Í kvöld tóku nýliðarnir úr Brighton á móti okkar mönnum á fínu föstudagsfótboltakvöldi. Enginn Alexis Sanchez né Romelu Lukaku voru í hópnum í kvöld en framlínuna leiddu þeir Anthony Martial, Marcus Rashford og Juan Mata.
Þá fékk Anthonio Valencia langþráða hvíld og fyllti Matteo Darmian í skarðið fyrir hann en Ashley Young tók við fyrirliðabandinu annars var liðið:
Leikur fór vel af stað og virtust okkar menn vera staðráðnir í að setja mark sem fyrst. United fékk strax aukaspyrnu á stórhættulegum stað rétt fyrir utan teig strax á upphafsmínútum leiksins þegar Rashford tók á rás í átt að teignum og setti boltann snyrtilega á milli lappanna á Anthony Knockaert sem gat ekki annað en brotið á honum. Rashford tók spyrnuna sjálfur og setti stórhættulegan bolta inn í átt að markinu þar sem Fellaini var mættur fyrstur allra og snerti boltann lauflétt með lærinu sem var nóg til að trufla Mat Ryan í markinu. En markið fékk ekki að standa enda var Fellaini fyrir innan varnarlínu Brighton og réttilega dæmdur rangstæður.
United virtist byrja fyrri hálfleikinn mun betur án þess að ná að skapa sér mikið en Brighton unnu sig hægt og bítandi inn í leiki. Eftir þó nokkra pressu barst boltinn til Dale Stephens sem átti gott skot að markinu en boltinn fór rétt framhjá. Örskömmu síðar átti Pascal Gross svo skot sem de Gea var með allan tíma. Enn og aftur áttu Brighton menn skot þegar Glen Murray tók góðan snúning örstutt fyrir utan teig og hamraði boltann þar sem de Gea þurfti að hafa sig allan við að verja í horn.
Hér voru strax komnar blikur á loft enda var United búið að missa tökin á leiknum og heimamenn byrjaðir að taka völdin. Besta færi United kom þó þegar Dunk missti boltann of langt frá sér þegar hann rann og ungstirnið okkar, Rashford, var fljótur að átta sig á aðstæðunum og stal boltanum og keyrði niður endalínuna í átt að marki. Eitthvað virtist hann þó óákveðinn því að hann tapaði boltanum í horn en þess má geta að Martial var einn og óvaldaður beint fyrir framan markmannsteiginn og hreinlega ofar mannlegum skilningi afhverju Rashford renndi ekki boltanum á hann.
Aftur tók við hættulegur kafli hjá heimamönnum þar sem Izquierdo átti gott skot og stuttu síðar kom eitruð stungusending frá Anthony Knockaert inn fyrir vörn United á Gross sem var reyndar kominn í þröngt færi og de Gea var fljótur út að loka á hann.
Í síðari hálfleik bjóst maður við líflegra United liði enda auðséð á svipbrigðum José Mourinho í fyrri hálfleik að stjóranum var ekki skemmt. Þegar sá síðari var ný hafinn átti Glenn Murray groddalega tæklingu á Fellaini og uppskar réttilega fyrsta gula spjald leiksins. Annars var Craig Pawson ansi sparsamur á flautuna og lét leikinn ganga vel. Allt virtist vera á réttri leið og United hélt boltanum meira fyrstu mínúturnar en Anthony Knockaert, sem að mínu mati var sprækasti leikmaðurinn á vellinum, komst í álitlega sókn og þrumaði boltanum í Smalling og rétt yfir markið á 53. mín.
Aftur virtist United vera byrjað að missa tökin á leiknum og einungis fjórum mínútum síðar átti José Izquierdo flotta fyrirgjöf á Pascal Gross sem stangaði boltann af miklu afli í markið. Reyndar virtist Marcos Rojo hafa bjargað á línu en við nánari eftirgrennslan kom í ljós að boltinn fór örfá sentimetra inn í markið. Brighton komið í forystu og kominn tími á breytingar. Þær létu þó standa á sér og virtist Brighton frekar líklegra til að skora annað mark en að United myndi jafna.
Heimamenn vildu svo fá vítaspyrnu þegar Knockaert féll við rétt fyrir innan teig eftir að hafa farið illa með Martial, sem var hreint út sagt skelfilegur í þessum leik, en sem betur fer sparaði Craig Pawson flautuna.
Mourinho gerði loksins breytingar á liðinu á 67. mín þegar hann tók Fellaini og Darmian útaf og Lingard og Shaw komu inná. Litlu síðar kom McTominay inn fyrir Rojo en varamennirnir voru þeir líflegu á vellinum í rauðum skyrtum. Lítið markvisst gerðist þó í kjölfar skiptinganna og heimamenn sigldu sigrinum í höfn og þar með tryggðu þeir sæti sitt í efstu deild fyrir komandi tímabil.
Leikurinn minnir óneitanlega á hryllinginn á móti WBA í síðasta mánuði þar sem United virkaði andlausir, metnaðarlausir, vonlausir og umfram allt áhugalausir á verkefninu sem verður að teljast stórundarlegt miðað við að úrslitaleikurinn í FA-bikarnum er handan við hornið. Enginn útileikmaður sýndi stjóranum neitt sem réttlætir það að vera valinn í þann leik. Þó verður maður að setja spurningu við liðsuppstillinguna en miðjan okkar virkaði mjög stöðnuð, bakverðirnir voru lítið sjáanlegir og fremstu þrír voru allir að spila sitthvorn leikinn. Það var lélegt flæði, lítill ákafi og ekkert tempó sem kostaði okkur þennan leik.
