F-riðill
Villarreal
Manchester United
Atalanta
Young Boys
Leikjaplanið ætti að verða klárt á laugardaginn
Hinir riðlarnir líta svona út:
A-riðill
Manchester City
PSG
RB Leipzig
Club Brugge
B-riðill
Atletico Madrid
Liverpool
FC Porto
AC Milan
C-riðill
Sporting CP
Borussia Dortmund
Ajax
Besiktas
D-riðill
Inter
Real Madrid
Shakhtar Donetsk
Sheriff
E-riðill
Bayern München
Barcelona
Benfica
Dynamo Kiev
H-riðill
Chelsea
Juventus
Zenit
Malmö
Scaltastic says
Ekki hægt að kvarta undan þessum drætti. Það er engin afsökun fyrir því að komast í 16 liða úrslit, sér í lagi eftir klúðrið í fyrra.
Hvað varðar fílinn í herberginu… þetta svíður. Ef Haaland kemur ekki næsta sumar og nágrannarnir pull-a þetta… úff!
CR7… góðar minningar og allt en þarf því miður að bjóða hann velkominn í hið eitraða þríeyki með Tevez og Di Maria. Núll velvilji og 100% biturð og ósveigjanleiki, þetta gefur lífinu lit :)
Gef samt Ole og stjórninni prik fyrir að hafa ekki panikkað og bitið á agnið hjá Juve. Hins vegar er það stjarnfræðileg skita að það sé líklegra að Dalot verði seldur heldur en Lingard. Það eru vond tíðindi að missa Macca frá í langan tíma, nú verður Ole að gjöra svo vel að rótera Matic, Fred og Donny, engin helv. afsökun. Held að það yrði farsælast að fara í 3-5-2 og skipta Dalot inn fyrir Wan Bissaka, sjá hvort það vekji ekki köngulónna upp úr rotinu.
Styð Ole í sínu starfi og það yrði fátt fallegra en að sjá hann lyfta dollu sem okkar stjóri. Þetta hefur hins vegar ekki verið neinn dans á rósum og ég viðurkenni það að ég hef afar takmarkaða þolinmæði gagnvart því hversu tempólaust liðið hans er þegar það á að stýra leikjum.