Í dag mætti topplið Liverpool í heimsókn á Old Trafford í næstsíðasta leik 9. umferðar ensku Úrvalsdeildarinnar en viðureignum þessara liða hefur yfirleitt verið beðið með mikilli eftirvæntingu og leikurinn í dag engin undantekning.
Mikil óvissa var fyrir leik um hvaða leikmenn liðanna yrðu klárir í leikinn en mikið var um meiðsl, þá sérstaklega hjá heimamönnum. Alex Tuanzebe var óvænt í liðinu en Ole Gunnar Solskjær stillti upp í fimm manna varnarlínu með hann ásamt Harry Maguire og Victor Lindelöf í miðvarðarstöðunum.
En Tuanzebe meiddist í upphitun og var þar af leiðandi ekki með í dag en í hans stað kom Marcos Rojo inn en það átti eftir draga dilk á eftir sér. Sá argentíski kostaði landslið Argentínu tvö mörk í leik gegn Þýskalandi í nýafstöðnu landsleikjahléi og þótti ekki líta vel út þar og var tekinn útaf í hálfleik.
Leikurinn fór heldur rólega af stað en mörg mistök litu dagsins ljós og greinilegt að mikill skjálfti var í mönnum. Mikill kraftur í báðum liðum en nákvæmni sendinga og einbeiting leikmanna langt frá því að vera skörp. Bæði lið pressuðu hátt á vellinum og varð það til þess að mistök á báða bóga voru tíð í upphafi leiks.
Ólíkt því sem margir höfðu spá þá voru United mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og var boltinn mun meira á vallarhelming gestanna. Pereira var duglegur að koma sér í álitlegar stöður en var helst til of frekur á boltann og hefði ef til vill átt að dreifa boltanum í stað þess að eiga skot í nokkur skipti.
Korter inn í leikinn áttu Liverpool fyrstu hættulegu sóknina sína þegar Wjinaldum fór illa með miðjumenn United og tókst að koma skoti á markið en það olli David de Gea engum vandræðum.
Í kjölfarið komu nokkrar sóknir frá gestunum þegar skipulag United raskaðist örlítið en heilt yfir hélt liðið skipulaginu mjög vel í gegnum leikinn. Bakverðir Liverpool fengu fjölmörg færi til að koma með fyrirgjafir en þær voru flestar hættulausar og slakar og þær sem ekki voru það var komið auðveldlega frá marki United.
Eftir 37 mínútur var komið að United, þegar Lindelöf náði boltanum af Divock Origi, renndi boltanum á Daniel James sem geystist upp hægri kantinn með boltann. Þegar hann kom að vítateignum átti hann glæsilega fyrirgjöf fyrir markið þar sem Marcus Rashford átti gott hlaup, plataði Joel Matip með hlaupi sínu og potaði boltanum framhjá Alisson Beker í markinu.
VARsjáin tók atvikið til athugunar en dæmdi markið gilt við litla hrifningu gestanna og stuðningsmanna þeirra.
1-0 og Jurgen Klopp var langt frá því að vera sáttur við fjórða dómarann og það átti ekki eftir að vera í síðasta skiptið í þessum leik því rétt fyrir lok fyrri hálfleiks kom há sending inn fyrir hjá United þar sem Sadio Mané tók boltann niður með Lindelöf í bakinu.
Sá sænski vildi greinilega fá de Gea út úr markinu og reyndi að halda Mané frá sem endaði ekki betur en svo að sá síðarnefndi skoraði. Aftur var leitað í VARsjána þar sem heimamenn vildu meina að boltinn hefði komið við höndina á Mané í aðdraganda marksins.
Aftur var VARSjáin hliðholl United og markið dæmt af við ENN minni hrifningu gestanna.
Síðari hálfleikur
Í fyrri hálfleik var United sókndjarft en taflið snérist við í þeim síðari. Liverpool voru mun meira með boltann og réðu oft á köflum ferðinni. Hins vegar vantaði mikið upp á þeirra leik og greinilegt að liðið var ekki að keyra á öllum sílendrum. Á 63. mínútu kom Alex Oxlade-Chamberlain inn á fyrir gestina og á sama tíma var pressan frá Liverpool farin að aukast.
Daniel James fékk frekar óblíðar móttökur frá leikmönnum Liverpool í gegnum allan leikinn en sá velski var í nokkur skipti keyrður niður í grasið. Ekki gott fyrir leikmann sem var rotaður í landsleikjahléinu og spurning hvort ekki hefði átt að skipta honum út fyrir Anthony Martial þegar tæpur hálftími var eftir af leiknum.
