Eftir svekkjandi tapið gegn Manchester City um síðustu helgi er komið kjörið tækifæri til að komast á nauðsynlegt ‘run’ í deildinni. Næstu fjórir leikir eru gegn Crystal Palace, Arsenal, Hull og Stoke. Krafan hlýtur að vera á 12 stig úr þessum leikjum (Moyes tókst ekki að tapa gegn Arsenal). Ef að markmiðið er meistaradeildarsæti þá þarf liðið að byrja að safna stigum.
Það er orðið ljóst að tefla fram vörn í næsta leik verður áhugavert púsluspil þar sem 3 aðal miðverðirnir eru meiddir og Smalling í banni. Marcos Rojo verður frá í sex vikur eftir að hafa tognað á öxl gegn City. Síðan er Rafael ennþá meiddur sem eru bara góðar fréttir fyrir Antonio Valencia.
Eins og Björn Friðgeir kom inná í nýjasta hlaðvarpi Rauðu djöflanna þá býst hann við/vonast eftir að sjá Paddy McNair og Tyler Blackett sem miðvarðarpar United eftir áramót. Ég persónulega væri til í að sjá þá í þessum leik en tel það ólíklegt að báðir byrji leikinn. Ashley Young er enn meiddur og eru einhverjir líklega búnir að gleyma honum. Svo er enn einhver bið eftir Falcao sem er ekki meiddur á hné. Vildi bara koma því að til þess að róa þá allra hræddustu.
Ég er að vonast eftir að Van Gaal stilli upp tígulmiðju (eða teningsmiðju ef þú ert Sigurjón). Það er hreinlega langbesta leiðin til að fá það besta úr Di María. Hann á alls, alls ekki vera úti á kanti.
Crystal Palace virðast dottnir úr gírnum sem Tony Pulis kom þeim í síðasta vor. En þeir sitja nú í 17. sæti með 9 stig. Þeir einmitt töpuðu sínum síðasta leik gegn Sunderland 1-3 á heimavelli. Einu sigrar Palace voru gegn Everton á Goodison og gegn Leicester á Selhurst Park.
Það er vandasamt verk að spá fyrir um byrjunarlið United en þetta verður að teljast ansi líklegt:
Guðni Albert Kristjánsson says
Geri ráð fyrir að Wilson detti út og mata komi inn og Rooney uppá topp annars sammála þessu liði.
Hafsteinn Hugi Hafsteinsson. says
Það er almennt talið í fjölmiðlum ytra að Wilson fái að byrja þemnnan leik, og pælingin virðist vera að Van Persie verði á bekknum, sem þýðir væntanlega, þ.e. samkvæmt slúðrinu að Mata eða Janusaj byrji.
Reyndar er liðið að ofan ekkert ólíklegt að mínu mati, vildi bara koma hinum pælingunum að.
Svo eru einhverjir að hvísla að Herrera sé klár, en hvort hann byrji veit maður ekki. Ég er hrifinn af baráttunni í Herrera og hann virðist vera ákafur í að standa sig en hlutirnir hafa ekki alveg fallið með honum hingað til.
Björn Friðgeir says
Það er virkilega farið að líta út fyrir að Wilson fái sénsinn á morgun!
Þau sem hlustuðu á hlaðvarpið vita hvað ég er spenntur fyrir því!