Varamenn: Bayindir, Collyer (46.m), Wheatley, Evans, Antony, Amad (69.m), Eriksen (86.m), Maguire(69.m), Heaton
Lið Liverpool: Alisson; Trent Alexander-Arnold, Ibrahima Konate, Virgil van Dijk, Andrew Robertson; Ryan Gravenberch, Alexis Mac Allister; Mohamed Salah, Dominik Szoboszlai, Luis Diaz; Diogo Jota
United sótti vel fyrstu mínútur leiksins en fékk ekkert úr því nema eitt horn. Liverpool kom síðan til baka, sótti vel á og á 7. mínútu kom sending framhjá Mazraoui, Diaz var smá klaufskur en kom samt með fyrirgjöfina sem fór aftan við Salah sem setti þó fót í boltann þannig hann fór út á Trent Alexander-Arnold sem var galopinn og skoraði. En til allra lukku var Salah hárfínt fyrir innan þegar sendingi kom og markið dæmt af.
Vel sloppið þar en bæði líð voru að sýna ágæta takta. Um tíma var United að halda boltanum betur en maður hefur oft séð en vantaði uppá uppi við teiginn. Liverpool sóttu svo meira á en þó United væru ansi seigir í að stoppa sóknir, komast í bolta og hreinsa var orðið erfiðara aftur að gera eitthvað úr því.
Það var því ekki gegn gangi leiksins á 35. mínútu þegar Luis Diaz skallaði fyrirgjöf Salah í netið. Casemiro átti skelfilega sendingu beint á Gravenberch sem lék upp, renndi boltanum á Salah sem fékk tíma til að gefa fyrir.
Casemiro búinn að vera skelfilega slakur í leiknum fram að þessu og þetta kórónaði frammistöðuna.
Annað mark Liverpool var næstum jafn skelfilegt varnarlega. Diaz nikkaði boltann af Casemiro, Salah fékk síðan boltann, stóð á móti Dalot og átti einfalda sendingu á Diaz sem stóð aleinn inni á teig og þótt skotið væri ekki snyrtilegt endaði það í markinu úti við stöng.
Það kom engum á óvart að Collyer kom inná fyrir Casemiro í hálfleik og við sjáum Casemiro ekki aftur nema í hallæri. Sem miðað við fjölda miðjumanna í hópnum er alveg líklegt.
Loksins snemma í seinni hálfleiknum átti United loksins skot á mark. Zirkzee skaut utan teigs og Alisson þurfti að skutla sér en var samt þægileg varsla.
En þetta var alltof auðvelt fyrir Liverpool og Mo Salah bætti við þriðja markinu á 56. mínútu. Í þetta skiptið var það Kobbie Mainoo sem lét taka af sér boltann á eigin vallarhelmingi, vörnin var galopin og Salah fékk boltann óvaldaður og kláraði auðveldlega.
Endursýningarnar voru svo rétt að klárast þegar skipt var í beina útsendingu til að sýna Salah skjóta yfir úr teignum eftir góðan undirbúning.
Loksins sást smá frá United í nokkrar mínútur sem endaði á fyrirgjöf og skalla Zirkzee því sem næst beint á Alisson.
Embed from Getty Images
NÆsta skipting var Amad fyrir Garnacho og áhorfendur á Old Trafford voru ekki ánægðir. Nokkuð ljóst þeir vildu frekar sjá einhvern annan tekinn útaf. Ekki þar fyrir, Garnacho hafði lítið gert, en Rashford og Zirkzee enn minna. Um leið fór svo De Ligt útaf fyrir Maguire, De Ligt staðið sig að ýmsu leyti ágætlega en í öllum mörkunum hafði vörnin verið galopinn þegar boltinn tapaðist á miðjunni.
Liverpool var farið að slaka á og Rashford átti ágæta sendingu á fjær stöng þar sem Zirkzee stakk sér fram en hitti boltann ekki vel og hann fór framhjá öllu markinu og hinu megin útaf. Rétt á eftir átti Szoboszlai að skora en var alltof lengi að athafna sig í teignum og Mazraoui gat rennt sér fyrir.
Leikurinn var að renna út í sandinn, og lítið að gerast en Ten Hag sá ástæðu til að senda Christian Eriksen inná fyrir Zirkzee án þess að það breytti nokkru.
