Maggi, Bjössi og Halldór settust niður og fóru yfir byrjuna tímabilsins og nýjustu kaupin. Einnig settist Halldór niður með Dimitar Berbatov og ræddi meðal annars bókina hans og að sjálfsögðu Manchester United. Bókin hans er fáanleg hér.
Ef þið viljið senda okkur spurningar þá er það hægt að senda okkur skilaboð á Facebook síðu Rauðu djöflanna.
Hægt er að hlusta á þáttinn í spilaranum hér fyrir ofan, auk þess sem hægt er að hala honum niður í gegnum spilarann eða hér að neðan. Jafnframt má gerast áskrifandi að þættinum í gegnum ýmis podkast-forrit:
Gerast áskrifandi í Spotify
Gerast áskrifandi í iTunes
Gerast áskrifandi í öðrum forritum
MP3 niðurhal: 80. þáttur
Scaltastic says
Alvöru canon-a… Vel gert ritstjórn!
Sveinbjörn says
Djöfulsins meistarar! Hlakka til að hlusta
gummi says
Djöfull þurfum við að fara losa okkur við þennan Maguire hann verður alltaf verri og verri þetta er eru verstu kaup í sögunni hjá United
Halldór Marteins says
Þú ert alltaf jafn hress, gummi.
Varstu annars ekkert búinn að hlusta á viðtalið við Berbatov?
Scaltastic says
Maguire þarf alvarlega að leita sér hjálpar og það er skylda félagsins aðstoða hann í því ferli, það er augljóst að hann er ekki skugginn af sjálfum sér eftir atburði sumarsins. Þó svo að að klúbburinn hafi gert rétt með því að koma með stuðningsyfirlýsingu á hann þá þarf hann sálræna meðferð, held að honum sé enginn greiði gerður með því að bera ennþá fyrirliðabandið. Það væri vond hugmynd að láta hann spila á laugardag að mínu mati.
Hins vegar hef ég ekki hugmynd hvað amar að Wan Bissaka. Það má segja ýmislegt um þetta tvíeyki og takmarkanir þeirra á velli. Þeir eru að mínu mati báðir í hópi topp 5 mikilvægustu leikmanna liðsins.
Það þarf að ná þeim tveimur í gang ASAP… Vildi óska þess að ég væri vongóður um betri frammistöður en svona er staðan, því miður.
gummi says
Er einhver ástæða fyrir því að vera hress með stöðuna á klúbbnum við erum ekki með góðan stjóra ömurlegan Maguire sem kostaði slata af peningum ömurlega eigendur sem eru drullu sama um þennan klúbb
Halldór Marteins says
Af hverju segirðu okkur ekki hvað þér finnst í alvöru, gummi?
En hvað segirðu, hlustaðirðu á Berbatov? Finnst þér það kannski líka drulluömurlegt og glatað í alla staði eins og allt annað?