Þegar Manchester United heimsótti Burnley árið 2009 voru Cristiano Ronaldo og Carlos Tevez nýfarnir frá félaginu en Antonio Valencia, Gabriel Obertan og Michael Owen voru fengnir í staðinn hóst*Glazer*hóst. Sá leikur endaði með 1-0 sigri heimamanna þar sem Michael Carrick t.d. brenndi af vítaspyrnu. Liðin tvö áttu síðan ólík tímabil þar sem United var í hörkubaráttu um Englandsmeistaratitilinn sem þeir misstu á endanum naumlega til Chelsea en Burnley var í fallbaráttu sem þeir töpuðu á endanum.
Knattspyrnustjóri Burnley er hinn efnilegi Sean Dyche sem lék áður með liðum eins og Chesterfield, Millwall og Watford sem hann þjálfaði tímabilið 2011-2012. Í október 2012 var Dyche ráðinn til Burnley. Hann þykir hafa unnið mikið afrek með að hafa komið Burnley liðinu beint upp í Úrvalsdeildina enda ekki haft mikil fjárráð en virðist geta mótiverað menn vel.
Fyrir þetta tímabil hafa Burnley fengið leikmennina Michael Kightly, Matthew Taylor, Marvin Sordell, Steven Reid, Lukas Jutkiewicz og Stephen Ward. Önnur kunnugleg nöfn eru t.d. Skotinn Ross Wallace og fyrrum leikmaður Manchester United Tom Heaton. Burnley töpuðu í 1.umferðinni á heimvelli gegn Chelsea 1-3 og í 2.umferð 1-0 á útivelli gegn Swansea.
Manchester United hefur byrjað tímabilið skelfilega og er augljóst að Louis van Gaal þarf tíma til að byggja liðið upp. Það hefur ekki hjálpað mikið að mikil meiðsli eru að hrjá hópinn og hefur van Gaal ekki getað stillt neinu sem líkist sterkasta liði og fyrir utan fyrsta leikinn þar sem Ander Herrera lék í 60 mínútur þá hefur enginn af nýju leikmönnunum getað leikið.
Marcos Rojo er enn ekki kominn með leikheimild og verður ekki með á morgun. Luke Shaw og Ander Herrera eru meiddir og Marouane Fellaini, Jesse Lingaard, Michael Carrick og Chris Smalling einnig. Shinji Kagawa er sagður vera í Dortmund til að ganga frá endurkomu til Dortmund og Tom Cleverley er sagður vera í viðræðum við Aston Villa og Valencia. Juventus eru áhugasamir um framherjann Javier Hernandez.
Ég ætla að spá byrjunarliðinu á morgun svona ef van Gaal heldur sig við 3-4-1-2
Annars myndi þetta vera áhugaverð uppstilling:
Magnús Valur Axelsson says
Af hverju er Di Maria kominn með leikheimild en ekki Rojo? Báðir Argentínumenn og Rojo kom á undan
Magnús Þór says
Magnús Valur Axelsson skrifaði:
Di Maria er með ítalskt vegabréf.
Bjarni says
Alveg sama hvaða liði hann stillir upp fram á við það er vörnin sem er spurningarmerki? Hún lekur þessa stundina og það sjá önnur lið. Fyrirfram er þetta sigur en einsog við höfum séð liðið spila þá er ekkert gefið í þessu. Vona bara að við fáum að sjá smá batamerki í leik okkar annars þarf ég að fara að pússa rykið af hauspokanum sem ég notaði milli ’80 og ’90.
DMS says
Líst betur á seinni uppstillinguna.
Runólfur says
Hversu langan tíma er þetta vegabréfa stúss venjulega að taka?
Og af hverju er fyrst núna verið að „staðfesta“ að United hafi áhuga á Blind? Af hverju er maðurinn ekki löngu kominn í búning og út á völl? Erum búnir að vera í meiðsla basli síðan á Pre Season ferðalaginu í USA og hann getur leyst um það bil 100 stöður. Efast ekki um að hann hefði nýst í síðustu þremur leikjum.
Annars átta ég mig engan veginn á því hvernig liðið verður – veit í rauninni ekki hverjir eru heilir og hverjir ekki. Gæti orðið ágætis púsluspil.
Folinn says
@ Runólfur:
Væntanlega var Blind bara varaplan og hann keyptur núna vegna þess að við fáum ekki Vidal?