Ónefndur ritstjórnarmeðlimur var aðeins of snöggur á sér og kom með upphitun fyrir leikinn gegn PSG sem verður aðfaranótt fimmtudags.
Til að gera okkur ekki öll viðþolslaus úr spenningi var greinin látin hverfa og þau sem vöknuðu seint þurfa að bíða.
Annars er það helst að frétta að Marcos Rojo klúðraði vegabréfsáritunarmálum og kemst ekki til Bandaríkjanna, enginn veit hvar Ángel di María er og United er búið að hafna 28,5 milljón punda boði í hann, Pedro málið er enn málið, Ramos er ekki búinn að skrifa undir samning, og
As I've reported all summer. United not interested in otamendi. Sources say 'he's the new gaitan' No interest in either
— James Robson (@JamesRobsonMEN) July 28, 2015
DMS says
Sá að United ætluðu að sekta Rojo fyrir að klúðra þessu með vegabréfið og mæta of seint í æfingaferðina, upphæðin sem var nefnd í því samhengi var 130þús pund.
Hvað Di Maria varðar, þá hlýtur hann að fá enn stærri sekt fyrir sitt stunt. Enginn virðist vita hvar hann er. Þessir Argentínumenn eru ekkert nema vesen. Hrikalega unprofessional framkoma.
Björn Friðgeir says
Þetta eru væntanlega tveggja vikna laun, held að það sé enn gamla reglan að liðin megi bara sekta leikmenn um tveggja vikna laun max.
Hvað varðar Di María þá held ég maður segi bara sem minnst. Algerlega ömurlegt.
Ási says
Hvernig væri að klára það að fá Otamendi? Svakalegur hafsent, það er alveg ástæða fyrir því að hann var kosinn besti varnarmaður La Liga, umfram Ramos, Pique og fleiri.
panzer says
Otamendi yrði frábær viðbót. Það er mikið slúðrað um Pedro þessa daganna. Það er alltof góður leikmaður til að sitja á bekknum og kannski eðlilegt að hann vilji breyta til fyrir komandi Evrópumót. Ég myndi heldur betur sætta mig við Pedro inn – Di Maria út miðað við undanfarna daga.
Di Maria hefur droppað svakalega í álíti. Hann átti frekar slakt fyrsta tímabil en það er alls ekki óalgengt fyrir leikmann frá S-Ameríku sem koma inn í ensku deildina. Í stað þess að berjast og reyna gera betur virðist vera sem hann vilji fara flýja til Parísar og þori ekki ekki að face’a Van Gaal. Tek öllu sem maður les með miklu fyrirvara en þetta lítur ekki vel út hjá honum.
Þessi fyrirsjáanlega Ramos ‘saga’ virðist fara að enda með spikfeitum samningi. Ég er samt án djóks farinn að trúa því að hann hafi í alvöru viljað fara en Perez sett stólinn fyrir dyrnar. En djöfull vona ég að Woodward gefi ekki þumlung eftir og haldi De Gea út árið.
Björn Friðgeir says
Það er fleiri en einn blaðamaður alveg harður á því að Otamendi sé ekki skotmark
en Karim Benzema er að gera allt vitlaust með þessu instagrammi: „Látum hið liðna vera liðið #rip #Íátttilframtíðar“ segir hann í einkaflugvélinni
https://instagram.com/p/5rcgHWF3ca/
og það er kapphlaup milli United og Arsenal stuðningsmanna að vera með meiri væntingar :)
DMS says
Einhvern veginn finnst manni Arsenal vera líklegri áfangastaður fyrir Benzema. Ekki nema United séu búnir að fá nóg af störukeppninni við Real varðandi De Gea og Ramos og sætti sig við Benzema í staðinn.
En það verður að segjast eins og er að Arsenal verða komnir með hörku lið ef Benzema bætist í hópinn hjá þeim.
panzer says
Benzema til Arsenal yrðu risastór kaup.. kæmu pínu á óvart miðað við að Arsene Wenger var að skjóta á United í vikunni fyrir kaupgleði. Öll liðin í kringum United að styrkja sig rækilega, meira að segja Liverpool virðist vera gera ágætis kaupa. Næsta tímabil verður rosalegt.
Hafsteinn says
Mjög vont samt ef það er rétt sem er í fréttum núna að enginn miðvörður verður keyptur. Vantar leiðtoga í vörnina sem gerir Smalling/Jones að betri leikmanni.
DMS says
Held að það helsta sem þurfi til að Smalling/Jones verði betri er að þeir haldist sæmilega heilir nógu lengi í einu.
En það eina jákvæða við að enginn varnarmaður verði keyptur fyrst Ramos kemur ekki er sú staðreynd að þá munum við allavega fá að njóta krafta De Gea í 1 ár til viðbótar.