Því miður þá þarf ég að skrifa skýrslu um tvö mikilvæg stig töpuð í kvöld. Eins og leikurinn þróaðist þá ætti maður kannski bara að vera sáttur með að hafa bjargað stigi í lokin, en þetta var mjög týpískur leikur frá United, eru meira og minna að stjórna leiknum en gera sér erfitt fyrir með því að gefa mörk á silfurfati. Byrjum á liðinu, það leit svona út:
Varamenn: Lindegaard, Smalling, Carrick, Fellaini, Fletcher, Young, Falcao.
Ég var mjög hissa á því að sjá þessa uppstillingu satt best að segja. Þó svo ég hefi verið spenntur fyrir því að sjá Januzaj aftur í liðinu þá vildi ég frekar hafa tvo framherja, það hefur virkað ágætlega hingað til og ætti að vera sjálfgefið í leikjum gegn liðum eins og WBA. Hinsvegar hefur Van Gaal þótt þessi leikur vera ágætis undirbúningur fyrir erfiða leiki gegn framundan gegn Chelsea og Man City, leikir þar sem líklegra er að við sjáum þetta kerfi notað. Varnarlínan sat hátt uppi en á sama tíma sátu framherjar liðsins frekar aftarlega á vellinum. Á tímabili þegar WBA var að spila boltanum meðal sinna varnarmanna þá komst nánast allt United liðið fyrir í miðjuboganum. Með allt þetta pláss fyrir framan og aftan, fóru WBA grimmir af stað og virtust ætla að sækja sér mark snemma, þetta gerðu þeir með því að dæla boltanum fram á sína kantmenn eða hinn snögga framherja Berahino. Þetta virkaði eftir aðeins 8 mínútur, þá skoruðu þeir mark eftir sömu uppskrift og mörg önnur mörk á þessu tímabili. Shaw fór full langt úr sinni stöðu og skildi eftir mikið pláss á vinstri kantinum fyrir Wisdom til að vaða upp og gefa fyrir, þar sem Sessegnon tók glæsilega við boltanum og smellti honum upp í vinstra hornið.
Fram að hálfleik var United meira og minna með öll völd á vellinum en hugmyndaleysið var algjört. Di María var sá eini sem virkaði hættulegur á meðan Mata og Januzaj voru slakir, því miður. Van Persie var svo einn að ströggla upp á toppi, reyna að búa sér til eitthvað pláss en ekkert gekk.
Í hálfleik gerði Van Gaal eina mikilvæga breytingu á liðinu þegar hann tók Herrara útaf og setti Fellaini inn á. Það tók Belgann ekki nema 3 mínútur að stimpla sig inn, hann gerði sig stórann og stæðilegan í boxinu hjá WBA, tók fyrirgjöf Di María niður og þrumaði boltanum svo glæsilega upp í þaknetið. Flott hjá stráknum og maður sá vel á fagninu hversu lengi hann var búinn að bíða eftir þessu marki. United virkaði mun líklegri til að bæta við marki eftir þetta, en á 66 mínútu verður vörnin enn og aftur ósamstíga. Jones stígur úr línunni, skilur Rafael eftir, sem gerir Berahino réttstæðan þegar stungusending kemur inn fyrir vörnina. Berahino setur boltann svellkaldur framhjá De Gea í markinu og okkar menn komnir undir gegn gangi leiksins. Síðan tók við sama eyðimerkurgangan og var í fyrri hálfleik. United heldur boltanum en gengur lítið að koma honum í hættuleg færi. Falcao kom loksins inn á 72 mín og liðið breytir í 4-4-2, en það fór síðan út um þúfur á 78 mín þegar Di María þarf að fara af velli vegna meiðsla og inn kemur vinur okkar Ashley Young. Núna vorum við með tvo óhæfa kantmenn, þá Young og Januzaj.
Það stefndi því allt í 2-1 sigur WBA þangað til á 87 mín þegar Daley Blind (fallegasti maðurinn á Englandi) skoraði með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig. Fjórum mínútum var bætt við venjulegan leiktíma og var United í þungri sókn allan tíma, en allt kom fyrir ekki, 2:2 jafntefli staðreynd.
