Undanfarin ár hefur borið nokkuð á því að yngri flokka starf Manchester United sé ekki jafn gott og það var áður. Sögurnar segja að ljósblái nágranni félagsins standi mun betur að vígi heldur en Djöflarnir okkar. Var hlaupið yfir þetta í grein eftir undirritaðan sem birtist í september síðastliðnum, má lesa hana hér.
Nú eru komnir 10 mánuðir síðan Brian McClair hætti sem yfirmaður yngri liða Manchester United. Umrædd staða svipar eflaust til yfirmanns yngri flokka hér heima en þar sem þetta er Manchester United en ekki Knattspyrnufélag Reykjavíkur þá er staðan eflaust veigameiri en við áttum okkur á. Á þessum 10 mánuðum hefur enginn verið ráðinn í starfið. Mér skilst að Nicky Butt hafi hlaupið í skarðið og verið að sinna hluta af starfinu en betur má ef duga skal. Þrátt fyrir árangur U21 liðið undanfarið þá hefur árangur U18 liðsins verið hreint út sagt hörmulegur þrátt fyrir marga efnilega drengi. Málið er hreinlega að það virðast alltof margir drengjanna vera að spila upp fyrir sinn aldursflokk og það skilur hvern árganginn á fætur öðrum eftir með fáa, og ef til vill ekki nægilega góða, leikmenn. Sem dæmi má nefna að í U19 ára Meistaradeildar kepninni byrjaði United einn leik með tvo 16 ára gutta inn á.
Samkvæmt The Guardian þá stefnir í að það verði tveir menn ráðnir og starfinu skipt í tvennt, annar væri í hinu klassíska yfirþjálfarastarfi og myndi hafa yfirumsjón með allri þjálfun á meðan hinn séi um greiningu gagna og almenn stjórnunarstörf yngri flokka. Þessir tveir aðilar myndu vinna saman dagsdaglega. Einnig er verið að undirbúa ráðningu fleiri þjálfara sem myndu eingöngu vinna með yngri liðunum sem og það er í vinnslu að ráða fleiri njósnara (e. scouts) í fullt starf, eða fá þá sem eru í hlutastarfi hjá félaginu nú þegar í fullt starf.
Í sömu grein kemur fram að félagið sé að velta fyrir sér að byggja völl sem er eingöngu fyrir yngri flokka liðsins en sem stendur spilar U21 liðið á Leigh Sport Village en þar spilar einnig U21 lið Blackburn sem og Leigh Centurions sem er ruðningsfélag. Manchester United er sum sé að leigja völlinn sem heimavöll U21 liðsins á meðan U18 ára liðið spilar sína leiki á æfingasvæði félagsins og einstaka leik á Leigh Sport Village.
Umræddur völlur tekur 12 þúsund manns í sæti sem er full mikið þegar kemur að venjulegum U21, eða U18, leik. Við Íslendingar ættum að þekkja það manna best hversu lítil stemmnign myndast á hálf tómum velli en þangað til á síðasta ári var Laugardalsvöllur oftast hálftómur. Svo er vert að minnast á það að U21 liðið hefur verið á eilífu flakki undanfarin ár en það hefur spilað heimaleiki sína á fimm mismunandi völlum á síðustu 5-10 árum. Það er því ljóst að heimavöllur á æfingasvæði félagsins, sem er eingöngu fyrir Manchester United ætti að hjálpa til við að mynda betri umgjörð fyrir leikmenn og stuðningsmenn félagsins heldur en núverandi fyrirkomulag.
Það virðist sem United sé loksins farið að taka City alvarlega en það að leikmenn félagsins hafi sent syni sína frekar í yngri flokka starf City var fyrsta viðvörunin. Hin viðvörunin var massíft æfingasvæði sem City byggði fyrir yngri liðin sín, fyrir litlar 200 milljónir sterlingspunda. Miðpunktur þess æfingasvæðið er svo völlur fyrir liðin sem tekur 7000 manns í sæti.
Þetta virðist hafa vakið United af værum blundi en samkvæmt heimild The Times þá vill United endurheimta sálina og einkenni (e. identity) þess yngri flokka starfs sem félagið telur að bjóði ungum leikmönnum hvað mesta möguleika á að vaxa og dafna. Það er ekki rangt en Manchester United er það enska félag sem kemur hvað flestum leikmönnum í efstu deildir hvers lands fyrir sig í Evrópu. Á lista frá árinu 2013 er United á eftir spænsku risunum Barcelona og Real Madrid, og svo frönsku liðunum Lyon og Rennes.
Að lokum væri ekki hægt að minnast á United og City án þess að nefna ágreining en United virðist hafa ásakað City um fara á bakvið heiðursmanna samkomulag sem Úrvalsdeildar liðin hafa gert sín á milli þegar kemur að „stela“ leikmönnum úr yngri liðum hvors annars. City hefur neitað ásökunum.
Að öllu þessu sögðu þá er vert að benda á nokkra jákvæða punkta og það er hversu margir leikmenn yngri liða United eru að fá smjörþefinn af aðalliðinu þessa dagana. Vissulega eru aðstæður ekki frábærar, meiðsli og árangur liðsins ekki upp beint til að hrópa húrra fyrir en það er alltaf jákvætt að sjá unga gutta fá sénsinn. Hvort þeir séu nægilega góðir verður svo að koma í ljós.
