Nú þegar fyrsti júlí rennur upp er leikmannaglugginn opinberlega opinn og United er búið að kaupa einn leikmann af þeim fjórum sem búist er við að liðið kaupi. Leikmenn mæta aftur til æfinga á laugardaginn næsta, 8. júlí og fljúga til Bandaríkjanna daginn eftir. Eitt af því sem gengið hefur verið frá sem vísu er að José Mourinho hafi lagt fyrir Ed Woodward að ganga frá kaupum fyrir þann tíma til að nýir leikmenn yrðu með frá upphafi undirbúnings.
En sem fyrr segir er það bara Victor Lindelöf sem víst er að mætir á Carrington eftir viku. Kaupin á Nemanja Matić bíða þess að Chelsea kaupi Tiemoué Bakayoko frá Monaco og flest bendir til að Álvaro Morata geri sitt til að Real selji hann til United. Við vonumst því til að þau kaup séu bara tímaspursmál og væri gaman ef þau gerðust í vikunni.
En kaupin á Ivan Perišić virðast í uppnámi. Það var alltaf talað um að Inter þyrfti þrjátíu milljónir evra til að standast fjármálakröfur og það fyrir 1. júlí. Nú er sá tími kominn og Inter mun hafa selt minni spámenn og staðist þær. Tilraunir Woodward til að fá Perišić á 30-40 milljónir evra en ekki 50-55 eins og Inter heimtaði hljóta því að hafa mistekist. Góðar fréttir fyrir stjóra Inter, Luciano Spaletti, sem vildi halda leikmanninum. Nú er sagt að Fabinho sé á leið til PSG og staðhæfingar þeirra sem sögðu að hann hefði aldrei verið á lista United eru farnar að hljóma trúlegar.
En þá kemur spurningin: Hvað gerir United? Við byrjum á því að skoða hvað Perišić hefði komið með til liðsins og til þess hendum við upp liðið eins og það gæti litið út með Matić og Morata innanborðs. Byrjum á uppstillingunni 4-3-3 sem mér og fleirum finnst bjóða upp á meiri möguleika, sér í lagi til að frelsa Pogba og færa hann framar.
Ef við lítum til baka og skoðum álit ritstjóranna á hópnum frá því í Djöflavarpi vorsins þá held ég hægt sé að segja að Morata og Matić fái báðir grænan stimpil og Lindelöf á að vera nógu góður til þess sama. Það eru því þrír traustir leikmenn sem bætast við, þó ekki sé beinlínis hægt að kalla þá stórstjörnur.
En hvað með Perišić?
Jú, hann hefði komið með aukna breidd samfara mikilli reynslu á vinstri kantinn sem og vinstri miðjuna. Það eru nefndir fimm leikmenn þarna á vinstri kanti og með mikilli virðingu fyrir og aðdáun á Tony Martial þá er enginn þeirra, eins og stendur, alveg fullkominn kantmaður. Perišić er traustari og reyndari og hefði einfaldlega sett hinum takmark: þeir hefðu þurft að stíga upp og sýna að einhver þeirra væri betri kantmaður til að vinna sér inn sætið.
Að auki hefði Perišić verið eini maðurinn sem við höfum nefnt hér sem gæti leyst stöðu Pogba vinstra megin á miðjunni þannig að vel færi, og án þess að þurfa að stokka upp liðinu.
En það að kaupa Ivan Perišić á 44 milljónir punda, ef ekki meira, í þetta hlutverk, er líklega of mikið og það væru í raun mikil mistök að gefa núna eftir og henda pendingum í Inter. Það þarf því að endurskoða innkaupalistann og vonandi að það sé eitthvað nafn á honum fyrir neðan nafn Perišić.
Hvað það nafn gæti verið er mjög erfitt að segja. En miðað við hvað hann hefði komi með í liðið þá ætti það að vera leikmaður með góða reynslu sem væri ekki endilega heimsklassaleikmaður. Það hefur ekkert verið slúðrað um aðra möguleika, hvorki áreiðanlegt né óáreiðanlegt þannig að við verðum bara að bíða.
En ef við skoðum hópinn að ofan þá er 24 nöfn þarna. Er það nóg?