Það voru of margir leikmenn að spila illa í dag og þar voru Mata og Januzaj e.t.v. verstir. Jones + Herrera voru klárlega ryðgaðir og aðrir voru meira og minna undir pari. Þetta var í fyrsta skipti sem þessi varnarlína spilar saman í vetur. Þó svo ég sé spenntastur fyrir þessum fjórum, þá sást æfingaleysi þeirra vel, þeir áttu sína ágætu kafla en inn á milli komu slæmir kaflar. Það er þessi óstöðuleiki sem er að fara illa með United þessa daga. Einnig verð ég að skella smá skuld á Van Gaal fyrir að hafa notað þetta kerfi. Ég skil ekki af hverju United fór varfærnislega inn í þennan leik, eins og þeir væru að spila gegn einu besta liði heims. Menn virtust ekki alveg klárir á því hvað ætti að gera og WBA átti frekar auðvelt með að leysa upp spilið. Við höfum oft séð þetta áður í vetur. Maður leiksins að mínu mati var Fellaini, hann kom inn á og spilaði eins og hann var vanur að gera með Everton, framarlega á vellinum, grimmur, stór og sterkur. Það var hann sem olli WBA mestum vandræðum.
Eftir viku er leikur við Chelsea á Stamford Bridge. Þar mætir United taktískum snillingi í Mourinho og það er alveg klárt mál að hann veit upp á hár hvar veikleikar United eru. Okkar menn verða að mæta mjög grimmir og einbeittir til leiks, þá getur allt gerst. Ef það á að draga sig eitthvað til baka og vera stressaðir, þá er voðin vís.
Sigurjón says
Rauðhaus var næstum því með þetta rétt í gær. Góður!
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Falcao á bekknum, hmmm, ekki það sem ég hefði viljað. En þetta er alls ekki slæmt lið á vellinum hjá okkur :D
Halldór Marteinsson says
Dauðafæri fyrir Van Persie að stíga upp í þessum leik og stimpla sig almennilega inn þetta tímabil.
Get annars ekki beðið eftir að sjá hvernig Januzaj nær að synka með Di Maria og Mara. Gæti orðið algjör veisla!
Björn Friðgeir says
Alveg svakalega spenntur að sjá hvernig þess þriggja manna lína Di María, Mata og Januzaj stendur sig!
Svo kemur Falcao inn í seinni
Fannar Gíslason says
Þvílíkt lið en það verður að koma Falcao í liðið.
Gunnar Örn Eiríksson says
Selja RVP hann getur ekkert lengur gatt ekkert í fyrra og hefur ekki gert neitt nema klúðra færum aftur og aftur fyrir United. Fara til Wenger og biðja um skipti fá Danny aftur fyrir RvP
Hanni says
Svolítið hugmyndaleysi í gangi. Mynnir á leik Utd undir stjórn Moyes.
Enginn góður og RVP, Mata og Januzaj sérstaklega lélegir.
Bósi says
Átti það ekki að vera gefið að RVP myndi blómstra undir LVG ? #justsaying
Robbi Mich says
Í alvöru, gyrtu þig í brók Man. Utd!
Gauti says
Shaw er afgerandi slakasti maður vallarins að mínu mati
Keane says
Januzaj er ofmetinn. Djöfull er hann slappur. Shaw og Rafael stórslys.
DMS says
Gott dæmi um leik þar sem einföld varnarmistök kosta okkur dýrt, enn og aftur. Hefðum vel getað skorað fleiri mörk en það vantar klárlega meiri einbeitingu og aga í varnarleikinn. Augnabliksmistök kosta okkur alltof mikið.
Shaw tapar einvígi og Di Maria gerði ráð fyrir að hann myndi vinna það og fylgdi ekki sínum manni niður, skyndisókn upp kantinn og mark.
Rafael byrjar að horfa á leikinn og gleymir að staðsetja sig með varnarlínunni sem er mjög hátt uppi. Spilar manninn réttstæðan, sleppur einn í gegn og mark.
Að öðru leyti fannst mér WBA aldrei sérstaklega líklegir.
Ég er hræddur um að Chelsea og City munu stinga af ef fram fer sem horfir, og hin liðin munu berjast um tvö laus meistaradeildarsæti. Það eru risaleikir framundan hjá okkur. Verður Rooney enn í banni þegar við mætum Chelsea 26. okt ?
silli says
Það er nú meira hvað fótbolti getur verið ósanngjörn íþrótt – WBA með 2 skot sem hittu á rammann en UTD alveg helling.
Mér fannst RVP miklu skárri í holunni heldur en uppi á topp, þó ég myndi helst vilja hvíla kallinn alveg.. og lengi.
Fyrir utan hvað Januzaj, Mata og RVP voru slappir… og hrikaleg mistök hjá Jones í seinna markinu, fannst mér nokkrir ljósir punktar – og gaman að sjá belgíska slánann koma svona sterkan inn.. frábært ef hann kemst í gang, sérsaklega á móti háloftaboltaliðum…
Nú er bara að vona að Di Maria og Herrera verði klárir fyrir Chelsea.. já og að LVG gleymi að setja RVP á skýrslu.
