Fótbolti.net birti frétt á vefnum sínum í dag um lista sem hugsanlega inniheldur launatölur leikmanna Manchester United. Hann lítur út svona:
- Wayne Rooney – £180,000
- Robin van Persie – £180,000
- Rio Ferdinand – £110,000
- Nemanja Vidic – £90,000
- Ashley Young – £90,000
- Patrice Evra – £75,000
- Ryan Giggs – £70,000
- Javier Hernandez – £60,000
- Shinji Kagawa – £60,000
- Antonio Valencia – £60,000
- Michael Carrick – £55,000
- David De Gea – £50,000
- Danny Welbeck – £50,000
- Darren Fletcher – £50,000
- Jonny Evans – £45,000
- Andres Lindegaard – £45,000
- Luis Nani – £45,000
- Chris Smalling – £40,000
- Phil Jones – £40,000
- Rafael da Silva – £40,000
- Paul Scholes – £30,000
- Alexander Buttner – £25,000
- Angelo Henriquez – £20,000
- Tom Cleverley – £20,000
- Federico Macheda – £6,000
- Nick Powell – £5,000
Hvað finnst ykkur um þetta, teljið þið þetta líklegan lista? Eru menn að fá borgað það sem þeir eiga skilið?
Annars komu líka þær fréttir í dag að á morgun (miðvikudag) verður það tilkynnt að skuldir Manchester United séu nú komnar undir 400 milljónir punda og mun það vera í fyrsta skiptið sem það gerist síðan Glazer fjölskyldan keypti klúbbinn í maí 2005. Þetta er svolítið eins og að fagna 10-0 tapi í dag eftir 20-0 tapið í gær, en hey, við tökum öllum fjárhagslegum framförum með fegins hendi, ekki satt?
Annars er orðið er laust!
Tryggvi Páll says
Það er enginn tilviljun að svona listar birtast skömmu eftir að nýji Football Manager leikurinn kemur út ár hvert. Þessi listi er tekinn beint þaðan eins og sjá má hér: http://i50.tinypic.com/34oq5j8.png
F.E.V says
jaa sama má seigja um fifa 13, en ef þetta er satt þá væri eg ekki að fara gráta mikið ef Ferdinand og giggs myndu fara ljuka sinum ferlum hjá united þetta 180.000 í laun á mánuði þetta eru svakalega laun og myndu losna um helling
Steini says
leiðrétting F.E.V. þetta eru laun á viku ekki mánuði
Runólfur says
Held að þessi listi sé alveg byggður á einhverjum grunni en held að mjög fáar tölur þarna standist. Grunar að gífurlegt magn af greiðslum séu árángurstengdar og Bónustengdar, held að fáir nema bara leikmenn og starfsfólk United viti hvað þessir menn eru með í laun. Varðandi skuldirnar, mjög jákvætt að félagið sé að borga þetta svona hratt og örugglega niður en mikil ósköp hefði ég verið til í að sleppa við þetta allt saman, þá hefði maður engar áhyggjur af fjárhagslegri framtíð félagsins.