Spænski landsliðsmaðurinn og hjartans yndið Ander Herrera er leikmaður októbermánaðar og hlýtur raunar yfirburðarkosningu. Miðjumaðurinn hefur verið að spila einstaklega vel undir stjórn José Mourinho og er núna ávallt meðal fyrstu manna á blað. Ekki nóg með að United fólki finnist hann standa sig vel heldur hefur einnig heillað Julen Lopetegui landsliðsþjálfara Spánverja.
Landi hans og vinur Juan Mata er næstur í öðru sæti. Þeir Antonio Valencia , Eric Bailly og Paul Pogba fengu talsvert færri atkvæði en ef Pogba heldur áfram að spila eins og gegn Swansea á dögunum þá er aldrei að vita nema að hann verði töluvert ofar á listanum um næstu mánaðarmót.
[poll id=“20″]
Skildu eftir svar