Á þessum tíma var United búið að leggja rútunni en sem betur fer fyrir þá var sóknarlína Liverpool langt frá sínu besta og leikmennirnir virtust ekki vera á tánum. Oft á tíðum voru þeir heilllengi með boltann en þegar kom að lokasendingunni var hún oftast mjög slæm eða misskilningur átti sér stað milli leikmanna.
Hinu megin á vellinum átti James svo laglega sendingu á Rashford, enn einu sinni, sem kom boltanum á Fred en sá stutti tók viðstöðulaust skot sem skapaði enga hættu. Í næstu sókn kom Trent Alexander-Arnold með gullfallega fyrirgjöf en eins og var gegnum gangandi í leiknum fyrir Liverpool var enginn til að taka við boltanum.
Lallana kom inn á fyrir gestina þegar 20 mínútur voru eftir og átti eftir að setja mark sitt á leikinn. Því þegar lítið var búið að ganga hjá þeim í 85. mín og eftir þrjár skiptingar, kom loksins mark þegar enn ein fyrirgjöfin frá bakvörðum Liverpool rataði inn fyrir vörn United en að þessu sinni var Lallana mættur til að klára færið.
Í markinu leit Marcos Rojo mjög illa út, var að dekka Lallana, lítur af honum og hleypur í svæði fyrir framan de Gea þar sem enginn var, sleppir boltanum framhjá sér og horfir upp á Lallana skora framhjá varnarlausum de Gea í markinu. 1-1 eftir augnabliks einbeitingarskort frá liði sem hafði haft ágætis tak á einu lang öflugasta sóknarliði Evrópu í 85. mínútur.
En þannig lauk leiknum og United situr í 13. sæti deildarinnar eftir eina skárstu frammistöðu tímabilsins. Margir stuðningsmenn liðsins hefðu eflaust tekið jafnteflinu fegins hendi fyrir leik en ekki hins vegar orðum ofaukið að segja að stigin þrjú hefðu verið ljúf.
Hins vegar enn margt sem enn má bæta en vonandi verður þetta einhvers konar vendipunktur fyrir liðið, a.m.k. að einhverju leyti en það eru umræður fyrir næsta djöflavarp! Glory, glory!
gummi says
Þetta rosalegur bekkur sem við erum með
halli says
Guð hjálpi okkur… hörmulegt lið
Red says
Nokkuð viss um að united séu með 5 manna vörn í dag.
Rúnar P says
Eg vil 3 stig í dag og ekkert annað!!!
Snjómaðurinn Ógurlegi says
Sannkallaður sex stiga leikur! Þeas ef United nær jafntefli að þá eru þeir bara sex stigum frá meistaradeildarsæti.
davíð says
finnst mönnum að þetta marki hafi átt að standa ?
er ekki sammála dómnum en er ekki beint að kvarta
Tómas says
Já, ekkert á þetta. Mjög lítil snerting. Sér að hann missir boltann frá sér og hendir sér niður.
RAgnar says
HAHA Lallana af öllum mönnum !
Solvi says
14. sætið!!!
Elís says
1-1 ekki skelfilegúrslit.
Leikurinn var í járnum í fyrirháfleik þar sem lítil áhætta var tekinn( skil ekki í skýrsluhöfundi að tala um að liðið hafði verið mun betra) Já það var brotið á Origi en vel gert að klára sóknina með marki og já þetta var hendi hjá Mane(Ein dómurinn VAR réttur og hinn VAR rangur) en breyttir ekki stöðuni.
Í síðarihálfleik var það varnarpakki sem næstum því hélt gegn slöku Liverpool liði.
Það gerðist mjög fátt í þessum leik og má segja að maður lærði það að liðið er mjög gott þegar það er ekki með boltan. Það hentar liðinu að pakka í vörn og beita skyndisóknum með hraða James/Rashford. Krafan er samt sú að Man utd eigi að vera lið sem á að geta stjórnað leikjum vera það lið sem sækir en þá lendir liðið í vandræðum.
1 stig gegn liði sem hafði ekki tapað stigum er gott en er ekki að drukkna í jákvæðni eftir að liðið spilar svipaðan bolta og Newcastle gerði í síðustu umferð og uppskáru 3 stig með fimm manna varnarlínu og skyndisóknum.
