Liðið komið
De Gea
Rafael Ferdinand Evans Evra
Carrick Cleverly
Valencia Rooney Young
van Persie
Varamenn: Lindegaard Anderson Hernandez Nani Scholes Powell Wootton.
Anderson fær ekki sénsinn, okkar sterkasta liði, eins og Ferguson sér það stillt upp. Welbeck er meiddur og því ekki á bekk
Arsenal: Mannone; Sagna, Mertesacker, Vermaelen, Santos; Arteta, Wilshere, Ramsey; Cazorla, Giroud, Podolski. Alveg eins og almennt var spáð
siggi United maður says
Ég er ánægður með að Cleverley fái sjéns. Anderson er bara því miður ekki í nógu góðu formi til að treysta á að hann vinni alltaf varnarvinnuna sína. Ekki taka því samt þannig að mér finnist hann ekki nógu góður, mér finnst hann frábær. En feitur. Og verður að laga það.
johann Ingi says
Líst vel á þetta lið. Svo er bara að vona að við byrjum þetta af krafti og setjum mark snemma. Væri alveg til í að lenda ekki undir eftir 2 min og helst að sleppa að fa á sig 2-5 mörk og þá eigum við bullandi séns :D
Vamos united !
DMS says
Úff ég hef á tilfinningunni að þessi vítaspyrna hjá Rooney muni bíta okkur í rassinn í síðari hálfleik. Númer hvað var þetta vítaklikk hjá okkur á þessari leiktíð?
Friðrik says
Hvad er Rooney búin að klúðra mörgum vítum síðustu 3 ár ? ábyggilega meira en 10. Van Persie átti að taka vítið.
hilmar says
flottur leikur hjá okkar mönnum gaman að sjá cleverly í liðinu en er alveg sammála sigga að anderson sé ekki í bersta forminu
DMS says
Það má líka koma fram hvað þessi leikur hefur verið vel dæmdur. Allar ákvarðanir hafa verið réttar að mínu mati, allavega þær sem skipta máli. Tvö rangstöðumörk dæmd réttilega af. Wenger getur sjálfum sér um kennt að taka ekki Wilshere af velli þegar hann fékk síðasta tiltalið á gulu spjaldi, rétt eins og Tom Cleverley. Ferguson var fljótur að kippa honum af velli eftir það. Mér fannst Mike Dean halda sinni línu vel í leiknum.