Meistaradeildarkvöld á Old Trafford…fátt betra og það er eitt slíkt í vændum enda er PSV á leiðinni í heimsókn. Við höfum að harma að hefna, ekki bara fyrir tapið í fyrstu umferð riðlakeppninnar heldur einnig fyrir fótbrotið á Luke Shaw [footnote]Endurhæfing hans gengur btw vel og von er á því að hann fari í skoðun á næstu dögum svo hægt sé að meta framhaldið[/footnote]
Það var ekkert sérstök byrjun á riðlakeppninni en United hefur rétt úr kútnum og sigur á morgun tryggir ósköp einfaldlega sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Við erum því á ágætis róli, engar flugeldasýningar kannski en allt á réttri leið, nákvæmlega eins og í deildinni.
PSV
Ég fór ágætlega yfir Philip Cocu í upphituninni fyrir fyrri leikinn og því er tilvalið að kíkja á það séu menn áhugasamir um þennan ágæta stjóra sem gerði PSV að Hollandsmeisturum á síðasta tímabili.
Liðið er líka að gera ágætis hluti Í Meistaradeildinni og er með sex stig í 2. sæti, einu stigi á eftir okkar mönnum. Staðan er þannig að öll liðin eiga möguleika á því að fara áfram. PSV fær CSKA í heimsókn í lokaumferðinni og er því í ágætri stöðu nái þeir í stig eða meira á morgun.
Hollendingarnar hafa reyndar ekki miklar rósir á útivöllum og tapað báðum sínum leikjum hingað til og stigin sex hafa öll komið á heimavelli.
Heima fyrir eru þeir á ágætis róli, í þriðja sæti á eftir erkifjendunum í Ajax. Um helgina gerði liðið jafntefli við WIllem II í tiltölulega erfiðum útileik þar sem þeir lentu 2-1 en náðu að jafna fyrir rest.
Uefa segir að Lestienne, Koch og Willems séu meiddir. Það er ágætt, Lestienne hefur verið sérstaklega sprækur fyrir PSV í vetur og lagði m.a. upp seinna mark liðsins gegn United en hann er þeirra stoðsendingahæsti leikmaður.
Öðru leyti eru allir heilir og Cocu getur nokkurnveginn stillt upp sínu sterkasta liði á morgun.
United
Það er nú varla hægt að segja það sama um United en að undanförnu hefur ákveðið meiðslavandamál læðst aftan að okkar mönnum eftir frekar meiðslafrítt tímabil. Leikurinn gegn Norwich var smá púsluspil enda virtist annar hver leikmaður meiðast í þessu fullkomlega tilgangsmikla landsliðshléi.
Jæja, hvað um það. Van Gaal splæsti í blaðamannafund í dag og þar kom fram að Wayne Rooney og Anthony Martial eru fullsprækir og til í tuskið. Það sama er ekki hægt að segja um Phil Jones [footnote]SHOCKER![/footnote] og Ander Herrera sem eru á meiðslalistanum ásamt Valencia, Carrick og auðvitað Shaw.
Gæti verið verra.
Leikmennirnir æfðu fyrir leikinn í dag og það var mikið af u21-leikmönnum á æfingunni þannig að það er spurning hvort að einhver þeirra fái sénsinn á bekknum eins og undanfarið. Bastian fékk svo hvíldardag í verðlaun fyrir þetta yndislega mark sem HANN skoraði á laugardaginn.
Ég átta mig ekki alveg á því hvernig við gætum séð liðið á morgun. Það kæmi mér ekkert svo á óvart ef Blind myndi skella sér á miðjuna, svona aðeins til þess að Bastian smá frí. Sér einhver fyrir sér miðju með Schneiderlin og Fellaini? Það hljómar einhvernveginn einum of á heimavelli þar sem við munum vera með 65 prósent possesion.
McNair gæti jafnvel fengið að koma inn við hlið Smalling. Í raunar skiptir engu máli hver er með Smalling, hann er orðinn það öflugur. Setjum Darmian og Young eða Rojo í bakvörðinn.
Ég vil endilega sjá Lingard nýta tækifærið sitt og Memphis má byggja á fínni frammistöðu. Setjum Rooney þarna með þeim en leyfum Martial að hvíla svo hann jafni nú sig alveg fullkomnlega á þessum meiðslum sínum.
Verkefnið er einfalt. Sigur og farseðilinn í útsláttarkeppnina er bókaður. Það myndi létta pressuna og það er fínt að þurfa ekki að fara til Wolfsburg með það á bakinu að verða að ná í úrslit til að fara áfram.
Heimavöllurinn er drjúgur og ég spái 2-0 sigri, bæði mörkin í seinni. Lingard og McNair stangar hann inn.
Leikurinn hefst kl. 19.45, miðvikudagskvöld.
Runólfur Trausti says
Mig grunar að það verði einhverjar hrókeringar á liðinu. Vegna meiðsla og svo vegna þess að við eigum TOPPSLAG UM NÆSTU HELGI (Hversu langt síðan hægt var að segja þetta?).
Reyndar er téður TOPPSLAGUR gegn Leicester en ekki Chelsea / Man City / Arsenal en ég meina, tvö efstu lið deildarinnar mætast um næstu helgi.
Ég er samt engu nær hvað varðar byrjunarlið. Kæmi mér ekki á óvart ef liðið myndi spila 3-4-1-2 drama leikkerfi okkar allra. Ég ætla þó að spá því að Juan Mata detti á bekkinn og mögulega komi Darmian úr frystinum.
Að lokum verð ég að minnst á hversu fyndið mér finnst allt tal hans Van Gaal um fljótari kantmenn, hann ræðir varla annað en að liðinu vanti hraða á vængina en samt sem áður losaði hann sig við fljóta leikmenn í þeim stöðum (Nani, Zaha, Welbeck?) og færði aðra tvo í bakvörð (Young, Valencia) en spilar svo tveimur frekar hægum einstaklingum á kantinum (Lingard, Mata). Hann er soddan flippari hann Van Gaal okkar.
Annars spái ég 2-0 heimasigri. Síðara markið í blálokin. Rooney og Martial skora.
Bjarni Ellertsson says
Góð samantekt, ég vona bara að menn láti ekki kappið bera fegurðina ofurliði. Fótboltaleikur snýst um að skora mörk og helst fleiri en andstæðingurinn þannig að mín von er við þurfum ekki að bíða fram í seinni hálfleik eftir marki. Það er ávísun á að brugðið geti til beggja vona og ekki nægur timi til að rétta úr kútnum. Alvega sama hver leikur frammi hjá okkur, einn eða tveir, aðal atriðið er að þeir fái þá þjónustu og hafi eitthvað annað að gera en spila sem batti fyrir miðjuspilið. Finnst Scholes hafa eitthvað til síns máls þegar hann bendir á það að einn þátturinn að Rooney hafi ekki byrjað vel er spilamennska liðsins í heild sem fram fer að mestu á miðjunni.
Það er tvennt í stöðunni að mínu mati, leikurinn verður jafn og ræðst á marki í lokin fyrir annað hvort liðið eða að við rúllum yfir þá með þriggja marka mun.
Bjarni Sveinbjörn says
19 ára guttarnir teknir í bakaríið af PSV, vonandi ekki það sem koma skal í kvöld. GGMU