Maggi,Friðrik, Bjössi og Halldór settust niður og gerðu tímabilið hjá United. Meðal þess sem var rætt voru mestu vonbrigði, bestu og efnilegustu leikmennirnir, stjóranum gefin einkunn ásamt smá slúður umræðu.
Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan, auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:
Gerast áskrifandi í Spotify
Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum
MP3 niðurhal: 78. þáttur
Sindri says
Takk fyrir þáttinn!
gummi says
Þessi kaup á Maguire verða bara alltaf betri og betri við verðum bara reyna selja hann sem fyrst
SHS says
Við fengum 30 færri mörk á okkur á þessu tímabili miðað við árið á undan. Og aðeins 3 mörkum meira á okkur heldur en Liverpool.
Þannig ég er nokkuð viss um að Maguire sé að skila sínu.
Helgi P says
Það er ekki mikið að gerast hjá okkar mönnum á markaðinum
Alexander Hurra says
Mađur er orđinn frekar mikiđ stressađur međ markađinn, ekkert ađ frètta.
Klinsmann says
Sammála SHS. Þessi tölfræði talar sínu máli. Í ofanálag hefur D de Gea hleypt alltof mörgum 50/50 boltum inn á þessu tímabili. Held að flestir muni bara eftir vandræðalegu „útsölumomentunum“ hjá Harry M. Gleymist öll önnur tölfræði. Flesta leiki hefur hann skallað nær allar fyrirgjafir í burtu og staðið sig ágætlega. Klárlega engin peak Vidic en fínn varnarmaður í það heila.
Bjarni Ellertsson says
Jæja, styttist í næsta tímabil og engar jákvæðar fréttir af leikmannamálum. Þetta vindmyllu Sancho Panza dæmi er orðið þreytt, vonandi hætta menn þessu rugli og snúa sér að öðrum fiskum, sem reyndar önnur félög hafa týnt upp síðustu mánuði, þannig að tíminn er nánast á þrotum að fá til sín góða leikmenn.
Óbreytt lið mun ekki ráða við álagið í vetur svo ekki sé talað um meiðsla þáttinn enda hópurinn þunnskipaður. Alltaf má vona að menn komi með annað hugarfar inn í nýtt tímabil en hættu merkin eru fyrir hendi ef Ole og félagar halda ekki rétt á spilunum. Er því hæfilega bjartsýnn á veturinn.
GGMU
Scaltastic says
Já hvað getur maður sagt… ?
Það eru rúmar fimm vikur eftir af glugganum. Sergio Romero, Chris Smalling, Diogo Dalot, Juan Mata, Andreas Pereira og Jesse Lingard. Þessir menn eiga það sameiginlegt að langa að spila 90 mínútur í hverjum leik, aftur á móti er það ekki í boði fyrir þá hjá United. Það er líka eftirspurn eftir kröftum þeirra frá öðrum félögum.
Ég skil umræðuna varðandi áhrif tekjuleysi klúbbanna á leikdögum en það er engin afsökun fyrir því að stöðva endurnýjunarferlið á leikmannahópnum. Ég yrði persónulega vonsvikinn ef við myndum ekki ná að selja 4 af þessum 6 leikmönnum sem ég taldi upp áðan. Það myndi opna tækifærið til að versla tvo gæða leikmenn.
Ég vona innilega að Woodward og félagar líti á innrás Chelsea á markaðinn sem hvatningu, í stað sjálfsvorkunar.
Valdi says
Tekjur Man Utd á leikdögum eru óverulegar samanborið við önnur lið. Levy stólaði t.d. mikið á þessar tekjur af nýja leikvanginum en getur samt keypt.
Séu ársreikningar Utd. skoðaðir sést að þessar tekjur hafa nánast ekkert breyst undanfarin 8 ár á með tekjur af sjónvarpsrétti og auglýsendum hafa margfaldast. Woodward og félagar geta á engan hátt skýlt sér á bakvið covid verði enginn heimsklassa leikmaður keyptur.
Bjarni Ellertsson says
Þetta líst mér á, hef trú á þessum gutta. Vonandi fylgja aðrir með næstu daga. Spennandi.