Hér er það helsta sem við lásum/hlustuðum/horfðum á í síðustu viku…
Lesefni vikunnar:
- Ji-sung Park er kominn aftur til United.
- Adam Crafton með fína grein um Tyler Blackett.
- Mark Ogden segir United eiga góðan möguleika á að fá Ronaldo til baka en segir að liðið muni þurfa borga 140 milljónir punda (kaupverð + laun).
- Van Gaal hrósaði Giggs í vikunni með því að segja að hann gæti orðið næsti stjóri United og að hann væri að þjálfa Giggs í það hlutverk. Telegraph birti svo vídeó af Van Gaal þar sem hann segir þessa hluti.
- Van Gaal er ósáttur við meiðsli leikmanna og skipti Tony Strudwick út fyrir Jos van Dijk í þjálfun aðalliðsins. Að auki fá Strudwick og Rod Thornley ekki að vinna lengur með enska landsliðinu.
- Van Gaal vill sjá leikmennina tjá sig meira þegar liðið fundar saman.
- Mark Ogden skrifar um Januzaj og hætturnar við að gefa honum ekki næg tækifæri á þessari leiktíð.
- Matt Lawton ber saman Van Gaal og Sir Alex Ferguson.
- United Rant skrifar um De Gea og ástæður fyrir slökum frammistöðum undanfarið.
- Fellaini gæti spilað gegn Everton.
- Noz ber saman 2004 og 2014 útgáfurnar af Wayne Rooney.
- Andy Mitten skrifaði einnig um Rooney og hans samband við United.
- Ekki United tengt and gríðarlega áhugavert. Er mikilvægara fyrir lið að beita góðum skyndisóknum eða stöðva þær?
Myndir vikunnar:
Lag vikunnar:
Tamacun með Rodrigo y Gabriela
Heiðar says
Fer að styttast í næsta podcast þátt? Hafði virkilega gaman að þessum sem kom um daginn. Áhugavert væri að koma jafnvel inn á þessar blaðagreinar í þáttunum, svona fyrir okkur sem finnst skemmtilegra að hlusta en lesa ;)
Magnús Þór says
@ Heiðar:
Jafnvel um helgina.
Jón Þór Baldvinsson says
Allt að koma. Allveg rosalega gaman að fylgjast með endurbyggingunni hjá Van Gaal og maður er spenntur fyrir framtíðinni með Giggs sem stjóra. Sá á eftir að vera vel skólaður eftir að hafa lært hjá tveim bestu stjórum sögunnar. Og lag vikunnar er frábært. Takk fyrir.