Siggi says
Algjör skita.
RVP ömurlegur
Rafel ömurlegur
Shaw ekki ömurlegur heldur lélegur í dag.
Vörnin er enþá stórt vandamál en lið með alla þessa sóknarmöguleika á að klára svona leiki. Ef viss um að liðið væri ekki í verri málum með Moyes gamla.
Eftir frekar þægilegt leikjaprógram er Chelsea, Man City, C.Palace, Arsenal í næstu 4.leikjum og efast ég um 12 stig úr þessum leikjum.
Liverpool, Arsenal og Tottenham öll að drulla á sig en samt ná Man utd ekki að nýta sér það og verður fróðlegt að sjá stöðuna eftir næstu 4 umferðir.
Tony D says
Er ekki viss um að menn hafi verið jafn slappir og menn vilja meina enda gekk sóknarleikurinn nokkuð vel lengi vel. Vantar mest upp á greddunua í að klára sóknirnar og enda allar sóknir með skoti. Boltinn tapaðist full oft á miðjunni vegna kæruleysis hjá Mata og Herrera en það vantar gríðarlega mikið upp á í varnarleiknum að menn klári brot eða fylgi hlaupum andstæðinganna eftir. Ég er ansi hræddur um að það verði markaveisla í næstu leikjum en aðallega í netið okkar.
Rosalega eru menn tæpir á því að henda sér ekki á sp réttinn eftir mönnum þegar eitthver lendir úr stöðum sbr þegar Jones og Shaw gera það í mörkunum. Menn eru ekki með fókusinn á mönnum heldur boltanum og eru allt of lengi að snúa úr sókn í vörn og loka á upphlaupin sem er forsenda þess að spila hátt á vellinum.
Er það bara ég eða er De Gea full aftarlega þegar menn sleppa einir í gegn? Hann á ekki séns í að verja boltann ef það koma góð skot svona aftarlega?
En Blind alveg að vinna vel, Di Maria flottur, Janujaz þarf fleiri sénsa og gott að fá Jones aftur. En Persie þarf að fara að sitja á tréverkinu, Falcao er allt of góður til að hanga þar meðan Persie varla þátt í leiknum?
Að lokum…. Hvað þarf eiginlega til svo að Utd fái víti??!!
Hjörtur says
Ég held að þessir varnarmenn okkar, sem eru alls ekki fótfráir, ættu að fara að halda sig í vörnini, en ekki einhverstaðar langt út á velli. Þessi tvö mörk sem liðið fékk á sig, var fyrir það að varnarmenn okkar voru stungnir af, þar sem þeir voru einhverstaðar út á miðjum velli, af sóknarmönnum WBA sem voru eitil fljótir, og okkar menn höfðu ekki roð við. Það er engin hætta á því að þessi dómari gefi okkur víti, það þarf mikið að ganga á svo það verði.
silli says
Tony D… Nákvæmlega- það vantar gredduna frammi. Það voru helst miðjumennirnir sem sýndu einhverja greddu (Blind, Fellaini og Di Maria sem leikur náttúrulega allar stöður á vellinum).. RVP átti frábæran séns á stoðsendingu en kaus frekar að bomba í gegnum pakkan á meðan Mata var dauðafrír, nánast fyrir opnu marki..
..
En að mörgu leiti flottur leikur, þó úrslitin segi annað..
silli says
…og ein spurning í lokin- Hvar eru allar tíurnar þegar á þarf að halda.. í Swansea kannski? :)
Sigurjón says
„…enda gekk sóknarleikurinn nokkuð vel lengi vel. Vantar mest upp á greddunua í að klára sóknirnar …“
Er það ekki akkúrat ástæðan fyrir því að sóknin gekk ekki vel í þessum leik?
Þessi tölfræði finnst mér segja meira en margt annað:
43 krossar reyndir, aðeins 7 gengu upp. Aðeins ein rangstöðusending í öllum leiknum.
Ég er ekki að segja að það sé allt í rugli ennþá hjá United, en það er smá hugmyndaleysi ennþá í gangi. Það reyndar einskorðast við útileiki því heimaleikirnir hafa augljóslega gengið mun betur.
Rúdólfur says
náum 10 stigum útúr næstu 8 leikjum því miður kíkiði bara á prógramið ! liverpool fá hinsvegar 20-21 stig af sínum átta svartir tímar framundan
Elmar says
Ok spámaður #20 takk fyrir að láta okkur hin vita. Eigum við ekki bara leyfa þessu að spilast eins og þetta spilast ;)