Á morgun leika Manchester Utd við Chelsea á útivelli. Robin van Persie verður ekki með og ekki heldur Wayne Rooney. Ashley Young er líka meiddur sem veikir liðið líklega ekki neitt og sem fyrr eru Fellainio og Nani frá ásamt Phil Jones og Patrice Evra. Jonny Evans og Rio Ferdinand eru líklega leikfærir.
Ég held að ég hafi aldrei verið jafn svartsýnn fyrir stórleik hjá United í þau rúmu 20 ár sem ég hef stutt liðið. Það er ekki eins og liðið hafi aldrei lent í meiðslakrísum fyrr en liðið hafði alltaf magnaðan baráttuanda sem Alex Ferguson barði í það. Það er helsti munurinn á liðinu núna og undanfarin ár að liðið virðist ekki vilja leggja sig 110% fram fyrir David Moyes eða að þeir eru einfaldlega ekki jafn hræddir við að spila illa fyrir hann og fyrir Ferguson.
Meiðslalistinn hjá Chelsea er stuttur Frank Lampard verður mögulega leikfær á morgun en eitthvað lengra verður í Branislav Ivanovic og svo er Marco van Ginkel frá fram í júní.
Ég ætla ekki einu sinni að ræða eitthvað sérstaklega um markvarðarstöðuna þar sem hún er sjálfvalin þessa dagana enda hefur David de Gea verið frábær og stimplað sig inn sem einn besti ef ekki sá besti í deildinni. Vörnin er annað mál, Rafael verður að öllum líkindum í hægri bakverðinum og Alexander Büttner vinstra megin. Persónulega trúi ég varla mínum eigin orðum þegar ég fullyrði að Rio Ferdinand eigi ekkert erindi í svona leiki lengur og býst ég við honum á bekknum. Ég er nokkuð viss um að Jonny Evans og Chris Smalling verði í hjarta varnarinnar. Chelsea er með þannig lið að það borgar sig fyrir okkur að hafa akkeri á miðjunni, jafnvel tvö og það verða líklega (og vonandi) Darren Fletcher og Michael Carrick. Fyrir fram þá býst ég við 3 manna línu þar sem Antonio Valencia verður hægra megin, Shinji Kagawa sem leikstjórnandi og Adnan Januzaj vinstra megin. Þrátt fyrir magnað record hjá Javier Hernandez gegn Chelsea þá býst ég samt við að Danny Welbeck muni byrja uppi á topp.
Liðið mund þá líta út nokkurn veginn svona:
De Gea
RAFAEL SMALLING EVANS BUTTNER
CARRICK FLETCHER
VALENCIA KAGAWA JANUZAJ
WELBECK
Leikurinn hefst kl.16:00
Gísli G says
Og hvernig er þá bekkurinn !?
Sammála því að það er enginn ástæða fyrir bjartsýni fyrir leikinn á morgun. Maður hefur sjaldan séð svona veika uppstillingu á United liði í alvöru leik. Við erum augljóslega í tímabundinni lægð og huggum okkur við að betri tímar séu framundan; kannski þó ekki fyrr en næsta season.
Veit ekki hvort að leikmenn hafi verið hræddir við Ferguson í gegnum tíðina, þar sem hann segir sjálfur að hann hafi aldrei skammað þá það mikið að þeir yrðu hræddir í næsta leik. Hræddir leikmenn spila ekki vel sagði Sir Alex í reglunum 10 sem hann notaði til að byggja upp stórveldið.
Magnús Þór says
Gísli G skrifaði:
Ég var bara að meina að þeir væru hræddir við að vera detta úr liðinu.
Björn says
Ég er orðinn pínu þreyttur á þessu Ashley Young hatri hérna, áður en hann meiddist virtist hann loksins vera að finna sig aftur og var búinn að spila virkilega vel einhverja 4-5 leiki í röð, einnig er hann einn af fáum í okkar liði sem getur tekið það að sér að skora upp á sitt einsdæmi, og á morgunn verðum við bara með einn heilan leikmann sem getur það.
Og í guðanna bænum ekki byrja á þessu dýfutali til þess að réttlæta þessa skoðun, að mínu mati er munur á að dýfa sér þegar þú sérð fram á snertingu (ef Ashley Young reynir ekki að komast hjá snertingu þá meiðist hann eins og við sáum nú t.d bara á móti Lloris) eða að rúlla sér í hringi í grasinu haldandi fyrir andlitið sem er eitthvað sem flestir Suður-Amerískir, Spænskir og Portúgalskir leikmenn (ásamt reyndar einhverjum öðrum þjóðum) eru mjög duglegir að. Þannig að plís farið ekki að líkja Young við Suarez eða Busquets eða einhvern annan slíkan.
Ísak Agnarsson says
Mér líst vel á þetta lið, en eins gott að Buttner standi sig því hann er klárlega veiki hlekkurinn.
Annars getur þetta lið alveg skorað mörk.
Hjörtur says
Engin staðfesting er komin hvernig byrjunarliðið verður gegn Chelsea, eða þá bekkurinn. En mestar áhyggur hef eg hvað Zaha varðar, ef satt reynist að hann hafi lent upp á kant við stjórann, vegna þess að honum var neitað um að vera lánaður til annars liðs. Ég skil vel að drengurinn vilji komast á lánssamning til að fá að spila, þar sem hann spilaði hvern einasta leik að ég held þegar hann var hjá C.P. Maður spyr sig hvort þetta sé að fara á sama veg og var með Pogba, að hann fari frá félaginu fyrir rest?
Björn says
@ Hjörtur:
Hann á nú reyndar eftir hálfan áratug af samningnum sínum þannig ég held að menn séu ekkert að stressa sig yfir því að þetta verði eitthvað Pogba dæmi.