Maggi, Friðrik og Bjössi settust niður og ræddu leikinn gegn Liverpool, bakmeiðsli Marcus Rashford, mögulegu kaupin á Bruno Fernandes, og hituðum létt upp fyrir leikinn gegn Burnley.
Við viljum endilega fá ykkar álit þannig að virk þáttaka í athugasemdarkerfinu er vel þegin.
Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan, auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:
Gerast áskrifandi í Spotify
Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum
MP3 niðurhal: 76. þáttur
Audunn says
Tek það fram að ég er ekki búinn að hlusta á þetta en það hljóta að vera til eitthvað af peningum þegar menn eru tilbúnir til að borga um 30 milj punda fyrir 16 ára gutta.. sama hveru góður hann er nema hann sé jú eitthvað Messi dæmi..
https://www.skysports.com/football/news/11667/11914609/jude-bellingham-manchester-united-offer-30m-for-birmingham-citys-16-year-old
TonyD says
Takk kærlega fyrir skemmtilegt podcast og ég er sammála ykkur með að það virðist ekkert plana hafa verið í gangi undanfarin ár hjá klúbbnum. Nema jú að kaupa leikmenn sem stjórarnir vilja eða sætta sig við. Ég er alveg á báðum áttum með Solskjær og hef trú á að hann geri eitthvað en svo virðist sem hann sé ekki heldur alveg með þetta.
Meiðslavandræðin eru ótrúleg og ættu að vera rannsóknarefni fyrir klúbbinn, eins með föst leikatriði, vita gagnslaust fram á við og jafn lélegir að verjast þeim.
Þessir eigendur eru ekkert að fara á næstunni og ég held að yfirmaður knattspyrnumála verði ekki ráðinn heldur því annars væri það búið. Kannski er ég bara svartsýnn og vonandi hef ég rangt fyrir mér…
Ps, góður punktur með umræðuna um leikmenn og aðra, það er ekkert að því að vera pirraður yfir genginu en gott að passa upp á hvað maður segir.