Það var erfitt að kyngja þessum ósigri, sjálfur er ég með óbragð enn í munninum. Þetta lið okkar er eins og yo-yo, við getum áttu brillijant leiki og við getum átt „svona“ leiki. Núna hefur United tapað fyrir Newcastle, Huddersfield og Brighton, semsagt öllum nýliðunum. En á sama tíma hefur United unnið öll liðin í top6 og reyndar með 19 stig af 30 mögulegum þar. Það er greinilegt að Mourinho þarf að fara finna meiri stöðugleika og fá liðið til að mæta með rétt hugarfar inn í þessa „litlu“ leiki, honum er einfaldlega ekki að takast að hvetja leikmennina nógu mikið og kveikja upp nógu mikið hungur hjá þeim til þess að vinna þessa leiki. Sem er einmitt það sem við þurfum ef við ætlum að taka þátt í titilbaráttunni á næstu leiktíð af einhverri alvöru.
Karl Garðars says
Ja hérna…
Hjöri says
Guð minn góður. Þvílík hörmung að horfa upp á þetta (engin furða að maður sé búinn að missa áhuga á að horfa á leiki með Man U) mishefnaðar sendingar trekk oní trekk ekkert skotið á markið held eitt á rammann, maður er bara orðlaus.
Sindri says
Hræðilegt.
Hef ekki á tilfinningunni að þessum lrik verði bjargað.
gummi says
þessi hörmulegi bolti hættir ekkert fyrr en Móri fer maður er bara farinn að kvíða fyrir næsta tímabili
Bjarni says
DeGea enn besti leikmaðurinn, aðrir vel undir pari.
Karl Garðars says
Það verður að segjast eins og er að það eru því miður ekki margir sem spiluðu í þessum leik sem maður vill yfirleitt sjá í ideal byrjunarliði Manchester United.
Leikurinn afhjúpaði síðan dugleysi, eigingirni, dómgreindarbresti og algjört metnaðarleysi margra leikmanna og fyrir utan auðvitað De Gea er erfitt að finna ljósan punkt.
Þetta var dauðafæri fyrir marga leikmenn að sýna sig og sanna en niðurstaðan er algjört gjaldþrot og einhverjir af þeim hljóta að hafa innsiglað örlögin eða það vona ég alla vega.
Maður hefði alla vega frekar kosið að tapa þessum leik 0-3 með kjúklingum.
toggi says
þvílík skita maður fer bráðum að gefast uppá að horfa á leiki þetta er orðið svo hundleðinnlegt aðhorfa á þetta lið spila fótbolta og maður er ekkert svaðaleg bjartsýn að þetta verði einhvað skára á næsta tímabili
Helgi P says
við erum að breitast í gamla Liverpool getum unnið alla og tapað fyrir öllum
Audunn says
Mourinho kann ekki að meðhöndla unga og efnilega leikmenn. Þeir verða bara verri undir hans stjórn.
Það er líka betra fyrir liðið að spila manni færri en að hafa Fellaini í liðinu. Þvílíkt sorp sem sá ömurleigi leikmaður er. Hann er bara fyrir á vellinum.
Frikki11 says
Það þarf að hreinsa út í sumar. Leikmenn sem má henda : Fellaini, Darmian, Rojo og Blind og svo spyr maður sig hvort að leikmenn eins og Jones, Mata, Martial og Shaw eigi einhverja framtíð ?
Audunn says
Ef ungir leikmenn eins og Martial, Shaw og Rashford svo einhverjir eru nefndir eiga ekki framtíð í þessu liði hverjir eiga þá framtíð þarna?
Það eru ekki margir ef einhverjir á þeirra aldri betri eða efnilegri í Evrópu. Kannski viti þið um einhverja? Ekki ég.
Það tala allir ungir leikmenn sem ólust upp hjá Sir Alex að hann hafi verið gengið þeim í föðurstað. Hann verndaði þá, vann með þeim, hjálpaði þeim að skilja klúbbinn og að þroskast.
Mourinho hefur ekki þessa ýmynd. Hann hefur ekki það sem þarf til að svona leikmenn þroskist og verði betri leikmenn. Hann gagnrýnir þá, ræðst á þá opinberlega og brýtur þá andlega niður.
Það er ekki góð meðhöndlun á ungum leikmönnum.
Ég hef mjög miklar áhyggjur af ungum leikmönnum undir stjórn Mourinho. Mjög miklar áhyggjur.
Ég held að það væri nær að skamma þá sem eldri eru og eiga að draga vagninn.
Hinir ungu eiga að læra af þeim en það er ekki þannig hjá United í dag.
Leikmenn eins og Fellaini, Blind, Darmian, Young, Smalling og Mata mættu víkja fyrir nýjum leikmönnum og svo er Carrick að hætta.
Það væri að ég tel eðlileg þróun hjá svona klúbbi en Mourinho vill fleiri gamlingja og færri unga og efnilega.
Ég taldi upp 6 leikmenn sem mættu fara + Carrick.
Það væri brjálæði að láta fleiri fara, eins væri rugl að halda þessum mönnum og láta yngri leikmenn fara í sumar.
Liðið getur engan veginn eytt 350-400 milj í 5 eða 6 topp class leikmenn.
gummi says
hann er eftir að skilja eftir sig gamalt og ömurlegt united lið þegar hann hættir það vera engir efnilegir leikmenn eftir hjá okkur ég er bara ekki en að skilja þessa ráðningu hjá okkur