Fyrst það er ekkert annað að gerast í dag er ekkert að því að fara aðeins yfir uppgjör fyrsta ársfjórðungs rekstrarársins, þ.e.a.s. júlí – september sem birt var núna í hádeginu. Eins og við var búist er um þó nokkra tekjulækkun að ræða frá fyrra ári, eða um 10% í heildina. Þar munar mestu um að tekjur af leikjum lækka um 21% og sjónvarpstekjur lækka um 13,5. Auglýsingatekjur lækka um 5,5% og sölutekjur af varningi um heil 21%. Allt þetta kemur til vegna fjarverunnar úr meistaradeildinni, það síðastnefna vegna ákvæðis í samningnum við Nike
Í peningum talið voru heildartekjur ársfjörðungsins 88,7m punda og hagnaður var 8,9m punda. Skuldir hækkuðu um milljón pund í 362m punda.
Woodward vinur okkar er samt ekki svartsýnn og United lét frá sér eftirfarandi myndir til að sýna að tekjuleysi yrði ekki vandamál
(athyglisvert samt að á seinna grafinu er United treyjan um 3,7 sinnum stærri en barcelona og real treyjurnar… það er svona að hafa lesið ‘How To Lie WIth Statistics einhvern tímann)
Annars segir Daily Telegraph okkur að Evans, Jones og Falcao séu allir líklegir til að vera tilbúnir í Arsenal leikinn um helgina. Er of snemmt að spá því að Evans og Jones byrji og að amk annar þeirra fari svo meiddur útaf?
Auðunn A Sigurðsson says
Shaw og Di Maria urðu fyrir einhverju hnjaski í leikjum kvöldsins, vonandi að það sé ekki alvarlegt.
Að spila vináttuleiki á þessum tímapunkti er algjörlega galið, álagið er alveg nógu mikið fyrir.
Bjarni Ellertsson says
Ekki nóg með það að Nani tæklaði Di Maria. Fróðlegt verður að sjá hvernig liðið verður skipað á laugardaginn.
Björn Friðgeir says
Og Fletcher laskaðist eitthvað líka. Það er þá 13. maðurinn á meiðslalistanum
Vonandi ættu samt einhverjir af þeim að vera góðir fyrir helgina.
Rauðhaus says
Alveg magnað, eiginlega gjörsamlega sturlað. Meiðslalistinn var óraunverulegur fyrir landsleikjahléið en svo koma nánast allir meiddir til baka þaðan líka!! Di Maria, Shaw, Carrick, De Gea, Fletcher og Blind. Þetta er algerlega fáránlegt.
Cantona no 7 says
Við byrjum 11 inn á á móti Arsenal eins og þeir.
Við unnum þá 8-2 með varalið og vinnum þá aftur nú.
G G M U