Maggi, Björn og Halldór settust niður og fóru yfir leikinn gegn Leicester. Paul Pogba og José Mourinho. Einnig var rætt um tilvonandi ráðningu á yfirmanni knattspyrnumála og leikina framundan hjá karla og kvennaliðunum
Einnig viljum við heyra ykkar álit þannig að endilega kommentið við þessa færslu.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:
Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum
MP3 niðurhal: 57. þáttur
Robbi Mich says
Skemmtileg og áhugaverð umræða. Takk fyrir mig.
Persónulega þá finnst mér mjög mikilvægt að halda Pogba og ef ég þyrfti að velja á milli Pogba og Mourinho, þá vel ég Pogba. Ég held einfaldlega að hann sé mikilvægari liðinu en Mourinho. Hann gæti orðið og er líklega nú þegar orðinn þessi órjúfanlegi hlekkur og þessi leiðtogi sem hann verður að vera. Á sama tíma þá veit enginn hvenær Mourinho (ekki hvort) mun flippa og brjóta liðið og þá finnst mér helvíti dýrt að fórna Pogba því ég held að það sé ekki spurning um að Mourinho mun ekki staldra við í mörg ár til viðbótar. Pogba gæti hins vegar spilað auðveldlega í 8 ár á hæsta leveli með liðinu.
En aftur á móti þá finnst mér ekki vera rétti tíminn til að breyta um skipstjóra núna, sjá hvernig tímabilið þróast og vonast til að allir geti verið vinir. Svo eftir tímabil þá ráða DoF og leita að eftirmanni Mourinho.