Sveinn says
Æji Rúnólfur. Til að byrja með er broslegt að þú nefnir Knattspyrnufélag Reykjavíkur með þjálfarastöðuna en ekki t.d. Breiðablik. KR er með lítil og frekar ómerkilegt unglingastarf hér heima.
Varðandi önnur efnistök að þá er þetta bara staðreynd málsins – menn eru afskrifaðir um 18 – 19 ára aldur nema þeir séu farnir að banka hressilega á dyrnar. Allt annað í varaliðinu er bara uppfylling. Þetta skýrir m.a. hvers vegna það voru tveir 16 ára í byrjunarliðinu í u-19 CL. #rúst
Runólfur Trausti says
Nú veit ég ekki í hvaða typpakeppni þú ert Svíni minn en ég skal renna yfir þetta með þér.
Ég nefni Knattspyrnufélag Reykjavíkur því ég er KR-ingur, alveg eins og ég skrifa um Manchester United því ég held með þeim í enska boltanum. Ef þú vilt samlíkingar þá er KR sigursælasta félagið á Íslandi hvað varðar deildartitla, alveg eins og Manchester United hefur unnið flesta deildartitla á Englandi. Svo eru KR, eins og Man Utd, langt eftir á sínum helstu keppinautum hvað varðar aðstöðu … Spot on samanburður í rauninni.
Hvað varðar hina fullyrðingu þína þá er hún varla svarsins virði, varla. Ef þú hefðir t.d. lesið greinina sem er nefnd í byrjun þessarar greinar þá hefðiru séð að yngri flokkar United eru mjög þunnskipaðir og þar af leiðandi eru liðin varla keppnishæf. Hvað varðar að menn séu afskrifaðir í kringum 18-19 ára aldurinn þá er það með því heimskasta sem ég hef heyrt. Jesse Lingard er 22 ára gamall, ekki var hann afskrifaður. Nick Powell er 21 árs, hann er að spila núna. Sam Johnstone er að spila með varaliðinu, hann er einnig 22 ára. Guillermo Varela er annar … svo má auðvitað nefna James Wilson, Adnan Januzaj og Ben Pearson sem eru allir á láni, allir tvítugir.
Ástæðan fyrir því að 16 ára guttar eru að spila með U19 ára liðinu er hreinlega sú að U18 og U21 manna hóparnir eru alltof þunnir, þannig var Marcus Rashford á bekknum hjá aðalliðinu áður en hann hafð einu sinni spilað með U21 árs liðinu …
Ps. Runólfur, ekki Rúnólfur.
Ps2. Gleðileg Jól.
Halldór Marteinsson says
Takk fyrir þennan pistil. Geri ekki nógu mikið af því sjálfur að fylgjast með þessum hlutum svo það er gott að fá svona fínar yfirferðir við og við.
Finnst þetta hrikaleg þróun að láta unglingastarfið drabbast svona niður eins og hefur verið að gerast. Eins fínt og það getur verið að leyfa leikmönnum að spila upp fyrir sig stundum og stundum þá held ég að það geri þeim engan greiða að þurfa endalaust að vera að gera það. Og ekki græða þeir sem eftir sitja á að æfa í sífellt minni hópum. Eitt af því sem hlýtur að þurfa að fylgja þessu námi í unglingastarfinu er að læra að mynda liðsheild, að verða hluti af kjarna. Svona færslur sífellt á milli hópa koma væntanlega róti á alla flokkana.
En ég er svosem enginn sérfræðingur í þessum fræðum, kannski eru leikmennirnir að græða á þessu…
Annars er jákvætt að félagið ætli að efla þetta og setja meira í þessa vinnu, bæði með aðstöðuuppbyggingu og með að ráða fleira fólk til að sinna vinnunni. Held það muni án efa borga sig.
Svo finnst mér algjör skandall að félag á þeim stað sem Manchester United er skuli ekki halda út almennilegum kvennabolta líka. Eða bara kvennabolta yfir höfuð, það væri ágætis byrjun. En það er nú önnur umræða.
Runólfur Trausti says
Þökk sé Twitter þá er maður mun betur upplýstur en áður, auðveldara að fylgjast með þar sem það eru þó nokkrir sem virðast fylgjast vel með þessum málum úti og deila því þar.
En annars má eflaust rekja báða punktana sem þú nefnir til Glazer vina okkar. Þeir hafa séð sér leik á borði með því að draga úr unglingastarfinu og græða þar nokkra auka dollara – kannski fannst þeim ekki nægilega margir leikmenn úr akademíunni skila sér upp í aðalliðið og ákváðu því að minnka fjármagn.
Það sama á við um kvennaboltann myndi ég halda. Nú veit ég ekki hvernig status var á kvennabolta hjá United áður en Glazer-arnir tóku við en með uppsveiflu boltans undanfarin ár hefur maður tekið eftir fleiri og fleiri stórlið í karlaboltanum halda líka úti kvennaliði – hins vegar er ég viss um að Bandarísku eigendur félagsins séu alltof nískir til að punga út þeim fjárhæðum sem þarf til að stofna kvennalið og hvað þá að reka það … því miður!
Björn Friðgeir says
Unied lagði niður kvennaboltann kortéri fyrir Glazera
http://www.theguardian.com/football/2005/feb/21/newsstory.sport2
Einhverra hluta vegna líta þeir á það sem nóg að reka þar unglingalið.