Alls léku 32 leikmenn leiki í fyrra, sem byrjunarmenn eða varamenn, 27 þeirra fleiri en tvo, en aðeins 25 léku fleiri en tvo leiki í byrjunarliði og 23 fleiri en 10. Þurfum við því mikið stærri hóp en 24 kjarnaleikmenn og átta góða unglinga? José kvartaði í fyrra undan meiðslum, en var ekki vandamálið frekar að það hefðu mátt vera 1-2 betri leikmenn en sumir þeirra sem við teljum hópleikmenn frekar en byrjunarliðsmenn. Þessir menn þurfa að vera af þeirri gerð að þeir fara ekki endilega í fýlu við fyrstu bekkjarsetu, eitthvað sem innkaupaheimtingar gleyma stundum að taka með í reikninginn, en það þarf líka að gera kröfur til þeirra.
Hér er mynd sem sýnir hverjir léku leiki í fyrra, númer leikmanns og fjölda leikja hvort heldur sem er í byrjunarliði eða varaliði
Þeir leikmenn sem léku fæsta leiki eru allir annað hvort farnir (vínrauð stjarna: Schneiderlin, Memphis, Schweinsteiger, og Josh Harrop) eða ungir (bleik stjarna: Fosu-Mensah, Tuanzebe, Scott McTominay, Demetri Mitchell og Angel Gomes). Það hefur verið talað um að salan á Schneiderlin og Schweinsteiger skilji eftir göt á miðjunni, en þeir byrjuðu fjóra leiki samtals, Bastian í bikarnum, Schneiderlin í deildarbikar og tvo í Evrópudeildinni. Er þetta missir? Evrópuleikirnir verða vissulega mikilvægari fyrir jól en þeir voru í fyrra.
Það eru ekki margir ungir leikmenn sem bíða, og þeir sem voru á láni, utan Pereira munu líklega fara. Frammi, í mögulegri 10 stöðu og hægra megin er liðið þokkalega vel mannað, Vinstra megin þarf sem fyrr segir einhvern sem getur helst leyst vinstri kant og vinstri miðju, vinstri bakverðir eru fjórir möguleikar en við vitum öll að það væri ekkert að því að fá einhvern sem annað hvort væri betri en Shaw eða myndi neyða Shaw til að taka skrefið upp á við. Sala á Darmian hlyti að þýða að kaup á öðrum bakverði væri nauðsyn og í dag er slúðrað um Kieran Tierney, tvítugan vinstri bakvörð Celtic, en United og fleiri ensk lið hafa áhuga á pilti, enda lofar hann góðu og er kominn í landslið. Samkvæmt fréttum þá hefði Mourinho síðan ekkert haft á móti að bæta Michael Keane í miðvarðahópinn en hann vildi fast sæti og er á leið til Everton.
Valencia hefur alveg eignað sé hægri bakvarðarstöðuna en varamaðurinn er Timothy Fosu-Mensah, nú eða Darmian. Varnarmaður sem gæti leyst miðvarðarstöðuna og hægri bakvörð væri því ekki vitlaus hugmynd. Sérstaklega ekki ef selja á Smalling
Staðan í dag
Keyptur
Victor Lindelöf
Koma líklega
Álvaro Morata
Nemanja Matić
Hvað annað væri gaman að sjá:
Traustan vinstri miðjumann/kant.
Traustan vinstri bakvörð.
Leikinn miðjumann.
Hægri bakvörð/miðvörð.
En eins og ég er búinn að sannfæra sjálfan mig hér fyrir ofan: við erum með 24 manna kjarnahóp ef Morata og Matić verða keyptir. Ef Perišić kemur á endanum eða einhver slíkur þá sjáum við 25.
Miðað við slúðrið eru fjórir leikmenn á lista Mourinho þannig að það er ólíklegt að keypt verði í hinar stöðurnar sem væri gaman að sjá en þó helst ef einhver verður seldur. Það væri samt ekki vitlaust, sérstaklega af því að það væri líklega hægt að fá betri leikmenn í hópinn en suma þeirra sem ekki eru fastamenn. Það væri því kannske gott að svara spurningunni í fyrirsögninni með annarri spurningu:
Getum við aukið breiddina með því að auka gæði hópleikmanna frekar en að fjölga leikmönnum í hóp?
Ein til tvö slík kaup í sumar, hvort sem er að stökkva á Blaise Matuidi frá PSG eða finna annan fjölhæfan varnarmann sem gæti komið með eitthvað meira en Smalling eða Blind gætu orðið til að styrkja hópinn til muna.
