópinn og það endaði með því að hann fékk Edgar Davids til að taka fram skóna á ný!
Valdemar Karl says
Það yrði draumur ef Vidal og Hummels kæmu og við það yrði breiddin alveg þokkaleg, það vantar töffara eins og Vidal í United :) Annars bíð ég eftir fréttum af sölum til hrista vel uppí þessu…
Óskar Óskarsson says
skil heldur ekki afhverju það gengur ekkert að selja menn…var ekki búið að boða einhverja svaka hreinsun i sumar ? það hlýtur að fara allt á fullt hja okkur i þessari viku…maður myndi nu halda að van gaal myndi vilja hafa hópinn sinn klárann fyrir fyrsta leik
DMS says
Það var verið að tilkynna að Mats Hummels væri nýr fyrirliði Dortmund í dag. Var hann samt ekki fyrir svo löngu að hafna nýjum samningi hjá Dortmund? Eða er ég að rugla?
En já hlutirnir þurfa að fara að gerast núna, bæði ef á að selja leikmenn frá félaginu og kaupa inn aðra.
Robbi Mich says
Kristjans skrifaði:
Ég slæ ekki hendinni á móti Edgar Davids! Þvílíkur fagmaður.
Sigurjón Arthur says
Ég fer að stressast all hrikalega upp ef við kaupum ekki a.m.k. tvo KLASSA leikmenn í viðbót !!!