Brasilíski miðjumaðurinn Fred hefur formlega gengið frá félagaskiptum frá Shakhtar Donetsk. Kaupverðið mun vera um það vil 47 milljón pund.
It's official: Fred's a Red! #BemVindoFred #MUFC pic.twitter.com/KL6S4x5Liw
— Manchester United (@ManUtd) June 21, 2018
Fred er staddur um þessar mundir í Rússlandi en hann er í leikmannahóp Brasilíska landsliðsins sem leikur gegn Kosta Ríka í hádegisleiknum á morgun.
Karl Garðars says
Fínt mál. Ég man samt ekki eftir að hafa verið jafn hóflega bjartsýnn með nokkur kaup hjá United. Væntingarnar eru svona rétt yfir frostmarki.
Robbi Mich says
Geggjaður gluggi so far. Eða eins og Borat sagði hér um árið: „Nat!“
Cantona no 7 says
Velkominn
G G M U
Rúnar P says
Það verður ekki mikið um kaup hjá Móra þetta sumarið enda vantar ekki upp í margar stöður heldur að fínpússa liðið aðeins
Björn Friðgeir says
Fellaini skrifar undir nýjan samning skv fréttum frá Belgíu
Vona innilega að Auðunn þekki góðan hjartalækni.
Laddi says
Ef Fred hefur sömu eiginleika og Carrick og brot af hæfileikum hans og leikskilningi þá býð ég hann hjartanlega velkominn. Að öðrum ólöstuðum held ég að „slakt“ gengi United undanfarin tímabil séu í réttu hlutfalli við minnkaðan spilatíma meistara Carrick, hann var einfaldlega það góður leikmaður og mikilvægur fyrir liðið. Hef reyndar ekki séð mikið til Fred en miðað við lýsingarnar þá hefur hann svipaðan leikstíl og því ber að fagna. Það er fagnaðarefni að loksins sé reynt að fylla hið risavaxna skarð sem hann skilur eftir sig á miðjunni.
En ég fagna því ef Fellaini ætlar að framlengja við félagið, þrátt fyrir að hann sé á margan hátt mjög takmarkaður þá hefur hann kosti sem fáir leikmenn hafa og það er fínt að geta gripið til þeirra þegar á þarf að halda.
Keane says
👍 og 👎