Mads says
Væri gaman að sjá Andreas Periera fá tækifærið á næsta tímabili. Hann gæti leyst miðjuna vinstra megin og vinstri kant. Jose á víst að hafa miklar mætur á honum.
Auðunn says
Breidd eða gæði?
Er ekki hægt að hafa bæði?
Björn Friðgeir says
Auðunn: Jú. En það munar svona 20 milljónum punda per leikmann eftir því hvað þú ert að stíla inn á.
Björn Friðgeir says
Veit þetta hafa ekki verið heitar umræður en nokkuð gaman að því að þó ég hafi sleppt Wayne Rooney úr hópmyndinni og ekki nefnt hann.
Endanleg sönnun þess að okkur er alveg sama hvað hann tekur sér fyrir hendur. Ég er hlutdrægur en þetta er endanleg sönnun á að hann mun ekki flokkast sem legend þegar fram líða stundir en verður í ‘fínn leikmaður, gerði margt gott’ hópnum.
Halldór says
Ég er reyndar á því að Rooney fær goðsagnarstimpilinn verðskuldað á sinn feril og hans framlag verður hærra metið eftir því sem lengra líður frá því að hann hættir.
Ekki ósvipað og Best, hann var eflaust búinn að frústrera marga þegar hann hætti og hann hætti ekki beint á virðulegan hátt hjá félaginu. En hann fær samt ómengaðan goðsagnarstatus hjá Manchester United, eðlilega.
Halldór says
En þessi staða sem Rooney er í akkúrat núna er samt merkileg. Mourinho fór mjög vel með það að koma honum út fyrir aðalliðið án þess að það yrði nokkuð vesen. Það að slúðurmaskínan hafi ekki einu sinni áhuga á hvað Rooney gerir næst segir samt mest af öllu.
Björn Friðgeir says
Ákveðinn punktur þarna með Best. En Rooney er auðvitað leikmaður sem kemst ekki í hálfkvisti við Best og er ekki á lista yfir bestu menn United frá upphafi, nema svona einhvers staðar fyrir neðan 20. sæti.
Kjartan says
Þetta gengur oft seint og illa hjá honum Vúdda litla að vinna vinnuna sína, samt sem áður fann hann tíma til að ferðast hinum meginn á hnöttinn til að horfa á England spila rugby við Nýja Sjáland. Það er stutt í ameríku ferðina og aðeins leikmaður kominn í hús :/
Auðunn says
Sammála því að Rooney mun aldrei njóta álíka virðingar og Best nýtur enn þann dag í dag. Ekki einusinni 20% .
Stuðningsmenn United hafa verið duglegir að syngja ákveðinn söng um Tevez þar sem í textanum segir „that money grabbing whore“
Þessi orð eiga eiginlega betur við Rooney, hann er líklega peninga-gráðugasti leikmaður sem United hefur átt og það sem verra er er að United hefur oftar en einusinni látið hann hafa sig að fífli í þeim málum.
Rooney verður aldrei inn á topp 20 lista hjá mér yfir uppáhalds leikmenn liðsins.
Verð hálf feginn að losna við hann.
Halldór says
Ég skil vel þá sem setja Rooney ekki á sína lista yfir uppáhalds leikmenn, hann færi ekki heldur inn á minn. En þar er reyndar John O’Shea, sem ég myndi heldur ekki setja inn á lista yfir goðsagnir félagsins, þótt hann hafi spilað krúsjal rullu í mörgum titlasigrum.
Það hafa líka pottþétt verið margir sem hefðu ekki sett George Best á sinn lista eftir að hann gerði allt vitlaust, mætti fullur á æfingar, lét sig hverfa og hætti svo í fússi hjá félaginu þegar það var að ströggla, stuttu áður en það féll úr efstu deild.
Það breytir því þó ekki að með tímanum hefur fókusinn færst nær alfarið á það sem George Best gerði vel hjá Manchester United. Vissulega enn fjallað um karakterbresti hans en það er þó hluti af stjörnukarakternum. Mig grunar, gæti alveg haft rangt fyrir mér samt, að Rooney verði minnst í sífellt bjartara ljósi með tímanum. Sérstaklega hjá næstu kynslóðum stuðningsmanna, sem upplifðu ekki peningagræðgina, hótanir um að fara og hrunið í formi á sama hátt og við sem fórum í gegnum það allt saman.
