PSV Eindhoven
PSV varð hollenskur meistari í vor í 22. skipti. Liðið hefur einu sinni unnið Evrópukeppni meistaraliða en það var tímabilið 1987-88. Liðið sigraði Benfica í úrslitum 6-5 eftir vítaspyrnukeppni eftir markalausan leik.
CSKA Moskva
CSKA lentu í 2.sæti í rússnesku deildinni í vor en liðið hefur samt unnið hana tólf sinnum. Liðið hefur aldrei sigrað í Meistaradeild Evrópu en vann þó UEFA bikarinn 2005.
VFL Wolfsburg
Wolfsburg átti frábært tímabil í Bundesliga í fyrra en það lenti í 2.sæti á eftir rándýru liði Bayern. Liðið hefur einu sinni unnið deildina en var 2008-09. Þetta er bara í annað skiptið sem liðið kemst í Meistaradeild Evrópu en síðast lenti liðið í riðli með Manchester United, CSKA Moskvu og Beşiktaş.
Rúnar Þór says
lúmskt erfitt en eigum samt að komast öruglega áfram. Wolfsburg klárlega sterkasta liðið úr pot 4, langaði svo að fá Kára og Malmö :(
svo gæti úti gegn Moskva verið leiðinlegt ef það verður snjór og frost
Runólfur Trausti says
Frekar fyndið að Wolfsburg sé að fara í riðlakeppnina í annað skiptið og takist að draga 2 af 3 liðum sem það dró síðast.
Hefði alveg verið til í að sjá liðið fá Malmö, og mögulega skemmtilegri / betri andstæðing úr Pot 1. En það er nokkuð ljóst að allt annað en sigur í riðlinum er stórslys. Að því sögðu þá held ég að flestir hefðu verið til í að sleppa við heimsókn til Rússlands og Tyrklands. Held að hvorki stuðningsmenn né leikmenn gleðjist sérstaklega mikið við þau ferðalög.
Að lokum spái ég því að liðið vinni riðilinn, fáum svo Benfica/Galatasaray eða í 16 liða og dettum út gegn Barca / Real / Bayern í 8 liða.
– RTÞ