Liðin eru kominn og United liðið er svona:
Lindegaard
Rafael Smalling Ferdinand Evra
Valencia Carrick Giggs Young
Chicharito RvP
Bekkur: Johnstone, Jones, Anderson, Welbeck, Scholes, Cleverley, Fletcher
De Gea þurfti víst að láta draga úr sér tönn skv. MUTV og er því ekki í hópnum. Giggs er væntanlega á miðjunni sem kemur nokkuð á óvart. Hann hefur þó lagt það í vana sinn að skora á Carrow Road. Annars bara hefðbundið lið miðað við meiðsli og annað.
Norwich liðið er svona:
Ruddy
Whittaker Bassong Turner Garrido
Snodgrass Tettey Hoolahan Johnson Pilkington
Holt
City er að valta yfir Aston Villa og Chelsea er að tapa stigum gegn WBA. Þrjú stig væru því afskaplega vel þegin á eftir.
Arnar Már Pétursson says
Veit einhver um Rooney?
Hjörvar Ingi Haraldsson says
Hefði persónulega viljað sjá Anderson og/eða Cleverly í byrjunarliðinu. Væri líka gaman að sjá Jones koma smá inná :)
Dió says
Ég hélt að það ætti að hvíla RVP því hann var tæpur fyrir leikinn…
Tryggvi Páll says
Rooney varð fyrir einhverju smávægilegu hnjaski um daginn og gat því ekki verið með Englandi gegn Svíþjóð í vikunni. Hann verður í það minnsta til fyrir næsta deildarleik, líklega þó fyrir leikinn gegn Galatasaray.
DMS says
RvP var líklega bara „smávægilega meiddur“ þar sem það var vináttulandsleikjavika :)
Björn Friðgeir says
Þetta er ekki hægt. Tveir 38 ára inná… og eyða skiptingu í að taka Javier útaf.
Jésúspétur.
Ásgeir says
eruð þið ekki að taka eftir því hvað giggs er að kúka upp á bak… búinn að skemma hverja sóknina á fætur annari… shit hvað fergusson er blindur á giggs. þó svo að hann hafi verið góður þá er óþarfi að spila honum þegar hann er búinn að dala svona mikið og láta sig verða til skammar… drullaðu giggs á bekkinn fergusson