Auðunn says
Já það er margt til í þessum pælingum þótt það sé grundvallarmunur á Best og Rooney.
Hann er sá að Best átti við veikindi eða sjúkdóm að glíma sem menn áttuðu sig ekki á á þeim tíma.
Best var alkóhólismi, fullur 7x í viku og búinn að missa löngunina til að spila fótbolta, það var ekki hægt að neyða hann til að gera eitthvað sem hann hafði ekki áhuga á.
Þótt hann hafi reynt að koma tilbaka eftir að hann yfirgaf United þá vitum við öll að sá ferill var ekki uppá marga fiska enda hvorki hausinn né annað tilstaðar.
Hans áhugamál voru þegar komin í ljós, þau voru djamm, kéllingar og meira djamm.
Best var líklega fyrsti knattspyrnumaðurinn sem varð að einskonar poppstjörnu þegar kemur að frægð.
Hann varð svo gífurlega vinsæll að annað eins höfðu menn ekki séð í þessum geira, það eru augljósar ástæður hvernsvegna svo var.
Hann var fjallmyndarlegur, algjör töffari, sjarmör, kyntröll og allt sem hægt er að nefna plús hrikalega góður í fótbolta.
Rooney greyið gat ekki náð sér í kéllingu (fyrir utan þessa sem hann er giftur) nema borga fyrir hana og það auka ugly tax eins og „frúin“ sagði sjálf svo eftirminnilega frá.
Þannig að útfrá þessu öllu saman þá er alveg skiljanlegt afhverju Best var svona vinsæll þótt svo sumir hafa verið fúlir yfir því hvernig hann skildi við liðið. Menn sáu það seinna meir hver ástæðan var.
Óli says
Mikið finnst mér dapurlegt að sjá þessi skrif hérna um Rooney. Mér finnst það nánast flokkast sem veruleikafyrring að ætla að setja Rooney í flokk með einhverjum leikmönnum sem „lögðu sig fram“. Rooney er án efa einn öflugasti leikmaður Bretlandseyja frá upphafi og ferilskráin talar sínu máli. Menn eru fljótir að gleyma því en á sama tíma virðast allir muna eftir til dæmis Best og kunna að meta allt sem hann gerði þrátt fyrir að hafa í besta falli fengið vikulegt fréttaskeyti af enska boltanum á þeim tíma sem hann spilaði fyrir félagið! Þar að auki var Best maður sem hefði augljóslega ekki þolað 1% af því áreiti sem Rooney hefur þolað síðan hann var 18 ára. Sveiattan!
DMS says
Hvaðan koma allir þessir peningar í Everton skyndilega? Það er talað um að Rooney vilji 250k á viku hjá þeim. Þeir hafa verið það lið í ensku deildinni sem hafa verið hvað duglegastir að versla núna í sumar og í . Ætli þeir eigi von á því að losa sig við Lukaku á stóra upphæð? Þeir eru búnir að eyða um 90m punda núna í sumar og svo keyptu þeir auðvitað Schneiderlin af okkur á 25m í janúar.
Óli says
Einhverjir Íranir sem keyptu félagið nýlega og fengu til dæmis Koeman með því að tífalda launin hans eða eitthvað.
Auðunn says
@Óli: hvaða áreiti er það ef ég má spyrja?
Rooney hefur fengið allt sem hann hefur viljað frá Man.Utd á silfurfati og rúmlega það.
Að hann sé ennþá einn allra launahæsti leikmaður liðsins er hreinn og beinn algjör skandall, hann hefur ekkert getað í 3 eða 4 ár.
Ég virði Rooney fyrir það sem hann hefur gert fyrir klúbbinn, hann á miklar þakkir fyrir sitt framlag.
Hann hefur samta alltaf virkað á mig sem maður sem er ekki til í að gera neitt extra fyrir klúbbinn nema fá vel borgað fyrir það í staðinn, hann er fégráðug persóna.
Hvorki klúbburinn né stuðningsmenn skulda honum eitt né neitt.
Hann nýtur ákveðnar virðingar þótt ég sé 100% viss um að sú virðing nægi ekki til að hann fái reista styttu af sér fyrir utan völlinn né annarsstaðar.