Á síðasti tímabili tókst Manchester United að snúa tveggja marki tapi á heimavelli gegn PSG við með ævintýralegum sigri í París. Síðan þá hefur gengið og frammistaðan verið töluvert á niðurleið.
En annað kvöld býðst nú tækifæri til að snúa við tveggja marki tapi úr fyrri viðureign þegar United heimsækir Manchester City á Etihad vellinum. Það er klárlega á brattan að sækja fyrir okkar menn og eftir meiðsli Marcus Rashford er erfitt að sjá hvaðan mörkin eiga að koma. Anthony Martial er of óstöðugur til að stóla í svona leik en raunin er sú að hann þarf að stíga upp. Meiðsli Scott McTominay og Paul Pogba síðustu vikur hafa margundirstrikað hversu lítil gæði eru til í fjarveru þeirra. Það má færa rök fyrir því að McTominay sé ný útgáfa af Darren Fletcher en hans var oft saknað þegar hann var frá. Pogba finnst manni hafa verið á leiðinni í burtu frá því í fyrravor. Ummæli Mino Raiola gefa það í skyn að hann fari líklega frá United í sumar. Það er skiljanlegt því enginn leikmaður hefur þurft að standa undir jafn ósanngjarnri gagnrýni og hann. Auk þeirra Pogba og McTominay eru Axel Tuanzebe og Marcus Rojo klárlega frá en það eru helmingslíkur á því að Nemanja Matic verði leikfær og ég yrði ekki hissa að sjá hann amk í hóp á morgun.
Heimamenn munu geta stillt upp nánast sínu sterkasta liði annað kvöld. Leroy Sane er náttúrulega enn frá og þeir Aymeric Laporte, Riyad Mahrez, og João Cancelo eru tæpir og ekki víst að Pep Guardiola taki neina sénsa með þá í leik í deildarbikarnum. Gengi City í deildinni hefur verið afleitt á þeirra mælikvarða og United því ekki eina Manchester liðið sem er að fá færri stig en á tímabilinu á undan. Annars eru City aðdáendur frekar fúlir út í stjórann þegar hann biðlaði til þeirra um að mæta á völlinn því hann var ekki ánægður með mætinguna í enska bikarnum. Skil samt ekki af hverju hann er hissa því léleg mæting hefur alltaf verið áhugaverður hluti af þessari gullöld liðsins undanfarin 10 ár.
Stóra spurningin er klárlega hvort þetta verði annað ævintýri eða meira af því sama og við höfum séð frá United í janúarmánuði.
Mögulegt byrjunarlið
Bjarni Ellertsson says
Já það virðist vera að Utd sé að takast hið ómögulega, að klófesta Brunó þann portúgalska en beðið er eftir staðfestingarhnappnum. En að leiknum sjálfum þá vona ég innilega að hann fari vel fram og við sýnum okkar bestu hliðar þó það endilega þýði ekki að úrslitin verði eftir því.