Lespakki vikunnar kominn í hús og er hann svo sannarlega góður í þetta skiptið. Njótið vel!
Lesefni vikunnar:
- Einn af njósnurum sem starfar fyrir United, Torben Akjaer, lenti í talsverðum vandræðum eftir að blaðamenn grófu upp fjölmörg niðrandi ummæli hans um innflytjendur og var á endanum rekinn. Svo eftir að hafa fyrst haldið því fram að Facebook-aðgangur sinn hafi verið hakkaður sneri hann vörn í sókn og sagði að United hefði ekki átt að reka sig, hann hafi aðeins verið að tjá skoðanir sínar.
- Það eru fleiri sammála ritstjórn Rauðu Djöflanna um Van Gaal vs David Moyes.
- Það er enginn vafi hvor er betri stjóri, Van Gaal eða Moyes, að mati Adrian Durham.
- Jamie Carragher er á því að heppni sé ástæðan fyrir því að það sé minni pressa á Louis Van Gaal en var á David Moyes.
- Michael Cox/Zonal Marking greinir hvað er að hrjá sóknaruppbyggingar United.
- Jonathan Wilson telur að United sé á réttri leið undir stjórn Louis van Gaal.
- Louis van Gaal hefur hinsvegar ekki áhuga á skoðunum sófaspekinganna.
- Meira frá Michael Cox/Zonal Marking. Hann er ekki hrifinn af því hvernig Louis van Gaal er að nýta sér hæfileika Angel di Maria.
- Blaðamenn, leikmenn, umboðsmenn og stjórnarformenn útskýra hvað er í gangi á bakvið tjöldin í leikmannaslúðrinu í þessari umfjöllun FourFourTwo.
- Það verður önnur hreinsun í sumar ef marka má þessa frétt.
- Luke Shaw í opinskáu viðtali um United, eigið form og Louis van Gaal.
- Ed Woodward vill ekki greiða umsamið verð fyrir Falcao.
- Andy Mitten telur að lán til annars félags sé fullkomið tækifæri fyrir Adnan Januzaj.
- Adam Crafton hjá Daily Mail svarar nokkrum spurningum um De Gea..
- Gary Neville settist niður með Stretty News og hafði margt áhugavert að segja. Hann er til dæmis ekki hrifinn af 3-5-2 kerfinu hans Van Gaal.
- Calderon segir Real Madrid ekki þurfa De Gea að halda (Vinsamlegast látið hann þá vera!).
- Strootman fæst ekki gefins segir forseti Roma.
- Andy Mitten veltir fyrir sér stöðu mála varðandi Falcao.
- Telegraph-menn taka saman slúðrið og þar ber helst að nefna að Adidas ætli sér að borga United fyrir að kaupa Messi. Mhm.
- Pete O’Rourke hjá Sky Sports sagði frá því að Valencia CF hafi fengið 27 milljónir punda tilboð sem talið er vera frá United í Nicolas Otamendi varnarmann Valencia CF. Á sama tíma segir Stuart Mathieson hjá MEN, hinsvegar að United sé ekki að reyna kaupa hann. En burtséð frá því þá vill Matt Gault á BackPageFootball meina að Otamendi sé rétti maðurinn fyrir United.
- Fyrirgefðu… Má Michael Owen tjá sig um framherja sem feila hjá united??
- Kærastan hans David de Gea mun flytja lag Spánar í Eurovision á þessu ári.
Tíst vikunnar:
Amazing concert!!! @slipknot pic.twitter.com/BfnHgHDlAk
— David De Gea (@D_DeGea) January 20, 2015
Lag vikunnar:
Auðvelt val út af tísti vikunnar
Slipknot – „Spit it out“
Skildu eftir svar