Þetta var skelfilegur dagur á skrifstofunni. Fyrir það fyrsta er Casemiro gjörsamlega búinn og sést ekki aftur, en þó Ugarte muni eitthvað þetta, verður þetta langur og erfiður vetur ef bara hann og Kobbie Mainoo eru almennilegir miðjumenn. Sóknin var hrikaleg i fyrri hálfleik, það var ekki fyrr en í þeim seinni sem Rashford skapaði tvö færi fyrir Zirkzee, það má vona að sá síðarnefndi venjist aðeins enska boltanum. Rasmus Højlund verður svo líklega til núna eftir landsleikjahléið.
Það er erfitt að horfa upp á þetta þar semþað er ekki síður vandamál að liðið virðist ekki geta náð saman. Eins og segir að ofan voru fyrstu mínúturnar góðar en það var algert villuljós. Það var ljóst fyrir að stuðningsmenn myndu ekki gefa Ten Hag mikinn tíma eftir ófarnirnar í fyrra og það eru núna háværar raddir um að reka manninn. Jim Ratcliffe var í stúkunni og leit ekki út fyrir að vera mjög ánægður.
Þetta gæti orðið langur vetur
Dór says
Þetta er komið gott með Ten Hag hræðilegur stjóri
Einar says
Hversu lengi ætlum við að spila með enga miðju? Það skiptir engu hverjir spila á henni ef taktíkin er svona opin.
Tómas says
Hræðilegt! Hef varið Ten Haag en nú er tíminn úti. Þetta er ekki í boði… hversu niðurlægjandi svo er nýr kollegi hans frá Hollandi í brúnni hinu megin.
Vona yfirstjórnin bíði ekki of lengi með stjóraskipti.
Arni says
Við verðum að losa okkur við þetta hræ annars verður þetta bara það sama og í fyrra
Tómas says
Finnst líka furðulegt hversu langan tíma það tók að fá Ugarte inn.
Hafði áhyggjur af Casemiro í þessum leik og held hann hafi sannað það að hann er búinn á þessu stigi.
EgillG says
Algört gjaldþrot í dag, eitthvað þarf að breytast
Ólafur Kristjánsson says
Það getur verið að það þurfi að skipta um stjóra. En hvað um leikmennina? Enginn þeirra kæmist á bekkinn hjá Liverpool.
Rob says
Ha ha ha ha
Gummi says
Þvílíkt drasl lið sem Ten Hag hefur búið til við erum að fara horfa á en verra Season heldur en í fyrra
Elis says
Sko það er þægilegt að horfa bara á Casemiro sem er klárlega búinn en það má benda á aðra sem fá litla gagnrýni.
Onana er einfaldlega lélegur markvörður
De Ligt er ekkert að fara að loka þessari vörn ef hann spilar svona
Martinez er vinsæll hjá stuðningsmönnum en afhverju stopar hann ekki mark númer 2. Hann var lélegur í dag.
Bruno alveg týndur en einn leikinn og ömurlegur leiðtogi.
Bakverðirnir sem menn hafa verið að hrósa litu illa út í vörn og sókn.
Umræðan verður samt um Casemiro enda lélegur en aðrir mega líka líta í eigin barm.
Liverpool voru miklu betri og virka eina og lið sem er með stjóra sem veit hvað hann vill og strákarnir hans fylgja því s.s andstæða við ETH
Sir Roy Keane says
„Alltaf einu tapi frá krísu“.
Þetta er fyrirsögnin seinustu mánuði, það þarf hins vegar þolinæði til þess að byggja upp gott fótboltalið og það er betra að anda með nefinu en munninum.
Það er mjög margt jákvætt búið að gerast á árinu, t.d. Minni áhrif Glacers, alvöru uppbygging á fótboltahlið klúbbsins, árangur yngra liðsins, bikar, hressileg tiltekt í leikmannahópnum, veruleg lækkun launakostnaðar og spennandi leikmenn sóttir í sumar. Hópurinn er núna mun betur saman settur.
Ten Hag hefur gert fullt af mistökum og ef hann fer á næstu mánuðum þá erum við með spennandi verkefni að taka við fyrir næsta þjálfara. Við verðum á mun betri stað í maí 2025 en síðasta vor.
Red says
Það er alltaf næsta ár