Cosak says
Fyrst og fremst fannst mér frammistaðan vera jákvæð. Sem þýðir samt ekki að hún hafi verið frábær heldur að hún var þokkaleg. Vörni. Leit bara ágætlega út í dag fyrir utan lindelöf á móti mane og svo hvað young var mikið í því að sparka bara hátt og langt. Fred sýnd eitthvað af sýnum hæfileikum í dag. James var góður og rashford var að sýna sig heldur meira en hann hefur gert upp á síðkastið. Miða við síðustu leiki þá fannst mér þetta bara vera frammistaða á par við þá leikmenn sem við höfum úr að moða. Hefðu ekki þurft nema meiri einbeitingu og þá hefði þetta skilað sigri.
Óli gerði jákvæða breytingu á leikskipulagi í dag. Fannst það sjást á sókninni fengu solid vörn sem gat farið beint í skyndisókn.en þetta er bara mín skoðun :)
Rúnar P says
Liðið þarf að læra að þetta er 90min leikur en ekki 75min, hvar þeir lærðu það veit ég ekki?
guðmundurhelgi says
Gott ef þetta var ekki besta frammistaðan hja FRED til þessa, alls ekki slæmt og vonandi hægt að byggja ofan a þessa frammistoðu. Ætla svo að minna menn a að fyrstu ar ALEX FERGUSON hja manutd voru ekkert til að hropa hurra fyrir,en hann likt og oli toku við bufenaði sem þurfti að grisja og slikt kostar mikla þolinmæði. Það er eitt sem mer leiðist afskaplega mikið her og það er þessi andstyggilega neikvæðni sem lifir goðu lifi her,væri ekki betra að þetta neikvæða folk stofnaði siðu sem gæti borið nafnið t.d. NOLDUR OG NEIKVÆÐNI fyrir umhyggjusama aðdaendur MANUTD bara hugmynd. Goðar stundir.
Georg says
Jæja liðið mætir til leiks gegn stærri liðum. Enda var dagsskipunin að bomba boltanum yfir bakverði Lpool fyrir okkar hröðustu menn Rashford og James sem endaði með marki gott og vel.
Það þarf enn að leysa það þegar andstæðingur lætur bakverðina liggja aftur.
Audunn says
Mér finnst eins og ég hafi verið að horfa á allt annan leik en skýrsluhöfundur lýsir hér að ofan.. amk í fyrrihálfleik.
Aldrei fannst mér United sterkara liðið í leiknum, leikurinn var mjög jafn í c.a 65-70 mín nema það að LiVARpool var miklu meira með boltann eða 68% á móti 32% sem er að sjálfsögðu skandall að hálfu United en hvað um það. Síðustu 20-25 mín var United lítið með, spörkupu boltanum bara eitthvað út í loftið og vonuðu það besta.
Það má hinsvegar hæla Ole Gunnar fyrir hans taktík í fyrrihálfleik. Klopp gerir svo breytingar á sínu liði í síðarihálfleik þegar hann setur Henderson og Mane meira út á kanntana til að þrýsta vængbakvörðum United aftar á völlinn og það tókst. Ole Gunnar átti ekki svar við þvi.
Það varð til þess að United lágu allt of aftarlega og LiVARpool hreinlega keyrðu þá út með því að spila boltanum sín á milli.
Það var svo sem margt jákvætt í þessum leik, amk framan af.
Það var barátta í okkar mönnum og menn gáfu sig alla í verkefnið sem var frábært.
Gæðamunurinn á liðunum er hinsvegar ennþá mikill sem og gæðamunurinn á stjórunum þegar kemur að taktískum aðgerðum.
Úrslitin voru heilt yfir sanngjörn og maður vonar að þetta verði til þess að lið United vakni núna til lífsins og mæti sterkir til leiks í komandi leikjum.
hugarfar leikmanna var amk til staðar og það eitt og sér er skref í rétta átt.
Afglapi says
Skemmtilegt að þú skulir nota orðið LiVARpool í ljósi þess hvernig VARsjáin hjálpaði Man Utd í þessum leik.
VAR átti að ógilda mark United en gerði það ekki.
Markið hjá Mane hefði staðið ef VAR væri ekki til staðar.
Afglapi says
Varchester United, hljómar ekki svo illa.
Björn Friðgeir says
Ef það var eitthvað sem tryggði stigið í þessum leik, og var nálægt því að ná þremur var það leikskipulagið hjá United, það var ekki fyrr en tveir slökustu varnarmenn United síðustu 30 árin tóku sig saman í að klúðra að Liverpool fékk færi.
Ole vann þann slag.
Steini says
Vann hann slaginn með að gera jafntefli?
Björn Friðgeir says
Já.